Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 184/2010

Nr. 184/2010 15. febrúar 2010
SAMÞYKKT
um stjórn og fundarsköp Húnavatnshrepps.

I. KAFLI

Um skipan hreppsnefndar og verkefni hennar.

1. gr.

Fjöldi hreppsnefndarmanna.

Hreppsnefnd Húnavatnshrepps er skipuð sjö hreppsnefndarmönnum kjörnum samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.

2. gr.

Starfstími hreppsnefndar.

Starfstímabil hreppsnefndar hefst 15 dögum eftir kjördag í hreppsnefndarkosningum og gildir til jafnlengdar að fjórum árum liðnum.

3. gr.

Starfssvið hreppsnefndar.

Hreppsnefnd fer með stjórn Húnavatnshrepps samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga. Jafnframt fer hreppsnefndin með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum hreppsins að svo miklu leyti sem hreppsnefnd hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn.

4. gr.

Annað starfssvið hreppsnefndar.

Hreppsnefnd skal gæta hagsmuna hreppsins og vera í fyrirsvari fyrir hann og vinna að sameiginlegum velferðarmálum hreppsbúa.

5. gr.

Verkefni hreppsnefndar.

Hreppsnefnd annast þau verkefni sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og sam­þykktum. Þá getur hreppsnefnd ákveðið að hreppurinn taki að sér verkefni sem varðar íbúa hans sérstaklega enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum.

6. gr.

Önnur verkefni hreppsnefndar.

Meðal verkefna hreppsnefndar Húnavatnshrepps er:

  1. Að kjósa oddvita og varaoddvita hreppsnefndar, nefndir, ráð og stjórnir skv. IV. kafla samþykktar þessarar, kjósa skoðunarmenn til að yfirfara ársreikninga hreppsins og ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem vinna skal að endurskoðun hjá hreppnum.
  2. Að setja samþykktir og gjaldskrár eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
  3. Að stjórna fjármálum hreppsins, stofnana hans og fyrirtækja skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga, sbr. og VI. kafla samþykktar þessarar.
  4. Að ákveða stjórnkerfi hreppsins og ráða starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá hreppnum.

II. KAFLI

Um fundarsköp hreppsnefndarinnar.

7. gr.

Um fundi hreppsnefndar.

Hreppsnefnd heldur reglulega fundi einu sinni í mánuði, að jafnaði fyrsta miðvikudag hvers mánaðar. Heimilt er að fella niður fundi í hreppsnefnd í allt að tvo mánuði að sumarlagi.

Aukafundi skal halda í hreppsnefnd eftir því sem þörf krefur að mati oddvita og sveitarstjóra og skylt er að halda aukafund í hreppsnefnd ef a.m.k. þriðjungur hreppsnefndarmanna krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.

8. gr.

Fyrsti fundur nýkjörinnar hreppsnefndar.

Sá hreppsnefndarmaður sem á að baki lengsta setu í sveitarstjórn kveður hrepps­nefndina saman til fyrsta fundar að afloknum hreppsnefndarkosningum eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum, þ.e. eigi síðar en 30 dögum eftir kjördag og stýrir fundi þar til oddviti hefur verið kjörinn.

Hafi tveir eða fleiri hreppsnefndarmenn átt jafnlengi setu í sveitarstjórn fer aldursforseti þeirra með verkefni skv. 1. mgr.

9. gr.

Dagskrá hreppsnefndarfunda.

Sveitarstjóri semur dagskrá hreppsnefndarfundar í samráði við oddvita og skal dagskráin fylgja fundarboði.

Á dagskrá hreppsnefndarfundar skal taka:

  1. Lögákveðnar kosningar, svo sem kosningu oddvita og varaoddvita, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum hreppsins, svo og ráðningar starfsmanna í helstu stjórnunarstöður hjá hreppnum.
  2. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna á vegum hreppsins, sbr. 49. gr. sveitar­stjórnarlaga.
  3. Önnur mál sem falla undir verksvið hreppsnefndar og oddviti ákveður að taka á dagskrá eða einhver hreppsnefndarmaður óskar að tekin verði á dagskrá. Hreppsnefndarmaður sem óskar að fá mál tekið á dagskrá hreppsnefndarfundar skal tilkynna það oddvita skriflega með tillögu eða fyrirspurn a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.

