Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1222/2014

Nr. 1222/2014 19. desember 2014
REGLUGERÐ
um fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks fyrir árið 2015 samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.

1. gr.

Fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra lang­veikra eða alvarlega fatlaðra barna skulu vera sem hér segir fyrir árið 2015:

  1. Hámarksfjárhæð skv. 3. mgr. 11. gr. laganna skal nema 650.946 kr. á mánuði.
  2. Greiðsla til foreldris í námi skv. 14. gr., sbr. 1. mgr. 16. gr. laganna skal nema 182.586 kr. á mánuði.
  3. Grunngreiðsla skv. 1. mgr. 19. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr. laganna skal nema 182.586 kr. á mánuði.
  4. Barnagreiðslur skv. 1. mgr. 21. gr. laganna skulu nema 26.863 kr. á mánuði.
  5. Sérstakar barnagreiðslur skv. 1. mgr. 21. gr. laganna skulu nema 7.777 kr. á mánuði vegna tveggja barna og 20.219 kr. á mánuði vegna þriggja barna.
  6. Frítekjumark skv. 2. mgr. 22. gr. laganna skal vera 62.921 kr. á mánuði.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 10. mgr. 11. gr., 3. mgr. 16. gr., 4. mgr. 20. gr., 4. mgr. 21. gr. og 2. mgr. 22. gr., sbr. 31. gr. laga nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2015. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1217/2013, um fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks fyrir árið 2014 samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.

Velferðarráðuneytinu, 19. desember 2014.

Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.

      B deild - Útgáfud.: 30. desember 2014