Með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga nr. 104/2001 um húsafriðun hefur mennta- og menningarmálaráðherra ákveðið að fenginni tillögu húsafriðunarnefndar að friða Laugarnesskóla í Reykjavík. Friðunin nær til ytra byrðis hússins og miðrýmis í öðrum áfanga, sem byggður var á árunum 1942-1945. Friðunarskjal, dags. 14. september 2010, er hér með fellt úr gildi. Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 26. maí 2011. Katrín Jakobsdóttir. Karitas H. Gunnarsdóttir. |