Dagskrá hreppsnefndarfundar skal fylgja afrit fundargerða, tillagna og annarra gagna sem oddviti telur nauðsynleg til að hreppsnefndarmenn geti undirbúið sig fyrir fundinn.

10. gr.

Boðun hreppsnefndarfunda.

Sveitarstjóri boðar hreppsnefndarfundi, sbr. þó 8. gr. og 12. gr. samþykktar þessarar. Skal hann hafa sent hreppsnefndarmönnum fundarboð ásamt dagskrá og fylgigögnum þannig að þau gögn berist þeim í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir hreppsnefnd­ar­fund.

11. gr.

Auglýsing hreppsnefndarfunda.

Dagskrá hreppsnefndarfundar skal vera aðgengileg íbúum hreppsins þegar hún hefur verið samin, svo sem á auglýsingatöflu hreppsins, skrifstofu hreppsins á venjulegum afgreiðslutíma eða með öðrum hætti sem hreppsnefndin ákveður.

Íbúum hreppsins skal kunngert með auglýsingu hvar og hvenær hreppsnefndarfundir eru haldnir. Miðað skal við að sem flestir íbúar hreppsins hafi greiðan aðgang að auglýsing­unni.

Í upphafi kjörtímabils hreppsnefndar tekur hreppsnefndin ákvörðun um hvernig fundir hennar verði auglýstir og með hvaða fyrirvara. Skal sú ákvörðun kynnt íbúum hreppsins með tryggum hætti, svo sem í dreifibréfi eða auglýsingu í staðbundnu fréttablaði.

12. gr.

Aukafundir.

Sveitarstjóri skal senda hreppsnefndarmönnum fundarboð aukafundar í hreppsnefnd þannig að það berist þeim ásamt dagskrá a.m.k. tveimur sólarhringum fyrir fund.

13. gr.

Um kjör oddvita og varaoddvita.

Sá hreppsnefndarmaður er boðar til fyrsta fundar skv. 8. gr. setur fyrsta fund nýkjörinnar hreppsnefndar og stýrir honum uns oddviti hefur verið kjörinn.

Oddviti hreppsnefndar skal kjörinn til eins árs. Ef oddviti nýtur ekki lengur stuðnings meirihluta hreppsnefndarmanna, skal hann víkja sæti og oddvitakjör fara fram á ný.

Sá er rétt kjörinn oddviti sem fengið hefur atkvæði meirihluta hreppsnefndarmanna. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri hreppsnefndarmenn fengið jafnmörg atkvæði skal varpa hlutkesti um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn oddviti sem fleiri atkvæði fær þó hann fái ekki helming atkvæða. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti kosningu.

Oddviti stjórnar kjöri varaoddvita hreppsnefndar og skal sömu aðferð beitt við kosningu hans, sbr. 3. mgr. Varaoddviti skal kjörinn til jafnlangs tíma og oddviti.

Tilkynna skal kjör oddvita og varaoddvita til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins þegar að því loknu.

Sé enginn oddvita á fundi gegnir aldursforseti störfum oddvita nema hreppsnefnd ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra.

Ef oddviti deyr eða verður varanlega forfallaður frá störfum skal kjósa oddvita í hans stað til loka kjörtímabils oddvita.

14. gr.

Fundarritarar.

Hreppsnefnd kýs tvo skrifara og tvo varaskrifara úr hópi hreppsnefndarmanna til eins árs í senn á sama fundi og kosning oddvita fer fram. Skrifarar skulu telja saman atkvæði við kosningar og þegar atkvæðagreiðslur fara fram í hreppsnefndinni.

15. gr.

Fundargerðir.

Hreppsnefnd getur ráðið sérstakan fundarritara utan hreppsnefndar til að annast ritun fundargerða í gerðabók hreppsnefndar. Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð hreppsnefndar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða.

Mál sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi skal skrá sem trúnaðarmál.

Í lok fundar skal fundargerð lesin upp og skulu allir viðstaddir fundarmenn undirrita hana nema hreppsnefnd ákveði annað.

Hreppsnefnd getur ákveðið að fundargerðir verði skráðar í tölvu. Verði það gert skal bóka í gerðabók hreppsnefndarinnar númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerða. Viðstaddir hreppsnefndarmenn skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Í lok fundarins skal tölvuskráð fundargerð prentuð út og hún undirrituð af fundarmönnum. Einnig skal oddviti og a.m.k. einn fundarmanna setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerða sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð. Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varðveislu.

