Gildissvið. 1. gr. Eftir því sem nánar er kveðið á um í reglugerð þessari skal á tímabilinu 1. mars 2009 til 1. janúar 2011 endurgreiða: | a) | virðisaukaskatt sem byggjendur íbúðarhúsnæðis og frístundahúsnæðis hafa greitt af vinnu manna á byggingarstað, | | b) | virðisaukaskatt sem eigendur íbúðarhúsnæðis og frístundahúsnæðis hafa greitt af vinnu manna við endurbætur eða viðhald þess, | | c) | virðisaukaskatt sem byggjendur íbúðarhúsnæðis og frístundahúsnæðis hafa greitt af þjónustu hönnuða og eftirlitsaðila sem löggildingu hafa samkvæmt skipulags- og byggingarlögum vegna hönnunar eða eftirlits með byggingu þess, | | d) | virðisaukaskatt sem eigendur íbúðarhúsnæðis og frístundahúsnæðis hafa greitt af þjónustu hönnuða og eftirlitsaðila sem löggildingu hafa samkvæmt skipulags- og byggingarlögum vegna hönnunar eða eftirlits við endurbætur eða viðhald þess. |
Frístundahúsnæði. 2. gr. Með frístundahúsnæði samkvæmt 1. gr. er átt við frístundahúsnæði eins og það er skilgreint í 2. gr. laga nr. 75/2008, um frístundabyggð og leigu lóða undir frístundahús, enda sé það skráð sem frístundahúsnæði hjá Fasteignaskrá Íslands. Eigendur frístundahúsnæðis fá því aðeins virðisaukaskatt endurgreiddan á grundvelli þessarar reglugerðar að hann hafi ekki fengist endurgreiddur í formi innskatts, sbr. VII. kafla laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Húsnæði í eigu sveitarfélaga. 3. gr. Ákvæði 1. gr. á einnig við um annað húsnæði sem er alfarið í eigu sveitarfélaga eða stofnana og félaga sem alfarið eru í eigu sveitarfélaga, enda sé húsnæðið skráð hjá Fasteignaskrá Íslands. Með húsnæði í þessu sambandi er átt við hús eða hluta húss, sem ætlað er til nota í atvinnustarfsemi, geymslu eða annarra afnota og eru varanlega skeytt við land, t.d. skrifstofuhúsnæði, íþróttahús, áhaldahús og vörugeymslur. Sveitarfélög, stofnanir og félög sem alfarið eru í eigu þeirra fá því aðeins endurgreiddan virðisaukaskatt á grundvelli ákvæða þessarar reglugerðar ef innskattur hefur ekki fengist endurgreiddur samkvæmt reglugerð nr. 577/1989, um frjálsa og sérstaka skráningu vegna leigu eða sölu á fasteign eða reglugerð nr. 576/1989, um virðisaukaskatt af byggingarstarfsemi, sbr. VII. kafla laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Þá skal einnig tekið tillit til þess virðisaukaskatts sem sveitarfélög og stofnanir þeirra hafa fengið endurgreiddan á grundvelli 3. mgr. 42. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. reglugerð nr. 248/1990, um virðisaukaskatt af skattskyldri starfsemi opinberra aðila. Endurgreiðslutímabil. 4. gr. Endurgreiðsla virðisaukaskatts skal taka til reikninga sem gefnir eru út á tímabilinu 1. mars 2009 til 1. janúar 2011 enda sé gætt að ákvæðum um tímamörk útgáfu reiknings samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 50/1993, um bókhald og tekjuskráningu virðisaukaskattsskyldra aðila. 5. gr. Að öðru leyti en kveðið er á um í reglugerð þessari gilda ákvæði reglugerðar nr. 449/1990, um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði. Gildistaka. 6. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í ákvæði til bráðabirgða við lög nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 2. gr. laga nr. 10/2009, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Fjármálaráðuneytinu, 8. maí 2009. F. h. r. Indriði H. Þorláksson. Ingvi Már Pálsson. |