Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 263/2010

Nr. 263/2010 15. mars 2010
REGLUR
um framgang og ótímabundna ráðningu akademískra starfsmanna við Háskóla Íslands.

1. gr.

Markmið.

Reglur þessar gilda um framgang og ótímabundna ráðningu akademískra starfsmanna við Háskóla Íslands, sbr. III. kafla reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Markmið framgangskerfis Háskóla Íslands er að hvetja akademíska starfsmenn til virkni og árangurs í starfi og auka með því gæði kennslu og rannsókna við Háskóla Íslands. Framgangur byggir á faglegu mati á frammistöðu og árangri í rannsóknum, kennslu, stjórnun og þjónustu í þágu Háskóla Íslands.

Í reglum þessum er kveðið á um lágmarksskilyrði í tengslum við framgang og ótíma­bundna ráðningu. Fræðasvið Háskólans skulu hvert um sig skilgreina nánari skilyrði og verklag við mat á umsóknum, t.d. á vettvangi deildar, sem háskólaráð staðfestir í formi sérreglna.

2. gr.

Framgangur akademískra starfsmanna.

Rektor Háskóla Íslands veitir framgang samkvæmt reglum þessum.

Lektor, dósent, sérfræðingur eða fræðimaður getur óskað eftir framgangi í starfi. Rektor getur, án auglýsingar, flutt lektor í dósentsstarf, dósent í prófessorsstarf, sérfræðing í starf fræðimanns og fræðimann í starf vísindamanns, enda liggi fyrir hæfnisdómur dóm- og framgangsnefndar samkvæmt ákvæðum reglna þessara.

Heimilt er að flytja lektor í starf prófessors og sérfræðing í starf vísindamanns, enda uppfylli viðkomandi lágmarksskilyrði til að gegna starfinu að mati dóm- og framgangs­nefndar samkvæmt reglum þessum.

Rektor er heimilt að veita framgang strax við nýráðningu ef viðkomandi starfsmaður upp­fyllir þau skilyrði sem tilgreind eru í 6. gr. reglna þessara, enda liggi fyrir dóm­nefndarálit sem staðfesti það í samræmi við ákvæði sérstakra verklagsreglna sem háskólaráð staðfestir.

3. gr.

Umsóknarfrestur og umsóknir.

Sækja skal um framgang til forseta fræðasviðs fyrir 1. nóvember ár hvert. Framgangur samkvæmt reglum þessum tekur gildi við upphaf nýs háskólaárs 1. júlí.

Umsókn um framgang skal uppfylla sömu kröfur og gerðar eru til umsókna um laus störf skv. 37. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Umsókn um framgang í starf dósents og prófessors skal auk þess fylgja kennsluferilskrá umsækjanda. Í umsókninni skal umsækjandi gera grein fyrir þeim verkum sínum á sviði rannsókna, kennslu, stjórnunar og þjónustu sem hann telur veigamest með tilliti til umsóknar sinnar um framgang. Umsækjandi skal einnig nefna a.m.k. fjóra utanaðkomandi sérfræðinga sem geta veitt umsögn um verk hans, sbr. 4. gr. reglna þessara. Sérfræðingarnir skulu vera viðurkenndir vísindamenn á sínu sviði og starfa utan Háskóla Íslands.

4. gr.

Dóm- og framgangsnefnd fræðasviðs.

Á hverju fræðasviði starfar föst fimm manna dóm- og framgangsnefnd sem rektor skipar til þriggja ára í senn. Tveir nefndarmanna skulu tilnefndir af háskólaráði og er annar þeirra formaður nefndarinnar en hinn skal vera starfandi utan Háskóla Íslands. Þrír nefndarmanna skulu tilnefndir af stjórn viðkomandi fræðasviðs. Varamenn skal tilnefna og skipa á sama hátt. Í dóm- og framgangsnefnd má skipa þá eina sem lokið hafa doktorsprófi eða hliðstæðu prófi úr háskóla, nema því verði ekki við komið. Formaður nefndarinnar skal hafa verið metinn hæfur til að gegna starfi prófessors. Í dóm- og framgangsnefnd skulu sitja bæði karlar og konur og skal þess gætt að hlutfall kynjanna sé ekki minna en 40%, sbr. 15. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Um sérstakt hæfi nefndarmanna gilda ákvæði II. kafla stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Hlutverk dóm- og framgangsnefndar fræðasviðs er eftirfarandi:

  1. að meta hvort umsækjendur um framgang uppfylla þau lágmarksskilyrði sem sett eru um það starfsheiti sem við á samkvæmt ákvæðum 6. gr. reglna þessara, 41. gr. reglna Háskóla Íslands nr. 569/2009 og sérreglna deilda;
  2. að meta árangur og virkni umsækjanda í starfi sínu við Háskóla Íslands og gefa forseta fræðasviðs ráðgefandi álit um hvort mælt sé með því að framgangur verði veittur;
  3. að meta umsókn um ótímabundna ráðningu sbr. 8. og 9. gr. og veita rektor álit á því hvort mælt sé með því að akademískur starfsmaður verði ráðinn ótímabundið í starf við Háskóla Íslands.