Hreppsnefndarmaður sem gera vill athugasemd við eitthvert atriði í fundargerð getur undirritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði.

Hreppsnefnd getur ákveðið að umræður á hreppsnefndarfundum verði hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti. Verði það ákveðið skal hreppsnefnd setja um það nánari reglur.

16. gr.

Opnir fundir.

Hreppsnefndarfundi skal að jafnaði halda í heyranda hljóði og almenningi heimilaður aðgangur að þeim eftir því sem húsrúm leyfir.

Hreppsnefndarfundur skal haldinn í húsnæði sem fullnægir ákvæðum skipulags- og byggingarlaga og byggingarreglugerðar um aðgang fatlaðs fólks.

Hreppsnefnd getur ákveðið að einstök mál verði rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis málsins, svo sem viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál sem æskilegt er vegna hagsmuna hreppsins að rædd verði fyrir luktum dyrum. Jafnframt getur hreppsnefndin ákveðið að hreppsnefndarfundur þar sem eingöngu er fjallað um slík mál verði haldinn fyrir luktum dyrum. Tillaga um að mál skuli rædd fyrir luktum dyrum skal afgreidd umræðulaust í hreppsnefnd.

Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í hreppsnefnd.

17. gr.

Ályktunarhæfi og atkvæðagreiðsla.

Hreppsnefndarfundur er lögmætur ef meira en helmingur hreppsnefndarmanna er mættur á fundinn og getur hreppsnefndin enga bindandi ályktun gert nema hreppsnefndarfundur sé lögmætur.

18. gr.

Hlutverk oddvita.

Oddviti hreppsnefndar stýrir fundum hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Jafnframt sér hann um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók hreppsnefndarinnar og að allar ályktanir og samþykktir séu rétt og nákvæmlega bókaðar.

Oddviti úrskurðar um skilning á fundarsköpum, en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar hreppsnefndar. Oddviti sér um að allt fari skipulega og löglega fram á hreppsnefndarfundum og er hreppsnefndarmönnum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp og góða reglu. Raski áheyrandi fundarfriði getur oddviti vísað honum úr fundarsal. Leyfi oddvita þarf til að taka myndir og hljóðrita umræður á hreppsnefndarfundum.

19. gr.

Umræður í hreppsnefnd.

Mál skulu tekin til umræðu og afgreiðslu í hreppsnefnd í þeirri röð sem þau eru á dagskrá, nema oddviti eða hreppsnefnd ákveði annað.

Heimilt er að taka til meðferðar á hreppsnefndarfundi mál sem ekki hefur verið á dagskrá ef 2/3 viðstaddra hreppsnefndarmanna samþykkja slíkt afbrigði.

20. gr.

Tvær umræður í hreppsnefnd.

Hreppsnefnd afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni:

  1. Fjárhagsáætlanir hreppsins, stofnana hans og fyrirtækja.
  2. Ársreikninga hreppsins, stofnana hans og fyrirtækja.
  3. Samþykktir, reglugerðir og gjaldskrár sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.
  4. Áætlanir fyrir hreppinn sem gilda eiga til lengri tíma, svo sem þriggja ára áætlanir og skipulags- og framkvæmdaáætlanir.
  5. Tilkynningu til eftirlitsnefndar skv. 75. gr. sveitarstjórnarlaga.

21. gr.

Mæting á fundi.

Hreppsnefndarmanni er skylt að sækja alla hreppsnefndarfundi nema lögmæt forföll hamli, svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi.

Sé hreppsnefndarmaður forfallaður um stundarsakir skal hann tilkynna eða láta tilkynna forföllin til oddvita sem boðar þá varamann hans á fund. Varamenn taka sæti í hreppsnefnd í þeirri röð sem þeir eru kosnir.

Hreppsnefnd getur heimilað einstaklingi utan hreppsnefndar að taka til máls á hreppsnefndarfundi.

22. gr.

Hæfi hreppsnefndarmanna.

Hreppsnefndarmanni ber að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af.

Hreppsnefndarmenn eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum hreppsnefndarinnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf.

Hreppsnefndarmenn sem jafnframt eru starfsmenn hreppsins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir hreppsnefndina eru alltaf vanhæfir þegar hreppsnefndin fjallar um málið. Þetta á þó hvorki við um oddvita né þegar hreppsnefndin fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga hreppsins.

