1. gr. 1. mgr. 2. gr. orðist svo: Í maí, júní, júlí og ágúst, er að fengnu leyfi Fiskistofu, heimilt að veiða á handfæri allt að 6.000 lestir samtals af óslægðum botnfiski, auk 1.900 lesta samtals af óslægðum þorski og 600 lesta samtals af óslægðum ufsa, sem ekki reiknast til aflamarks eða krókaaflamarks þeirra fiskiskipa sem stunda handfæraveiðar samkvæmt reglugerð þessari. 2. gr. 1. mgr. 3. gr. orðist svo: Aflaheimildir skiptast á fjögur landsvæði með eftirfarandi hætti: Eyja- og Miklaholtshreppur - Súðavíkurhreppur. Í hlut þessa svæðis koma alls 1.996 tonn af óslægðum botnfiski, auk 633 tonna af óslægðum þorski og 200 tonna af óslægðum ufsa sem skiptast á þann veg að heimilt er að veiða allt að 499 tonn í maí, 599 tonn af botnfiski auk 211 tonna af óslægðum þorski og 67 tonna af óslægðum ufsa í júní, 599 tonn af botnfiski auk 211 tonna af óslægðum þorski og 67 tonna af óslægðum ufsa í júlí og 299 tonn af botnfiski auk 211 tonna af óslægðum þorski og 67 tonna af óslægðum ufsa í ágúst. Strandabyggð - Grýtubakkahreppur. Í hlut þessa svæðis koma alls 1.420 tonn af óslægðum botnfiski, auk 450 tonna af óslægðum þorski og 141 tonns af óslægðum ufsa sem skiptast á þann veg að heimilt er að veiða allt að 355 tonn í maí, 426 tonn af botnfiski auk 150 tonna af óslægðum þorski og 47 tonna af óslægðum ufsa í júní, 426 tonn af botnfiski auk 150 tonna af óslægðum þorski og 47 tonna af óslægðum ufsa í júlí og 213 tonn af botnfiski auk 150 tonna af óslægðum þorski og 47 tonna af óslægðum ufsa í ágúst. Þingeyjarsveit - Djúpavogshreppur. Í hlut þessa svæðis koma alls 1.537 tonn af óslægðum botnfiski, auk 486 tonna af óslægðum þorski og 153 tonna af óslægðum ufsa sem skiptast á þann veg að heimilt er að veiða allt að 231 tonn í maí, 307 tonn af botnfiski auk 162 tonna af óslægðum þorski og 51 tonns af óslægðum ufsa í júní, 538 tonn af botnfiski auk 162 tonna af óslægðum þorski og 51 tonns af óslægðum ufsa í júlí og 461 tonn af botnfiski auk 162 tonna af óslægðum þorski og 51 tonns af óslægðum ufsa í ágúst. Sveitarfélagið Hornafjörður - Borgarbyggð. Í hlut þessa svæðis koma alls 1.047 tonn af óslægðum botnfiski, auk 330 tonna af óslægðum þorski og 105 tonna af óslægðum ufsa sem skiptast á þann veg að heimilt er að veiða allt að 419 tonn í maí, 366 tonn af botnfiski auk 110 tonna af óslægðum þorski og 35 tonna af óslægðum ufsa í júní, 157 tonn af botnfiski auk 110 tonna af óslægðum þorski og 35 tonna af óslægðum ufsa í júlí og 105 tonn af botnfiski auk 110 tonna af óslægðum þorski og 35 tonna af óslægðum ufsa í ágúst.
3. gr. Í stað 3. málsliðar 2. töluliðar 1. mgr. 4. gr. kemur nýr málsliður er orðist svo: Aðeins er heimilt að fara í eina veiðiferð á hverjum degi. 4. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæði 6. gr. a í lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 24. júní 2011. Jón Bjarnason. Jóhann Guðmundsson. |