Með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga nr. 104/2001 um húsafriðun hefur mennta- og menningarmálaráðherra ákveðið að fenginni tillögu húsafriðunarnefndar að friða Grandagarð 2, Alliance húsið í Reykjavík. Friðunin nær til ytra borðs hússins, byggingarár 1924 - 1925. Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 9. febrúar 2010. Katrín Jakobsdóttir. Ásta Magnúsdóttir. |