Hreppsnefndarmanni sem veit hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli hreppsnefndar á því. Hreppsnefndarmanni er heimilt við meðferð máls sem hann er vanhæfur að afgreiða að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Hreppsnefnd sker umræðulaust úr um hvort mál er svo vaxið að einhver hreppsnefndarmanna sé vanhæfur. Hreppsnefndarmaður sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt.

Hreppsnefndarmaður sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal hreppsnefndar við meðferð og afgreiðslu þess.

23. gr.

Málfrelsi, tillöguréttur, atkvæðisréttur o.fl.

Hreppsnefndarmaður hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á hreppsnefndarfundum. Að jafnaði skulu hreppsnefndarmenn taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða sveitarstjóra, framsögumann í máli eða hreppsnefndarmann sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri. Hafi tveir eða fleiri hreppsnefndarmenn kvatt sér hljóðs samtímis ákveður oddviti í hvaða röð þeir skuli tala. Hreppsnefndarmaður skal flytja mál sitt úr ræðustól nema oddviti leyfi annað.

Hreppsnefndarmaður skal beina máli sínu til oddvita eða fundarins. Þegar til umræðu er fundargerð nefndar, ráðs eða stjórnar skal hreppsnefndarmaður taka fram hvaða lið/liði fundargerðarinnar hann óskar að ræða.

Beri hreppsnefndarmaður aðra menn brigslum skal oddviti víta hann. Oddviti getur lagt til við hreppsnefnd að hreppsnefndarmaður sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust. Hlýðnist hreppsnefndarmaður ekki úrskurði oddvita eða hreppsnefndar eða ef óregla kemur upp á fundi skal oddviti gera fundarhlé, fresta fundi eða slíta fundi ef nauðsyn krefur.

Telji oddviti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers hreppsnefndarmanns verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver hreppsnefndarmaður getur og borið fram slíkar tillögur. Hreppsnefnd afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún standi skemur en tvær klukkustundir ef einhver hreppsnefndarmaður kveður sér hljóðs. Umræður um fjárhagsáætlun eru ekki háðar ákvæðum þessarar málsgreinar.

24. gr.

Breytingartillögur.

Hreppsnefndarmaður getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar ef oddviti óskar. Oddviti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu.

25. gr.

Afgreiðsla mála í hreppsnefnd.

Mál er afgreitt í hreppsnefnd með því að samþykkja það eða fella það, vísa því frá hreppsnefnd eða vísa því til afgreiðslu nefndar, ráðs eða stjórnar eða oddvita. Máli sem hreppsnefnd ber að lögum að afgreiða verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra. Hreppsnefnd er heimilt að fresta afgreiðslu máls nema um sé að ræða mál sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma.

Atkvæðagreiðsla á hreppsnefndarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Oddviti biður þá hreppsnefndarmenn sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar oddviti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir oddviti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.

Ef mál er svo vaxið að oddviti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.

Oddviti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber oddvita að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur hreppsnefndarmanna óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá hreppsnefndarmanna í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða hreppsnefndarmaður greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal oddviti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar hreppsnefndarmaður, þegar oddviti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæðagreiðslu.

Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef hreppsnefndarmaður óskar og hreppsnefnd samþykkir.

Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar.

Á hreppsnefndarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu.

Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og móti því fellur það, en við kosningar ræður hlutkesti.

Kosningar sem fara fram í hreppsnefnd skulu vera hlutfallskosningar skv. d’Hondts reglu, sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við oddvitakjör.

III. KAFLI

Um réttindi og skyldur hreppsnefndarmanna.

26. gr.

Mæting á fundi.

Hreppsnefndarmanni er bæði rétt og skylt að sækja fundi hreppsnefndar nema lögmæt forföll hamli.

Aðal- og varamönnum í hreppsnefnd er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum hreppsins. Hver hreppsnefndarmaður er skyldur til að taka að sér þau störf sem hreppsnefnd felur honum og varða verkefni hreppsnefndarinnar, svo sem oddvitastörf. Þó getur sá sem verið hefur oddviti eitt kjörtímabil eða lengur eða setið í nefnd sama tímabil skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi.

27. gr.

Afstaða til einstakra mála.

