Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 133/2009

Nr. 133/2009 19. janúar 2009
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um Kvikmyndasjóð nr. 229/2003 með síðari breytingum.

1. gr.

12. gr. orðast svo:

Framleiðslustyrkur til leikinnar kvikmyndar í fullri lengd til sýningar í kvikmyndahúsi er greiddur þannig:

  1. 5% við undirritun úthlutunarsamnings,
  2. 92% á fyrsta tökudegi aðaltökutímabils, og
  3. 3% þegar framleiðandi skilar uppgjöri og fylgigögnum, sbr. 2. mgr. 14. gr.

Framleiðslustyrkir til annarra flokka kvikmynda skulu greiddir í hlutum eftir framvindu verks samkvæmt ákvæðum úthlutunarsamnings.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 7. gr. kvikmyndalaga nr. 137/2001 og öðlast þegar gildi.

Menntamálaráðuneytinu, 19. janúar 2009.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Halldór Árnason.

B deild - Útgáfud.: 9. febrúar 2009