Dóm- og framgangsnefnd fræðasviðs skal afla umsagna tveggja til þriggja viðurkenndra utanaðkomandi sérfræðinga á fræðasviði umsækjandans, sem fylgja skulu umsókn til framgangsnefndar háskólans, nema nefndin telji að umsækjandi uppfylli ekki lágmarksskilyrði skv. a-lið 2. mgr. Dóm- og framgangsnefnd er heimilt að leita út fyrir þann hóp utanaðkomandi sérfræðinga sem umsækjandi nefnir í umsókn sinni, sbr. 3. gr. Tilkynna skal umsækjanda, viðkomandi deildarforseta og forseta fræðasviðs hvaða sérfræðingar muni veita álit. Dóm- og framgangsnefnd fræðasviðs er heimilt að óska eftir upplýsingum um mat á fyrri störfum umsækjanda frá stjórnsýslu háskólans.

Um málsmeðferð og störf dóm- og framgangsnefndar gilda auk ákvæða reglna þessara ákvæði 40.-43. gr. reglna Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Dóm- og framgangsnefnd sendir álit sitt til forseta fræðasviðs. Mæli dóm- og fram­gangs­nefnd ekki með því að veita skuli framgang, skal nefndin rökstyðja álit sitt. Forseti fræðasviðs tekur á grundvelli álits nefndarinnar ákvörðun um hvort umsókn skuli send framgangsnefnd Háskóla Íslands eða hvort umsókn um framgang er hafnað. Ef forseti fræðasviðs telur að hafna eigi framgangi skal hann rökstyðja þá niðurstöðu og veita umsækjanda allt að 14 daga andmælarétt áður en endanleg ákvörðun er tekin.

Mæli forseti fræðasviðs, að fengnu áliti dóm- og framgangsnefndar sviðsins, með því að framgangur verði veittur sendir hann rektor umsóknargögn, greinargerð dóm- og fram­gangs­nefndar og umsagnir sérfræðinga innan fjögurra mánaða frá því að umsóknar­fresti lauk, eða eigi síðar en 1. mars.

5. gr.

Framgangsnefnd Háskóla Íslands.

Rektor skipar framgangsnefnd Háskóla Íslands sem í eiga sæti einn fulltrúi tilnefndur af hverju fræðasviði og einn án tilnefningar og skal hann vera formaður. Tilnefna skal varamenn með sama hætti. Nefndin er skipuð til þriggja ára í senn. Þess skal gætt að bæði karlar og konur sitji í framgangsnefnd Háskóla Íslands, sbr. 15. gr. laga nr. 10/2008 um jafnan rétt og jafna stöðu kvenna og karla.

Í framgangsnefnd Háskóla Íslands má skipa þá eina sem hlotið hafa prófessorshæfi. Enn fremur skal miða við að þeir sem skipaðir eru í nefndina hafi viðamikla reynslu af rannsóknum, kennslu og stjórnunarstörfum.

Ef atkvæði í framgangsnefnd falla jöfn sker atkvæði formanns úr.

Framgangsnefnd Háskóla Íslands metur umsóknir um framgang á grundvelli fyrirliggjandi gagna og ákvæða 6. gr. reglna þessara, 41. gr. reglna Háskóla Íslands nr. 569/2009 og sérreglna fræðasviða um framgang. Framgangsnefnd gerir á grundvelli þess mats tillögu til rektors um hvort veita beri framgang.

Ef það er niðurstaða framgangsnefndar Háskóla Íslands að ekki beri að veita framgang skal hún rökstyðja þá niðurstöðu sína og veita umsækjanda allt að 14 daga andmælarétt.

Álit framgangsnefndar Háskóla Íslands skal berast rektor eigi síðar en 30. apríl.

6. gr.

Mat á umsóknum um framgang.

Umsókn um framgang skal metin á grundvelli reglna þessara, 41. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands og sérreglna fræðasviða. Stigagjöf samkvæmt reglum þessum byggir á matskerfi opinberra háskóla.

