1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar: 5. mgr. orðast svo: Þrátt fyrir 2.–4. mgr. skal mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til foreldris í fæðingarorlofi aldrei nema hærri fjárhæð en 370.000 kr. Í stað „97.786 kr.“ í 6. mgr. kemur: 100.720 kr. Í stað „135.525 kr.“ í 6. mgr. kemur: 139.591 kr.
2. gr. Í stað „59.137 kr.“ í 2. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar kemur: 60.911 kr. 3 . gr. Í stað „135.252 kr.“ í 2. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar kemur: 139.591 kr. 4. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 8. mgr. 13. gr., 5. mgr. 18. gr., 5. mgr. 19. gr. og 35. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2015. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 113/2014, um breytingu á reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks. Velferðarráðuneytinu, 19. desember 2014. Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra. Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir. |