1. gr. 3. mgr. 4. gr. orðast svo: Forðast skal að sigla skipum sem falla undir reglur þessar inn á afmörkuð svæði samkvæmt 1. mgr. Það tekur þó ekki til skipa sem taka höfn á Selvogsbankasvæði, farþegaskipa á tímabilinu 1. maí til 1. október og skipa allt að 20.000 BT sem hvorki flytja hættuleg efni né eiturefni í búlka eða farmtönkum og hafa heimild til að sigla innri leið skv. 2. mgr. 6. gr. reglugerðar þessarar. Slíkum skipum er heimil sigling um Selvogsbankasvæðið fyrir sunnan 63°45´N. Við siglingu slíkra skipa yfir Selvogsbankasvæðið ber skipstjórnarmönnum að sýna fyllstu aðgát og taka sérstaklega tillit til veðurs og veður- og ölduspár ef um álandsvind er að ræða. 2. gr. Á eftir 1. mgr. 6. gr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi: Heimilt er að sigla farþegaskipum óháð stærð þeirra um innri leið á tímabilinu frá 1. maí til 1. október. 3. gr. 2. tölul. athugasemda undir „Mörk svæða sem ber að forðast" í II. hluta I. viðauka orðast svo: - Skipum sem sigla til hafna innan Selvogsbankasvæðisins er heimil sigling um svæðið. Farþegaskip á tímabilinu 1. maí til 1. október og skip allt að 20.000 BT sem flytja hvorki hættuleg efni né eiturefni í búlka eða farmtönkum og hafa heimild til að sigla innri leið skv. 2. mgr. 6. gr. reglugerðar þessarar mega sigla um Selvogsbankasvæðið fyrir sunnan 63°45´N.
4. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 13. gr. laga nr. 41/2003 um vaktstöð siglinga, 12. gr. laga um vitamál nr. 132/1999 og 2. gr. laga nr. 7/1975 um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd samþykkt um alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó, 1972 með síðari breytingum, tekur þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli. Samgönguráðuneytinu, 26. mars 2009. Kristján L. Möller. Ragnhildur Hjaltadóttir. |