Til að teljast uppfylla lágmarksskilyrði sbr. a-lið 2. mgr. 4. gr. þarf umsækjandi að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  1. Hafa fengið tiltekinn lágmarksfjölda stiga fyrir rannsóknir og kennslu sem tilgreind eru í töflum 1-3 í þessari grein. Auk krafna um lágmarksfjölda rannsóknastiga, skv. töflu 1 og 2, er gerð krafa um lágmarksfjölda rannsóknastiga úr tilteknum flokkum matskerfisins, sbr. töflu 3. Þessir flokkar eru:
    1. A2 (bækur), þó ekki A2.4 og A2.5.
    2. A3 (bókakaflar), þó ekki A3.4.
    3. A4 (tímaritsgreinar), að undanskildum flokknum A4.4.
    4. A5.1 (greinar í alþjóðlegum ráðstefnuritum).
  2. Hafa lokið meistaraprófi hið minnsta eða hafa jafngilda þekkingu og reynslu að mati dóm- og framgangsnefndar. Umsækjandi um framgang í starf dósents, prófessors, fræðimanns eða vísindamanns skal hafa doktorspróf eða jafngildi þess nema aðstæður á viðkomandi fræðasviði séu þannig að ekki sé unnt að koma því við. Heimilt er að gera strangari kröfur um menntun vegna framgangs í sérreglum fræðasviða og skal þá umsækjandi uppfylla þær.

Við mat á því hvort mæla eigi með framgangi sbr. b-lið 2. mgr. 4. gr. skal auk skilyrða sem tilgreind eru í 2. mgr., litið til árangurs og virkni umsækjanda í starfi sínu við Háskóla Íslands. Við mat á árangri og virkni skal tekið mið af eftirfarandi sjónarmiðum, ákvæðum 41. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands og sérreglna fræðasviða:

  1. Rannsóknir. Metinn er fjöldi rannsóknastiga sem umsækjandi hefur áunnið sér. Hafi umsækjandi sýnt fram á getu sína til að afla styrkja til rannsóknaverkefna úr viðurkenndum rannsóknasjóðum styrkir það umsókn um framgang. Við framgang í prófessorsstarf eða í starf vísindamanns er gerð krafa um að umsækjendur hafi sýnt fram á verulega hæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vísindastörfum. Enn fremur styrkir reynsla og virkni í alþjóðlegu rannsóknasamstarfi umsókn um framgang.
  2. Kennsla. Lagt er mat á kennsluferilskrá umsækjanda, svo sem kennslureynslu, nýsköpun í kennslu, kennsluhætti og þróun kennsluefnis. Við framgang í dósents­starf er gerð krafa um reynslu af leiðbeiningu á meistarastigi. Við framgang í starf prófessors er enn fremur gerð krafa um að umsækjandi hafi verið aðalleiðbeinandi í meistara- eða doktorsnámi. Framan-greind krafa um leiðbeiningar­reynslu er miðuð við að boðið sé upp á nám til meistara- og/eða doktors­náms í kennslugrein umsækjanda.
  3. Stjórnun. Þátttaka í stjórnun innan Háskóla Íslands.
  4. Þjónusta - tengsl við atvinnu- og þjóðlíf. Virk tengsl umsækjanda við atvinnu- og þjóðlíf í krafti sérþekkingar sinnar og í þágu hlutverks og stefnu Háskóla Íslands styrkja umsókn um framgang. Meta skal hvernig þessi tengsl nýtast Háskóla Íslands, hvort sem er í rannsóknum, kennslu og námi eða til að styrkja orðspor og kynningu háskólans út á við.

Dóm- og framgangsnefnd fræðasviðs getur við sérstakar aðstæður gert meiri eða minni kröfur um lágmarksstig ef talin er ástæða til. Víki mat dóm- og framgangsnefndar fræðasviðs frá viðmiðum um stigafjölda fyrir einhvern starfsþátt kennara eða sérfræðinga eða frá öðrum kröfum, sem gerðar eru við framgang á milli starfsheita, þarf að rökstyðja það sérstaklega.

Tafla 1
Lágmarksstig fyrir hvern starfsþátt kennara

 

Rannsóknir

Kennsla

Stjórnun, þjónusta, annað

Mismunur

Alls

Lektor

30      

-

-

0       

30      

Dósent

130      

20

-

50       

200      

Prófessor

270      

50

-

80       

400      

Tafla 2
Lágmarksstig fyrir hvern starfsþátt sérfræðinga og fræðimanna

 

Rannsóknir

Kennsla

Stjórnun, þjónusta, annað

Mismunur

Alls

Sérfræðingur

30       

-

-

0       

30      

Fræðimaður

150       

-

-

50       

200      

Vísindamaður

320       

-

-

80       

400      

Tafla 3
Lágmarksstig úr tilgreindum flokkum rannsóknahluta matskerfis

 

Ritrýndar bækur (yfir 25 stig)
ISI greinar
Aðrar ritrýndar greinar
Greinar í alþjóðlegum ráðstefnuritum
Bókarkaflar, alþjóðlegar akademískar útgáfur

Lektor/sérfræðingur

-

Dósent/fræðimaður

80/90

Prófessor/vísindamaður

180/200

7. gr.

