1. gr. Við 1. mgr. 14. gr. bætist nýr stafliður, sem orðast svo: - Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 668/2008 frá 15. júlí 2008 um breytingu á II.-V. viðauka við reglugerð (EB) nr. 2096/2005 um sameiginlegar kröfur vegna veitingar þjónustu á sviði flugleiðsögu að því er varðar starfsaðferðir og verklagsreglur, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 109/2009 frá 22. október 2009. Reglugerðin er jafnframt birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 21, 29. apríl 2010, bls. 83.
2. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 29. apríl 2010. Kristján L. Möller. Ragnhildur Hjaltadóttir. |