1. gr. 51. gr. samþykktarinnar verður svohljóðandi: Hreppsnefnd kýs fulltrúa í eftirtaldar nefndir, ráð, stjórnir og embætti: A. Til eins árs. Á fundi í júní ár hvert: - Oddvitakjör. Oddviti og varaoddviti skv. 14. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
- Aðalfundur Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Þrír fulltrúar og þrír til vara samkvæmt samþykktum samtakanna.
B. Til fjögurra ára. Á fyrsta og/eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum: - Aðalfundur Afréttamálafélags Flóa og Skeiða. Tveir fulltrúar og tveir til vara, sbr. ákvæði í fjallskilasamþykkt og lög um afréttamálefni, fjallskil o.fl. nr. 6/1986.
- Almannavarnanefnd Árnesinga. Einn fulltrúi og einn til vara skv. gildandi samningi um nefndina.
- Atvinnu-, fjarskipta- og samgöngunefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin skal vera hreppsnefnd til ráðuneytis í þessum málaflokkum, hafa frumkvæði að tillögugerð á þessum sviðum til hreppsnefndar og vera umsagnaraðili í þessum málaflokkum til dæmis varðandi úthlutanir úr atvinnueflingarsjóði.
- Menningar-, æskulýðs-, velferðar- og jafnréttisnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin skal vera hreppsnefnd til ráðuneytis í þessum málaflokkum, hafa frumkvæði að tillögugerð á þessum sviðum til hreppsnefndar og vera umsagnaraðili í þessum málaflokkum. Nefndin fer einnig með málefni bókasafnsins skv. 7. gr. laga um almenningsbókasöfn nr. 36/1997 og jafnréttismál samkvæmt ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008.
- Skipulagsnefnd uppsveita Árnessýslu. Einn fulltrúi og einn til vara skv. 6. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og samningi sveitarfélaganna um sameiginlega skipulags- og byggingarnefnd.
- Félagsmálanefnd uppsveita Árnessýslu. Einn aðalmaður og einn til vara skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og samningi sveitarfélaganna um sameiginlega félagsþjónustu.
- Afréttarnefnd Gnúpverjaafréttar. Nefndin sér um niðurröðun fjallskila og er sveitarstjórn til ráðgjafar varðandi málefni Gnúpverjaafréttar. Nefndin verði skipuð fjallkóngi og tveimur öðrum af hreppsnefnd.
- Fulltrúaráð Brunavarna Árnessýslu. Einn fulltrúi og einn til vara samkvæmt samþykktum Brunavarna Árnessýslu.
- Héraðsnefnd Árnesinga. Einn fulltrúi og einn til vara samkvæmt samningi um héraðsnefnd.
- Húsnæðisnefnd. Hreppsnefnd fer með verkefni húsnæðisnefndar samkvæmt ákvæðum laga um húsnæðismál nr. 44/1998.
- Hússtjórn Þjóðveldisbæjar í Þjórsárdal. Einn fulltrúi og einn til vara samkvæmt máldaga um Þjóðveldisbæinn, dags. 19. júlí 2002.
- Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Einn fulltrúi og einn til vara, sbr. lög sambandsins.
- Ráðgjafarnefnd um friðun Þjórsárvera. Einn fulltrúi og einn til vara.
- Skipulagsnefnd. Hreppsnefnd fer með verkefni skipulagsnefndar samkvæmt ákvæðum skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
- Skoðunarmenn. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
- Fræðslunefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. ákvæðum grunnskólalaga nr. 91/2008 og leikskólalaga nr. 90/2008.
- Fræðslunefnd Flúðaskóla. Tveir fulltrúar og tveir til vara samkvæmt samkomulagi við Hrunamannahrepp.
- Stjórn hitaveitu í Brautarholti, kaldavatnsveitu í Árnesi og annarra veitumannvirkja sem sveitarfélagið hefur aðkomu að og heyra undir hreppsnefnd.
- Þjónustuhópur aldraðra. Starfar skv. 7. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999 og í honum skal vera einn sameiginlegur fulltrúi fyrir sveitarfélög sem aðild eiga að Laugarásslæknishéraði. Samkvæmt erindisbréfi sameiginlegrar félagsmálanefndar uppsveita Árnessýslu skal formaður hennar vera fulltrúi sveitarfélaganna sem að henni standa í umboði sveitarstjórna á heilsugæslusvæðinu.
- Umhverfisnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara samkvæmt lögum um náttúruvernd nr. 44/1999.
- Yfirkjörstjórn. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 10. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 og 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998.
Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 6. október 2010. F. h. r. Hermann Sæmundsson. Stefanía Traustadóttir. |