Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 44/2009

Nr. 44/2009 22. janúar 2009
REGLUGERÐ
um (39.) breytingu á reglugerð nr. 340/2001 um eftirlit með fóðri.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 43/2008 frá 27 apríl 2008 öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:

 

A)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1380/2007 frá 26. nóvember 2007 um að leyfa endó-1,4-beta-xýlanasa (Natugrain Wheat TS) sem aukefni í fóðri.

2. gr.

Ofangreind reglugerð framkvæmdastjórnarinnar er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Um aukefni samkvæmt ofangreindri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) vísast að öðru leyti til 13. gr. reglugerðar nr. 340/2001 og 3. viðauka sömu reglugerðar.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 22. janúar 2009.

F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.

Baldur P. Erlingsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 23. janúar 2009