1. gr. Aftan við 2. mgr. 5. gr. bætast 3. og 4. mgr. svohljóðandi: Fjöldi nemenda í hjúkrunarfræði á vormisseri 1. námsárs 2010 takmarkast við að 120 nemendur að hámarki öðlist rétt til áframhaldandi náms. Rétturinn ákvarðast af árangri í samkeppnisprófum. Um val nemenda gilda reglur hjúkrunarfræðideildar nr. 502/2002 um val stúdenta til náms í hjúkrunarfræði með áorðnum breytingum. 2. gr. Gildistaka. Reglur þessar eru settar af háskólaráði skv. heimild í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 85/2008, um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi. Háskóla Íslands, 27. ágúst 2009. Kristín Ingólfsdóttir. Þórður Kristinsson. |