Tímabundin ráðning.

Í samræmi við 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands skal upphafleg ráðning akademískra starfsmanna að jafnaði vera tímabundin til fimm ára, hvort sem um er að ræða fullt starf eða hlutastarf. Við sérstakar aðstæður, svo sem þegar um er að ræða veikinda- eða barnsburðarleyfi, er forseta fræðasviðs heimilt að framlengja tímabundna ráðningu um allt að tvö ár.

8. gr.

Umsókn um ótímabundna ráðningu.

Hyggist akademískur starfsmaður óska eftir ótímabundinni ráðningu skal hann sækja um það til rektors eigi síðar en níu mánuðum áður en tímabundinni ráðningu lýkur. Með umsókn skal leggja fram greinargerð, að hámarki þrjár blaðsíður, um störf við Háskóla Íslands frá upphafi tímabundinnar ráðningar við rannsóknir, kennslu, stjórnun og þjónustu. Með umsókn skal einnig fylgja rita- og ferilskrá, helstu ritverk sem birt hafa verið og kennsluferilskrá. Umsóknargögn skulu takmarkast við hina tímabundnu ráðningu. Umsækjandi skal einnig nefna a.m.k. fjóra utanaðkomandi sérfræðinga sem geta veitt umsögn um verk hans

Rektor sendir umsókn um ótímabundna ráðningu til forseta fræðasviðs sem aflar umsagnar dóm- og framgangsnefndar fræðasviðs um umsóknina. Að fengnu áliti dóm- og framgangsnefndar fræðasviðs er umsókn send framgangsnefnd Háskóla Íslands sem fer yfir umsóknina og álit dóm- og framgangsnefndar og gerir tillögu til rektors og forseta fræðasviðs um hvort umsækjandi skuli ráðinn ótímabundinni ráðningu.

9. gr.

Mat á störfum og ákvörðun um ótímabundna ráðningu.

Dóm- og framgangsnefnd fræðasviðs og framgangsnefnd Háskóla Íslands meta störf umsækjanda og gera rökstudda tillögu til forseta fræðasviðs og rektors um hvort ráða beri umsækjanda ótímabundið.

Við mat á störfum umsækjanda skal byggja á þeim sjónarmiðum sem tilgreind eru í 6. gr. reglna þessara. Gerð er krafa um 40 rannsóknastig á síðustu fimm árum fyrir kennara, en 50 rannsóknastig á fimm árum fyrir sérfræðinga, fræðimenn og vísinda­menn, úr tilgreindum flokkum matskerfis Háskóla Íslands, sbr. 1. tölul. 2. mgr. 6. gr., meðan á tímabundinni ráðningu stendur. Einnig skal umsækjandi um ótímabundna ráðningu hafa lokið stuttu námskeiði í kennsluaðferðum og –tækni við Kennslumiðstöð Háskóla Íslands eða hafa hlotið hliðstæða þjálfun á öðrum viðurkenndum vettvangi.

Veita skal umsækjanda 14 daga frest til þess að tjá sig um tillögu framgangsnefndar Háskóla Íslands.

Rektor tekur ákvörðun, að fenginni tillögu framgangsnefndar Háskóla Íslands, um hvort ráðning verður ótímabundin. Niðurstaða rektors skal liggja fyrir þremur mánuðum áður en tímabundinni ráðningu umsækjanda lýkur. Forseti fræðasviðs annast ráðningu akademískra starfsmanna sem ráðnir eru ótímabundið að fenginni niðurstöðu rektors.

10. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglur þessar eru settar á grundvelli heimildar í 4. mgr. 4. gr., 5. mgr. 15. gr. og 1. og 3. mgr. 17. gr. laga um opinbera háskóla nr. 85/2008.

Reglur þessar öðlast gildi 1. apríl 2010. Frá sama tíma falla úr gildi reglur um framgang kennara, sérfræðinga og fræðimanna við Háskóla Íslands, nr. 863/2001 og reglur félagsvísindadeildar Háskóla Íslands um ráðningu og framgang akademískra starfs­manna, nr. 909/2007. Reglur læknadeildar Háskóla Íslands um ráðningu og fram­gang starfsmanna með hæfnisdóm, nr. 498/2002, halda gildi sínu uns nýjar reglur hafa verið settar fyrir einstök fræðasvið, sbr. 2. mgr. 1. gr. reglna þessara. Um umsóknir um framgang sem berast Háskóla Íslands fyrir 1. apríl 2010 gilda ákvæði eldri reglna nr. 863/2001 og 498/2002. Ákvæði 2. mgr. 9. gr. reglna þessara taka einungis til þeirra starfs­manna sem ráðnir verða tímabundið eftir 1. apríl 2010.

Háskóla Íslands, 15. mars 2010.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 29. mars 2010