Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 331/2009

Nr. 331/2009 10. febrúar 2009

GJALDSKRÁ
fyrir Vatnsveitu Hlíðarbæjar og nágrennis, Hvalfjarðarsveit.

1. gr.

Vatnsgjald.

Vatnsgjald samanstendur af fastagjaldi á hverja matseiningu og breytilegu gjaldi á hvern fermetra miðað við hverja matseiningu samkvæmt fasteignamati.

 

Vatnsgjald

Svæði

Fast
(kr./matseiningu)

Breytilegt
(kr./fermetra)

Hlíðarbær og nágrenni

4.499

173

Vatnsgjald þetta er miðað við byggingarvísitölu 1. febrúar 2009 og uppfærist samkvæmt breytingum á byggingarvísitölu í desember ár hvert, fyrst í desember 2009 og skal gilda þannig næsta ár. Vatnsgjald innheimtist með fasteignagjöldum. Vatnsgjald skal aldrei fara yfir 0,5% af fasteignamati viðkomandi eignar.

Bílskúrar og sambærilegt húsnæði er undanþegið fastagjaldi. Heimilt er að fella niður fastagjald af húsnæði sem ekki er tengt vatnsveitu. Ekki er innheimt vatnsgjald af húsnæði utan dreifikerfis vatnsveitu sem sveitarfélagið rekur, enda sinnir þá sveitarfélagið ekki viðhaldi og viðgerðum þar. Notanda utan núverandi dreifikerfis er heimilt að óska eftir að fá að greiða vatnsgjald gegn því að sveitarfélagið yfirtaki þá viðhald og viðgerðir á viðkomandi vatnsveitu hvað hann varðar.

2. gr.

Notkunargjald.

Í fyrirtækjum og annars staðar þar sem vatn er notað til annars en venjulegra heimilisþarfa, vegna atvinnu sem í þeim er rekin, eða af öðrum ástæðum, skal auk vatnsgjalds greiða sérstakt gjald, notkunargjald. Notkunargjaldið skal notandi að greiða samkvæmt notkun mældri í rúmmetrum. Vatnsveitan leggur notanda til mæli, sem skal vera í eigu vatnsveitunnar, en notandi skal sjá um aðstöðu fyrir mælinn. Sé ekki hægt að koma mælingu við skal greiða í samræmi við áætlaða notkun.

Notkunargjald

23,46 kr./m³

Notkunargjald þetta er miðað við byggingarvísitölu 1. febrúar 2009 og uppfærist samkvæmt breytingum á henni á þriggja mánaða fresti. Notkunargjald innheimtist á tveggja mánaða fresti.

3. gr.

Gjald fyrir mæla.

Þar sem sala vatns fer fram samkvæmt mældri notkun skal greiða leigu fyrir mæli.

Stærð mælis

Mælaleiga

15 mm

27,93 kr./dag

20 mm

28,44 kr./dag

25 mm

36,63 kr./dag

32 mm

41,01 kr./dag

40 mm

49,38 kr./dag

50 mm

60,38 kr./dag

80 mm

158,03 kr./dag

100 mm og stærri

166,13 kr./dag

Mælaleiga þessi miðast við byggingarvísitölu 1. febrúar 2009 og uppfærist samkvæmt breytingum á henni á þriggja mánaða fresti. Mælaleiga innheimtist á tveggja mánaða fresti með notkunargjaldi.

4. gr.

Heimæðagjöld.

Notendur greiða heimæðagjöld sem miðast við að ídráttarrör fyrir heimæðar hafi verið lagt á frostfríu dýpi frá tengistað vatnsveitunnar að tengistað (inntaksstað) mannvirkis og að lega og frágangur ídráttarrörsins hafi verið tekinn út og samþykktur af vatnsveitunni.

Þvermál inntaks

Heimæðagjald

32 mm eða minna

126.819 kr.

40 mm

168.918 kr.

50 mm

243.069 kr.

63 mm

465.002 kr.

75 mm

665.272 kr.

90 mm

823.444 kr.

meira en 90 mm

reiknað út hjá vatnsveitunni

Vatnsveitan miðar við að vinnu við heimlögn sé lokið innan 5 vinnudaga eftir að ósk um innlögn heimlagnar berst, húsnæði uppfyllir skilyrði fyrir tengingu og gjöld hafa verið greidd.

Heimæðagjöld þessi eru miðuð við byggingarvísitölu 1. febrúar 2009 og uppfærast samkvæmt breytingum á byggingarvísitölu í desember ár hvert, fyrst í desember 2009 og skulu gilda þannig næsta ár.

5. gr.

Viðbótargjöld.

Heimæðagjöld miðast við að lengd heimæðar sé ekki meiri en 60 m. Reynist heimæð lengri greiðist viðbótargjald:

 

Viðbótargjald

Heimæð lengri en 60 m

774 kr./m

Vanti ídráttarrör eða reynist ídráttarrör vera ónothæft greiðist viðbótargjald vegna skurðgraftrar:

 

Viðbótargjald

Vantar eða ónothæft

8.437 kr./m

Reynist nauðsynlegt að fleyga eða sprengja klöpp, eða ef frost er í jörðu, greiðist viðbótargjald vegna skurðgraftrar:

 

Dýpi

Gjald

Klaki/klöpp

30 sm eða minna

2.465 kr./m

Klaki/klöpp

meira en 30 sm

4.966 kr./m

Sé sótt um byggingarvatn um leið og sótt er um heimæð greiðist gjald fyrir byggingarvatnskrana:

Byggingarvatn

Fast gjald

Umsókn um leið og heimæð

11.483 kr.

Sé aðeins sótt um byggingarvatnskrana greiðist áætlaður kostnaður fyrir tengingu og aftengingu hans.

Viðbótargjöld þessi eru miðuð við byggingarvísitölu 1. febrúar 2009 og uppfærast samkvæmt breytingum á byggingarvísitölu í desember ár hvert, fyrst í desember 2009 og skulu gilda þannig næsta ár.

6. gr.

Gjalddagar. Ábyrgð á greiðslu gjalda.

Heimæðagjöld og gjald fyrir byggingarvatnskrana greiðist um leið og sótt er um tengingu. Notkunargjöld, mælaleiga og viðbótargjöld greiðast eftir á.

Skráður eigandi fasteignar ber ábyrgð á greiðslu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari. Vatnsgjald og heimæðargjald samkvæmt gjaldskrá þessari eru tryggð, ásamt vöxtum og áföllnum kostnaði, með lögveðsrétti í fasteign eiganda næstu 2 ár eftir gjalddaga, með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

7. gr.

Önnur atriði.

Sala á köldu vatni er undanþegin virðisaukaskatti. Gjaldskrá fyrir Vatnsveitu Hlíðarbæjar og nágrennis er byggð á lögum um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004 og reglugerð um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 401/2005. Gjaldskráin öðlast gildi við birtingu hennar í B-deild Stjórnartíðinda.

Þannig samþykkt á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar, 10. febrúar 2009.

Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri.


B-deild - Útgáfud.: 31. mars 2009

  Til baka