1. gr. 32. gr., um doktorsnámsnefnd, orðast svo: Í hagfræðideild starfar doktorsnámsnefnd, sem gegnir hlutverki fastanefndar sbr. 2. gr. Í doktorsnámsnefnd sitja þrír fulltrúar, sem kosnir eru á deildarfundi og skal formaður hennar vera fulltrúi deildar í vísindanefnd félagsvísindasviðs. Skipað skal í doktorsnámsnefnd til þriggja ára í senn. Deildarforseti getur setið fundi nefndarinnar. 2. gr. Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, eru settar samkvæmt heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 68. og 69. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands. Reglurnar öðlast þegar gildi. Háskóla Íslands, 13. febrúar 2013. Kristín Ingólfsdóttir. Þórður Kristinsson. |