FORSETI ÍSLANDS gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu: I. KAFLI Markmið og yfirstjórn.1. gr. Markmið laga þessara er að efla íslenskar bókmenntir og bókaútgáfu og búa íslenskri bókmenningu hagstæð skilyrði. Menntamálaráðherra fer með yfirstjórn málefna er varða bókmenntir samkvæmt lögum þessum.
II. KAFLI Bókmenntasjóður. 2. gr.
Hlutverk bókmenntasjóðs er að efla íslenskar bókmenntir og bókaútgáfu. Hlutverk sitt rækir sjóðurinn með því að: a. styrkja útgáfu frumsaminna íslenskra skáldverka og vandaðra rita sem eru til þess fallin að efla íslenska menningu, b. styrkja útgáfu vandaðra erlendra bókmennta á íslenskri tungu, c. stuðla að kynningu á íslenskum bókmenntum hér á landi og erlendis og d. sinna öðrum verkefnum er falla undir verksvið stjórnar bókmenntasjóðs. Alþingi veitir árlega fé í sjóðinn til ráðstöfunar samkvæmt lögum þessum.
3. gr.
Menntamálaráðherra skipar fimm menn í stjórn bókmenntasjóðs til þriggja ára í senn. Rithöfundasamband Íslands tilnefnir tvo fulltrúa, Félag íslenskra bókaútgefenda tilnefnir einn fulltrúa, Hagþenkir – félag höfunda fræðirita og kennslugagna tilnefnir einn og einn er skipaður án tilnefningar og skal hann vera formaður stjórnar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Varaformaður skal skipaður úr hópi stjórnarmanna. Ekki er heimilt að skipa sama mann aðalmann í stjórn bókmenntasjóðs lengur en tvö samfelld starfstímabil. Stjórn bókmenntasjóðs ákveður árlega skiptingu ráðstöfunarfjár sjóðsins á fjárlögum á milli viðfangsefna hans, sbr. 2. gr., og úthlutar úr sjóðnum. Við mat á umsóknum er stjórn bókmenntasjóðs heimilt að leita umsagnar fagaðila. Ákvarðanir um úthlutun úr bókmenntasjóði verða ekki kærðar til æðra stjórnvalds. Stjórn bókmenntasjóðs gerir tillögur til menntamálaráðherra um stefnu og helstu áherslur í starfi sjóðsins til þriggja ára. Stjórn bókmenntasjóðs veitir umsögn um erindi sem menntamálaráðuneyti vísar til hennar og getur einnig að eigin frumkvæði beint ábendingum og tillögum um bókmenntamálefni til ráðuneytisins. Heimilt er menntamálaráðherra að fela stjórn bókmenntasjóðs að reka sérstaka skrifstofu eða semja við til þess bæra aðila að annast umsýslu sjóðsins. Þóknun til stjórnarmanna og annar kostnaður við störf stjórnarinnar greiðist úr bókmenntasjóði.
III. KAFLI Greiðslur fyrir afnot á bókasöfnum. 4. gr.
Höfundar sem eru ríkisborgarar eða búsettir í landi innan Evrópska efnahagssvæðisins eiga rétt á greiðslum fyrir notkun bóka þeirra á bókasöfnum, sem eru rekin á kostnað ríkissjóðs eða sveitarfélaga, af árlegri fjárveitingu Alþingis fyrir afnot á bókasöfnum. Hér er bæði átt við útlán og afnot bóka á lestrarsölum bókasafna. Rétt til úthlutunar samkvæmt þessari grein eiga rithöfundar, þýðendur, myndhöfundar og tónskáld, auk annarra einstaklinga sem átt hafa þátt í ritun bóka, enda hafi bækur þeirra verið gefnar út á íslensku, nema um sé að ræða þýðingu eða endursamið verk, endursögn eða staðfærslu á texta úr erlendu máli, og framlag þeirra sé skráð hjá Landskerfi bókasafna eða á annan sannanlegan hátt. Fyrir afnot hljóðrita og stafræns útgefins efnis er úthlutað á sama hátt. Þýðendur og þeir sem enduryrkja, endursegja eða staðfæra erlendar bækur á íslensku eiga þó rétt til úthlutunar samkvæmt þessari grein sem nemur tveimur þriðju af fullri úthlutun. Aðrir rétthafar eiga rétt á óskertri úthlutun. Réttur til úthlutunar samkvæmt þessari grein er persónulegur réttur sem er bundinn við framangreinda rétthafa og fellur niður við framsal höfundaréttar, hvort sem um er að ræða framsal að hluta eða að öllu leyti. Rétt til úthlutunar skv. 2. mgr. eftir andlát rétthafa eiga eftirlifandi maki eða eftirlifandi sambúðaraðili, enda hafi sambúð staðið í fimm ár hið skemmsta, eða börn yngri en 18 ára, enda sé hitt foreldrið látið eða njóti ekki réttar samkvæmt lögum þessum. Séu framangreindir vandamenn fleiri en einn skiptist úthlutunin jafnt á milli þeirra. Rétthafar samkvæmt þessari málsgrein fá aðeins helming af þeirri greiðslu sem rétthafa skv. 2. mgr. hefði borið. Greiðslur fyrir útlán bóka skulu byggðar á upplýsingum frá Landskerfi bókasafna. Við úthlutun á greiðslum fyrir afnot bóka á lestrarsölum bókasafna er heimilt að meta fjölda titla og eintaka bóka hvers höfundar, sem eru til afnota á lestrarsölum bókasafna, sem jafngildi tiltekins fjölda útlána á grundvelli stigagjafar þar sem tekið er tillit til tegundar, umfjöllunarefnis eða lengdar bóka.
5. gr.
Úthlutunarnefnd annast úthlutun skv. 4. gr. Í nefndinni eiga sæti fimm menn skipaðir til þriggja ára af menntamálaráðherra. Af þeim skulu Hagþenkir – félag höfunda fræðirita og kennslugagna, Rithöfundasamband Íslands og Myndstef tilnefna einn fulltrúa hvert. Tveir nefndarmenn skulu skipaðir án tilnefningar og skal annar þeirra vera formaður. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Sömu menn skulu ekki skipaðir oftar en tvö samfelld tímabil í úthlutunarnefnd. Menntamálaráðherra setur sérstakar reglur um umsóknir og úthlutun skv. 4. gr. Heimilt er í þeim reglum að setja lágmark á greiðslur úr sjóðnum þannig að eingöngu þeir höfundar sem ávinna sér greiðslur umfram tilskilið lágmark eigi rétt til greiðslna úr sjóðnum. Ákvarðanir um úthlutun verða ekki kærðar til æðra stjórnvalds. Heimilt er menntamálaráðherra að fela úthlutunarnefnd skv. 1. mgr. að semja við til þess bæra aðila að annast umsýslu umsókna og greiðslur til rétthafa skv. 2. og 3. mgr. 4. gr. Þóknun til úthlutunarnefndar og annar kostnaður við störf nefndarinnar greiðist af árlegri fjárveitingu Alþingis fyrir afnot á bókasöfnum.
IV. KAFLI Önnur ákvæði. 6. gr.
Menntamálaráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara.
7. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi og jafnframt falla úr gildi lög nr. 79/1993, um Menningarsjóð, lög nr. 35/1981, um þýðingarsjóð, og lög nr. 33/1997, um Bókasafnssjóð höfunda.
Gjört á Bessastöðum, 28. mars 2007. Ólafur Ragnar Grímsson. (L. S.) Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. |