Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 578/2015

Nr. 578/2015 1. júlí 2015

REGLUGERÐ
um bann á handveiðafærum fyrir sunnanverðum Austfjörðum.

1. gr.

Frá og með 15. maí og til og með 15. júlí ár hvert, eru allar veiðar með handfærum bannaðar á sunnanverðum Austfjörðum, sem markast af línu, sem dregin er milli eftir­farandi punkta:

        1. 64°55,00´N – 013°46,00´V
        2. 64°54,00´N – 013°36,00´V
        3. 64°39,00´N – 013°59,00´V
        4. 64°36,00´N – 014°12,00´V
        5. 64°45,00´N – 014°29,00´V
        6. 64°47,00´N – 014°22,00´V
        7. 64°42,00´N – 014°13,00´V
        8. 64°50,00´N – 013°51,00´V

2. gr.

Afstöðumynd af bannsvæðinu er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 1. mgr. 9. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. júlí 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Erna Jónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 1. júlí 2015