Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1093/2011

Nr. 1093/2011 30. nóvember 2011
REGLUGERÐ
um ráðstöfun aflaheimilda í skötusel á fiskveiðiárinu 2011/2012.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um úthlutun aflaheimilda í skötusel samkvæmt ákvæði a til bráða­birgða í lögum nr. 70/2011, um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

2. gr.

Úthluta skal allt að 350 lestum af skötusel á fiskveiðiárinu 2011/2012 frá útgáfu þessarar reglugerðar.

Heimilt er að úthluta á skip allt að 10 lestum í senn gegn greiðslu gjalds enda hafi viðkomandi skip leyfi til veiða í atvinnuskyni. Þó er skilyrði að skip, sem hefur framselt aflamark sitt í skötusel sem úthlutað var á grundvelli aflahlutdeildar, hafi a.m.k. aflamark í skötusel sem nemur því magni sem skipinu er úthlutað á grundvelli reglugerðar þessarar, enda hafi framsal aflamarks átt sér stað eftir gildistöku reglugerðar þessarar.

3. gr.

Fiskistofa skal auglýsa eftir umsóknum um úthlutun aflaheimilda í skötusel.

Fiskistofa annast úthlutun aflaheimilda á grundvelli umsókna sem borist hafa Fiskistofu eigi síðar en 15. desember 2011. Ef umsóknir um aflaheimildir eru umfram þær aflaheimildir sem til ráðstöfunar eru skal Fiskistofa skipta því sem til ráðstöfunar er jafnt á milli umsækjenda, enda hafi umsækjandi ekki sótt um minna magn en því nemur.

Verð á aflaheimildum skötusels er 176 kr. hvert kg og skal það greitt Fiskistofu fyrir úthlutun. Hafi gjald ekki verið greitt í síðasta lagi sjö dögum frá dagsetningu tilkynningar Fiskistofu fellur réttur útgerðar til úthlutunar á grundvelli umsóknarinnar niður og skiptast aflaheimildirnar á önnur skip enda hafi úthlutun þeirra ekki numið 10 lestum. Komi til aukinnar úthlutunar hafa útgerðir sjö daga frá dagsetningu tilkynningar Fiskistofu þar að lútandi til að greiða gjald vegna þeirrar úthlutunar.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 847, 15. september 2011, um ráðstöfun aflaheimilda í skötusel á fiskveiðiárinu 2011/2012.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 30. nóvember 2011.

Jón Bjarnason.

Þórhallur Ottesen.

B deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2011