Sveitarstjórnarmanni ber að gegna störfum sínum í sveitarstjórn af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna Húnavatnshrepps, en í störfum sínum er sveitarstjórnarmaður einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni.

Vilji sveitarstjórnarmaður ekki una úrskurði oddvita varðandi stjórn og fundarsköp getur hann skotið úrskurðinum til sveitarstjórnar sem sker úr án umræðu.

28. gr.

Málfrelsi, tillöguréttur, atkvæðisréttur o.fl.

Hreppsnefndarmaður hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum hreppsnefndar eftir því sem nánar er ákveðið í samþykkt þessari.

Hreppsnefndarmanni er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök mál. Þegar um er að ræða mál sem hreppsnefnd er að lögum skylt að afgreiða, svo sem fjárhagsáætlun, ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir, getur oddviti ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu ef minna en helmingur hreppsnefndarmanna tekur þátt í atkvæðagreiðslunni.

Hreppsnefndarmaður á rétt á að fá mál skv. 4. og 5. gr. samþykktar þessarar tekið á dagskrá hreppsnefndarfundar enda tilkynni hann það oddvita skriflega a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.

29. gr.

Aðgangur að gögnum.

Hreppsnefndarmaður á aðgang að bókum og skjölum hreppsins og einnig óhindraðan aðgang að stofnunum og fyrirtækjum hans á venjulegum afgreiðslutíma til upplýsingaöflunar vegna starfa sinna.

30. gr.

Bókanir í fundargerð.

Hreppsnefndarmaður á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til þeirra mála sem til umræðu eru í hreppsnefnd.

31. gr.

Þagnarskylda.

Hreppsnefndarmaður skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst áfram eftir að hreppsnefndarmaður lætur af þeim störfum.

32. gr.

Lausn frá störfum.

Nú telur hreppsnefndarmaður sig ekki geta gegnt skyldum sínum í hreppsnefndinni án óhæfilegs álags og getur hreppsnefndin þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá sæti hans skv. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

Missi hreppsnefndarmaður kjörgengi skal hann víkja úr hreppsnefndinni, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

Nú er hreppsnefndarmaður af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði, svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta, og skal hreppsnefndin þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.

33. gr.

Þóknun og ferðakostnaður.

Hreppsnefndarmaður skal fá hæfilega þóknun úr sveitarsjóði fyrir störf sín í hreppsnefnd. Ef um langan veg er að fara milli heimilis hreppsnefndarmanns og fundarstaðar hreppsnefndar, getur hreppsnefndin auk þess ákveðið að hann skuli fá hæfilega greiðslu vegna ferðakostnaðar. Takist hreppsnefndarmaður á hendur ferð á vegum hreppsins samkvæmt ákvörðun hreppsnefndarinnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.

Hreppsnefnd setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.

34. gr.

Orlof.

Haga skal fundum hreppsnefndar þannig að hreppsnefndarmenn eigi möguleika á að taka sér orlof árlega.

35. gr.

Varamenn.

Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur hreppsnefndarmanna gilda einnig um varamenn sem taka sæti í hreppsnefndinni.

IV. KAFLI

Nefndir, ráð og stjórnir.

36. gr.

Kosning fulltrúa.

Hreppsnefnd kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar. Slíkar kosningar skulu vera leynilegar bundnar hlutfallskosningar ef einhver hreppsnefndarmaður óskar þess.

Starfsmenn fyrirtækja og stofnana hreppsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana er þeir starfa hjá.

37. gr.

Boðun nefndarfunda.

Á fyrsta fundi nefndar skal kjósa formann, varaformann og ritara nefndar, nema lög eða hreppsnefndin ákveði annað.

Sveitarstjóri boðar nefnd saman til fyrsta fundar eða ákveður hver skuli gera það, nema formaður hafi áður verið valinn af hreppsnefnd. Formaður nefndar boðar eða lætur boða fundi í nefnd með a.m.k. eins sólarhrings fyrirvara.

38. gr.

Forföll nefndarmanna.

Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Þegar aðalmaður í nefnd forfallast um stundarsakir skal varamaður hans taka sæti í nefndinni. Þegar aðalmaður í nefnd flyst burt úr hreppnum, fellur frá eða forfallast á annan hátt varanlega tekur varamaður hans sæti nema hreppsnefndin ákveði að kjósa aðalmann að nýju.

39. gr.

Lokaðir fundir.

