Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 476/2011

Nr. 476/2011 18. apríl 2011
GJALDSKRÁ
fyrir heilbrigðis- og mengunarvarnareftirlit á svæði Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.

1. gr.

Af starfsemi sem háð er starfsleyfi eða eftirliti Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra, samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breyt­ingum og reglugerðum settum með stoð í þeim, er aðildarsveitarfélögunum heimilt að innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.

2. gr.

Tímagjald

kr.

9.074

Gjald vegna rannsóknar pr. sýni skv. eftirlitsáætlun

kr.

12.500

Tóbaksleyfisgjald

kr.

10.000

Af eftirlitsskyldri starfsemi er aðildarsveitarfélögunum heimilt að innheimta árlegt gjald af starfsemi eins og fram kemur á fylgiskjali, viðauka A, með gjaldskrá þessari, enda fari fram reglubundið eftirlit með starfseminni, skv. eftirlitsáætlun.

Sé starfsemi rekin skemur en 6 mánuði á ári eða að öðru leyti takmörkuð með svipuðum hætti er heilbrigðisnefnd heimilt að lækka gjaldið.

Ef starfsemi hefur haft samning við faggilta skoðunarstofu síðastliðin fjögur ár, hefur haft vottað gæðakerfi síðastliðin fjögur ár eða hefur rekið innra eftirlit með starfsemi sinni síðastliðin fjögur ár, sem heilbrigðisnefnd viðurkennir, er heilbrigðisnefnd heimilt að lækka gjöld samkvæmt þessari grein.

Ef einungis hluti margþætts eftirlits með starfsemi fer fram, er heimilt að lækka eftirlits­gjald, sem því nemur.

3. gr.

Af starfsleyfisskyldri starfsemi, er aðildarsveitarfélögunum heimilt að innheimta gjald fyrir starfsleyfi eins og hér segir:

Endurnýjun starfsleyfis:

Starfsleyfisgjald

eitt og hálft tímagjald

og auglýsingakostnaður ef við á.

Ný starfsemi:

Starfsleyfisgjald

eitt og hálft tímagjald

og eftirlitsgjald viðkomandi fyrirtækjaflokks

ásamt auglýsingakostnaði ef við á.

Önnur starfsleyfi sem ekki eru í eftirlitsáætlun:

Starfsleyfisgjald

eitt og hálft tímagjald

og gjald skv. reikningi vegna undirbúnings,

ferðar, úttektar og frágangs,

ásamt auglýsingakostnaði ef við á.

4. gr.

Gjald skv. 3. gr. greiðist við afhendingu leyfisbréfs og reiknast dráttarvextir 15 dögum eftir útgáfudag reiknings.

5. gr.

Fyrir vottorð sem Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra gefur út samkvæmt fyrirliggjandi gögnum greiðist eitt tímagjald.

Gjald fyrir þjónustuverkefni og önnur sérstök verkefni greiðist samkvæmt reikningi.

Ef um aukin eftirlitsverkefni er að ræða, umfram reglubundið eftirlit og sýnatöku sem gert er ráð fyrir í eftirlitsáætlun Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra er heilbrigðis­eftirlitinu heimilt að gera sérstakan reikning vegna þeirra, eins og um þjónustuverkefni sé að ræða.

6. gr.

Af starfsemi, sem upp er talin í viðauka með lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra hefur eftirlit með samkvæmt samningi við Umhverfisstofnun, skal greiða gjöld samkvæmt 2. gr.

7. gr.

Aðildarsveitarfélögin, eða aðili sem þau tilnefna, annast innheimtu eftirlitsgjalda. Heil­brigðis­eftirlit Norðurlands vestra innheimtir önnur gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, s.s. fyrir leyfi, vottorð, eiturbeiðnir og þjónustuverkefni.

Heilbrigðiseftirlitið gerir skrá yfir eftirlitsskylda starfsemi í samræmi við viðauka A sem fylgir gjaldskrá þessari og sendir viðkomandi aðildarsveitarfélagi.

Um innheimtu gjalda fer samkvæmt 12. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og meng­unarvarnir, með síðari breytingum.

Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.

8. gr.

Gjalddagar gjalda samkvæmt 2. gr. eru 1. júlí eða 1. desember ár hvert. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga auk áfallins innheimtukostnaðar.

9. gr.

Þegar sami aðili rekur fleiri en eina tegund starfsemi sem fellur undir gjaldskrá þessa, á einum og sama stað, er heimilt að innheimta eitt árlegt gjald, þá í þeim flokki sem hærri er.

10. gr.

Innheimt gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari skulu renna til reksturs heilbrigðiseftirlitsins skv. 12. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum.

11. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samin er og samþykkt af aðildarsveitarfélögunum skv. 12. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, samkvæmt 8. gr. tóbaksvarnalaga nr. 6/2002 með síðari breytingum og samkvæmt X. kafla laga um matvæli nr. 93/1995 og öðlast gjaldskráin gildi við birtingu. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá nr. 22/2010 fyrir heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlit Norðurlands vestra.

Sauðárkróki, 18. apríl 2011.

F.h. heilbrigðisnefndar Norðurlandssvæðis vestra,

Sigurjón Þórðarson framkvæmdastjóri.

VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 6. maí 2011