1. gr. Gildissvið. Reglur þessar gilda um opinbera birtingu upplýsinga skv. VII.-IX. og XIII. kafla laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti og III. kafla reglugerðar nr. 707/2008 um upplýsingagjöf og tilkynningarskyldu skv. lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. 2. gr. Fjölmiðill. Fjölmiðill, samkvæmt III. kafla reglugerðar nr. 707/2008 um upplýsingagjöf og tilkynningarskyldu skv. lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, telst vera upplýsingamiðill, sem er sérhæfður í rafrænni birtingu upplýsinga og skjótri dreifingu þeirra til almennings. 3. gr. Gildistaka. Reglur þessar eru settar á grundvelli 11. gr. reglugerðar nr. 707/2008, sbr. 65. gr., 76. gr., 98. gr. og 131. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, og öðlast þegar gildi. Fjármálaeftirlitinu, 27. desember 2010. Gunnar Þ. Andersen. Ragnar Hafliðason. |