Nefndarfundur skal haldinn fyrir luktum dyrum. Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn hreppsins. Ennfremur getur nefnd boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál.

40. gr.

Formaður nefndar stýrir fundum.

Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði II. og III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum hreppsins eftir því sem við á.

41. gr.

Hlutverk nefndar.

Um hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og stjórna á vegum hreppsins fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum eða samþykktum hreppsnefndar.

Hreppsnefnd getur falið nefnd fullnaðarafgreiðslu einstakra mála eða málaflokka nema slíkt vald sé að lögum sérstaklega falið hreppsnefnd til ákvörðunar.

42. gr.

Fundarritarar nefndar.

Nefndir, ráð og stjórnir hreppsins skulu halda gerðabækur. Kjörinn ritari nefndar skal færa fundargerð í gerðabók. Nefnd getur þó ráðið sér sérstakan fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða hreppsnefndarinnar, sbr. 15. gr.

43. gr.

Fundargerðir nefndar.

Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna hreppsins skulu teknar á dagskrá hreppsnefndar og skal það gert svo fljótt sem unnt er að afloknum nefndarfundi. Ef fundargerðir innihalda ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar staðfestingar hreppsnefndarinnar eru fundargerðirnar lagðar fram til kynningar. Ef ályktanir eða tillögur þarfnast staðfestingar hreppsnefndarinnar ber að taka þær sérstaklega fyrir. Hafi ályktun nefndar, ráðs eða stjórnar í för með sér fjárútlát umfram áður veittar heimildir skal ályktunin ætíð lögð fyrir hreppsnefndina.

44. gr.

Nefndarskipan.

Hreppsnefnd kýs fulltrúa í eftirtaldar nefndir, ráð, stjórnir og embætti.

A. Hreppsnefnd kýs fulltrúa í eftirtaldar nefndir, ráð, stjórnir og embætti til eins árs á fyrsta fundi að afloknum hreppsnefndarkosningum:

  1. Oddvitakjör: Oddviti og varaoddviti samkvæmt 14. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
  2. Fulltrúi á fundi SSNV: Þrír aðalmenn og þrír til vara.
    Til fjögurra ára:
  3. Kjörstjórn: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara samkvæmt 10. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 og 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998.
    Kjörstaður: Húnavellir.

B. Hreppsnefnd kýs fulltrúa í eftirtaldar nefndir, ráð, stjórnir og embætti til fjögurra ára á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum hreppsnefndarkosningum:

  1. Félagsmálanefnd: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.
  2. Fræðslunefnd: Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Fræðslunefnd fer með málefni grunnskóla samkvæmt 6. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008. Undir nefndina heyra einnig málefni leikskóla og önnur fræðslumál í sveitarfélaginu.
  3. Atvinnumála- og samgöngunefnd: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara. Undir nefndina heyra atvinnumál og samgöngumál sveitarfélagsins.
  4. Skipulagsnefnd: Hreppsnefnd fer með málefni skipulagsnefndar.
  5. Byggingar- og umhverfisnefnd: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin starfar skv 6. gr. skipulags og byggingarlaga nr. 73/1997 og umhverfismálum almennt.
  6. Menningarmála-, íþrótta- og æskulýðsnefnd: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndinni er ætlað að fara með æskulýðs- og menningarmál. Skal nefndin starfa í nánum tengslum við hin frjálsu félög í sveitarfélaginu og stuðla þannig að samþættingu æskulýðs-, tómstunda- og menningarstarfs meðal íbúa Húnavatnshrepps.
  7. Jafnréttisnefnd: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 12. gr. laga um jafna stöðu og rétt kvenna og karla nr. 10/2008.
  8. Fjallskilanefndir:
 

a)

Fjallskiladeild Bólstaðarhlíðarhrepps og Upprekstrarfélags Eyvindarstaða­heiðar. Þrír aðalmenn og þrír til vara.

 

b)

Fjallskiladeild Auðkúluheiðar. Þrír aðalmenn og þrír til vara.

 

c)

Fjallskiladeild Grímstungu- og Haukagilsheiða. Þrír aðalmenn og þrír til vara.

 

Fjallskilanefndir fara með fjallskilamál skv. lögum um afréttamálefni nr. 6/1986, með síðari breytingum og fjallskilasamþykktir fyrir Austur-Húnavatnssýslu, nr. 299/2009.

