Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1091/2012

Nr. 1091/2012 11. desember 2012
REGLUGERÐ
um menntun, réttindi og skyldur lyfjatækna og skilyrði til að hljóta starfsleyfi.

I. KAFLI

Almenn ákvæði.

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um lyfjatækna sem hafa starfsleyfi landlæknis skv. 2. gr.

II. KAFLI

Starfsleyfi.

2. gr.

Starfsheiti.

Rétt til að kalla sig lyfjatækni og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur til þess leyfi landlæknis.

3. gr.

Skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis.

Leyfi skv. 2. gr. má veita þeim sem lokið hafa lyfjatæknanámi frá viðurkenndri mennta­stofnun sem starfar á grundvelli aðalnámskrár framhaldsskóla.

Einnig má veita starfsleyfi á grundvelli menntunar frá ríki innan Evrópska efnahags­svæðisins (EES) og Sviss. Um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi lyfja­tæknis sem uppfyllir skilyrði tilskipunar 2005/36/EB, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, með síðari breytingum, fer samkvæmt reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum, nr. 461/2011.

Þá er heimilt að veita starfsleyfi þeim sem lokið hafa sambærilegu prófi frá mennta­stofnun í ríki utan EES eða Sviss sem viðurkennd er sem slík af heilbrigðis­yfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað.

Umsækjandi um starfsleyfi sem lyfjatæknir, skv. 2. gr., frá ríki utan EES og Sviss sem Ísland hefur ekki samið við um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi skal meðal annars leggja fram gögn um ríkisfang, innihald náms og námslengd, ásamt prófskírteini, starfsleyfi ef starfsgreinin er löggilt í því ríki sem umsækjandi kemur frá, fyrirhuguð störf hér á landi svo og önnur gögn og vottorð sem landlæknir telur nauðsynleg vegna útgáfu starfsleyfis.

Áður en umsókn um starfsleyfi er tekin til efnislegrar meðferðar þarf eftir atvikum að liggja fyrir staðfest afrit umsóknar um atvinnu- og dvalarleyfi ásamt undirrituðum ráðn­ingarsamningi.

Heimilt er að gera kröfu um að umsækjandi búi yfir kunnáttu í íslensku og hafi þekkingu á íslenskri heilbrigðislöggjöf svo og öðrum lögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem talin eru nauðsynleg til að geta starfað sem lyfjatæknir, einkum vegna öryggis og samskipta við sjúklinga.

Hafi að mati landlæknis ekki verið sýnt fram á að nám umsækjanda uppfylli kröfur skv. 1. mgr. að teknu tilliti til starfsreynslu er heimilt að krefjast þess að umsækjandi gangist undir próf sem sýni fram á að hann búi yfir þeirri faglegu þekkingu og hæfni sem krafist er af lyfjatækni.

Landlæknir skal skipuleggja prófið í samráði við viðurkennda menntastofnun sem starfar á grundvelli aðalnámskrár framhaldsskóla.

Starfsleyfi skv. 3. mgr. er gefið út við komu umsækjanda til starfa hér á landi.

4. gr.

Umsagnir.

Áður en leyfi er veitt skv. 2. gr. á grundvelli menntunar utan Íslands skv. 3. mgr. 3. gr. skal landlæknir leita umsagnar hjá viðurkenndri menntastofnun sem starfar á grundvelli aðalnámskrár framhaldsskóla um það hvort umsækjandi uppfylli skilyrði um menntun skv. 1. mgr. 3. gr. fyrir útgáfu starfsleyfis.

Landlækni er heimilt að leita umsagnar annarra aðila eftir þörfum.

III. KAFLI

Réttindi og skyldur.

5. gr.

Faglegar kröfur og ábyrgð.

Lyfjatæknir skal sýna sjúklingi og þeim sem hann veitir þjónustu virðingu og sinna störfum sínum af árvekni og trúmennsku og í samræmi við þær faglegu kröfur sem gerðar eru til stéttarinnar á hverjum tíma.

Lyfjatækni ber að þekkja skyldur sínar og virða siðareglur stéttarinnar, viðhalda þekk­ingu sinni og faglegri færni og tileinka sér nýjungar er varða starfið.

Lyfjatæknir skal þekkja lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisstarfsmenn og heil­brigðisþjónustu og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli eftir því sem við á.

Lyfjatæknir ber ábyrgð á starfi sínu í samræmi við þá menntun sem hann hefur hlotið.

Lyfjatæknir skal virða faglegar takmarkanir sínar og leita eftir aðstoð eða vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns eftir því sem nauðsynlegt er, svo sem ef hann telur sig ekki geta veitt honum viðeigandi heilbrigðisþjónustu.

6. gr.

Upplýsingaskylda og færsla sjúkraskrár.

Um upplýsingaskyldu lyfjatæknis gagnvart sjúklingi fer samkvæmt ákvæðum laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997.

Um skyldu lyfjatæknis til að veita landlækni upplýsingar, meðal annars vegna eftirlits og til gerðar heilbrigðisskýrslna, fer samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007.

Lyfjatæknir skal, eftir því sem við á, færa sjúkraskrá samkvæmt ákvæðum laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, og reglugerðum sem settar eru samkvæmt þeim.

7. gr.

Trúnaður og þagnarskylda.

Lyfjatæknir skal gæta fyllstu þagmælsku um allt það sem hann kemst að í starfi sínu um heilsufar sjúklings, ástand, sjúkdómsgreiningu, horfur og meðferð ásamt öðrum persónulegum upplýsingum. Þetta gildir ekki bjóði lög annað eða rökstudd ástæða er til þess að rjúfa þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar.

Samþykki sjúklings eða forráðamanns, ef við á, leysir lyfjatækni undan þagnarskyldu.

Þagnarskylda samkvæmt þessari grein nær ekki til atvika sem lyfjatækni ber að tilkynna um samkvæmt öðrum lagaákvæðum. Í þeim tilvikum ber lyfjatækni skylda til að koma upplýsingum um atvik á framfæri við þar til bær yfirvöld.

Um trúnaðar- og þagnarskyldu lyfjatæknis gilda jafnframt ákvæði laga um réttindi sjúk­linga, ákvæði laga um sjúkraskrár og önnur lög eftir því sem við á.

IV. KAFLI

Ýmis ákvæði.

8. gr.

Gjaldtaka.

Um gjaldtöku vegna útgáfu starfsleyfis fer skv. 10. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.

Um gjaldtöku vegna hvers konar umsýslu landlæknis vegna umsókna um starfsleyfi til viðbótar gjaldi skv. 1. mgr. og vegna prófa í faglegri þekkingu og færni fer samkvæmt reglugerð um gjaldtöku vegna umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi heilbrigðis­starfsmanna, nr. 951/2012.

9. gr.

Almenn ákvæði.

Ákvæði laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, svo og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli gilda eftir því sem við á um lyfjatækna.

10. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, öðlast gildi 1. janúar 2013. Frá sama tíma fellur brott reglugerð um starfsréttindi og starfssvið lyfjatækna, nr. 199/1983, með síðari breytingum.

Velferðarráðuneytinu, 11. desember 2012.

Guðbjartur Hannesson.

Vilborg Ingólfsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 17. desember 2012