  1. Hússtjórnir:

     

    a)

    Húnavers. Þrír aðalmenn og þrír til vara.

     

    b)

    Dalsmynnis. Þrír aðalmenn og þrír til vara.

    1. Byggðasamlag um Félags- og skólaþjónustu Austur-Húnvetninga: Einn aðalmaður og einn til vara.
    2. Byggðasamlag um Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga: Einn aðalmaður og einn til vara.
    3. Byggðasamlag um menningar- og atvinnumál í Autstur-Húnavatnssýslu: Einn aðalmaður og einn til vara.
    4. Búfjáreftirlits- og fjallskilanefnd Austur-Húnavatnssýslu: Fer með yfirstjórn allra fjallskilamála samkvæmt lögum um afréttamálefni, fjallskil o.fl. nr. 6/1986, með síðari breytingum og fjallskilasamþykkt fyrir Austur-Húnavatnssýslu nr. 299/2009. Einn aðalmaður og einn til vara.
    5. Gróður- og náttúruverndarnefnd Austur-Húnavatnssýslu: Einn aðalmaður og einn til vara.
    6. Héraðsbókasafn Austur-Húnvetninga: Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara.
    7. Brunavarnir Austur-Húnavatnssýslu: Einn aðalmaður og einn til vara.
    8. Skoðunarmen: Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, og skulu þeir kosnir á fyrsta fundi nýkjörinnar hreppsnefndar.
    9. Þing Sambands íslenskra sveitarfélaga: Einn aðalmaður og einn til vara.

    C. Á vettvangi Byggðasamlags um menningar- og atvinnumál í Austur-Húnavatnssýslu er kosið í eftirtaldar nefndir:

    1. Stjórn byggðasafnsins á Reykjum.
    2. Fulltrúaráð Farskóla Norðurlands vestra.
    3. Skólanefnd Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
    4. Almannavarnarnefnd Húnavatnssýslna: Skv. 9. gr. laga um almannavarnir nr. 82/2008.

    Á vettvangi Byggðasamlags um Félags- og skólaþjónustu Austur-Húnvetninga er kosið í eftirtalda nefnd.

    1. Þjónustuhópur aldraðra: Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 7. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999.

    45. gr.

    Afmörkuð verkefni.

    Hreppsnefnd getur kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur niður við lok kjörtímabils hreppsnefndarinnar og fyrr ef verkefni nefndar er lokið. Hreppsnefnd getur einnig afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er.

    V. KAFLI

    Um framkvæmdastjórn og starfslið hreppsins.

    46. gr.

    Ráðning sveitarstjóra.

    Hreppsnefnd ræður sveitarstjóra. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við sveitarstjóra þar sem m.a. skal kveðið á um ráðningartíma hans, kaup og kjör. Ráðningarsamningur skal staðfestur af hreppsnefnd.

    47. gr.

    Verksvið sveitarstjóra.

    Sveitarstjóri er framkvæmdastjóri sveitarfélagsins. Hann undirbýr fundi hreppsnefndar, semur dagskrá og boðar til funda. Hann á sæti á fundum hreppsnefndar og hefur þar málfrelsi og tillögurétt en eigi atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn. Hann hefur og rétt til setu á fundum nefnda sveitarfélagsins með sömu réttindum.

    Sveitarstjóri hefur á hendi framkvæmd ákvarðana hreppsnefndar og annarra málefna sveitarfélagsins að svo miklu leyti sem hreppsnefnd hefur ekki ákveðið annað.

    Sveitarstjóri er prókúruhafi sveitarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og aðrar skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki hreppsnefndar þarf til.

    Sveitarstjóri er æðsti yfirmaður starfsliðs sveitarfélagsins.

    Hreppsnefnd ákveður hver gegna skuli störfum sveitarstjóra í forföllum hans.

    48. gr.

    Ráðning annarra starfsmanna.

    Hreppsnefnd ræður fasta starfsmenn sveitarfélagsins og veitir þeim lausn frá störfum. Þetta á þó ekki við um lausráðna verkamenn, afleysingamenn og aðra þá starfsmenn sem eigi eru ráðnir með þriggja mánaða uppsagnarfresti.

    49. gr.

    Fastráðnir starfsmenn.

    Fastráðnir starfsmenn sveitarfélagsins skulu ráðnir til óákveðins tíma með gagnkvæmum þriggja mánaða uppsagnarfresti miðað við mánaðamót. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við fastráðna starfsmenn, þar sem m.a. skal kveðið á um ráðningartíma og uppsagnarfrest, sbr. 1. málslið, svo og starfssvið þeirra. Um starfskjör, réttindi og skyldur þeirra fer eftir ákvæðum kjarasamninga og/eða ákvæðum ráðningarsamninga. Um ráðningu lausráðinna starfsmanna sem eigi eru ráðnir með þriggja mánaða uppsagnarfresti fer eftir reglum sem hreppsnefnd setur. Um kaup og kjör fer eftir kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga.

    VI. KAFLI

    Um fjármálastjórn hreppsins.

    50. gr.

    Fjárhagsáætlun.

    Fyrir lok desembermánaðar ár hvert skal hreppsnefnd afgreiða fjárhagsáætlun sveitarsjóðs, fyrirtækja og stofnana hreppsins fyrir næsta ár að undangengnum tveimur umræðum í hreppsnefnd. Ef ekki tekst að afgreiða fjárhagsáætlun fyrir lok frestsins skal sækja skriflega um frest til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og tilgreina ástæður fyrir umsókninni.

    Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreiknings. Í fjárhagsáætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga.

    Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur hreppsnefnd ákvarðanir um nýtingu tekjustofna sveitarsjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár ef um það er að ræða og um ráðstöfun fjármuna á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhagsáætlunar hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu sveitarsjóðs í byrjun fjárhagsársins.

    Hreppsnefndin skal árlega gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld hreppsins, þar með talin rekstrarútgjöld, fari ekki fram úr heildartekjum hans.

    51. gr.

    Útgjöld úr sveitarsjóði.

    Fjárhagsáætlun skv. 50. gr. skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn hreppsins á fjárhagsárinu og ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr sveitarsjóði, nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöldin séu lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af hreppsnefndinni.

    Samþykki hreppsnefnd fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar skal hún jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda, svo sem með lækkun annarra útgjalda, auknum tekjum eða lánsfé. Samþykki slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhagsáætluninni.

    52. gr.

    Endurskoðuð áætlun.

    Hafi forsendur fyrir gerð fjárhagsáætlunar breyst er hreppsnefnd heimilt að endurskoða fjárhagsáætlunina. Slíkar breytingar afgreiðir hreppsnefnd við eina umræðu á hreppsnefndarfundi, enda hafi breytingartillögurnar verið sendar öllum fulltrúum í hreppsnefnd með dagskrá viðkomandi hreppsnefndarfundar.

    53. gr.

    Þriggja ára áætlun.

    Til viðbótar árlegri fjárhagsáætlun skal hreppsnefnd semja og fjalla um þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál hreppsins. Þessi þriggja ára áætlun skal vera rammi um árlegar fjárhagsáætlanir hreppsins. Skal hún unnin og afgreidd af hreppsnefnd innan tveggja mánaða frá afgreiðslu árlegrar fjárhagsáætlunar.

    54. gr.

    Skil á fjárhagsáætlun til ráðuneytisins.

    Strax að lokinni afgreiðslu hreppsnefndar skal senda samgöngu- og sveitarstjórnar­ráðuneytinu fjárhagsáætlun skv. 50. gr. og þriggja ára áætlun skv. 53. gr. Sama á við um endurskoðaða áætlun eða breytta skv. 52. gr.

    55. gr.

    Afgreiðsla hreppsnefndar á ársreikningi.

    Ársreikningur hreppsins skal fullgerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í hreppsnefnd fyrir lok aprílmánaðar.

    Hreppsnefndin skal taka til umfjöllunar og afgreiðslu álit, greinargerðir og tillögur endur­skoðanda og skoðunarmanna.

    Hreppsnefnd skal hafa lokið fullnaðarafgreiðslu ársreikninga sveitarsjóðs, stofnana hreppsins og fyrirtækja hans eigi síðar en 1. júní ár hvert. Hreppsnefndarmenn skulu árita ársreikninginn.

    Eintak af ársreikningnum skal senda samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og Hag­stofu Íslands fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðanda og skoðunar­manna.

    Samþykkt þessi, sem hreppsnefnd Húnavatnshrepps hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 15. febrúar 2010.

    F. h. r.

    Hermann Sæmundsson.

    Stefanía Traustadóttir.

    B deild - Útgáfud.: 2. mars 2010