Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1154/2013

Nr. 1154/2013 6. desember 2013
REGLUGERÐ
um (3.) breytingu á reglugerð nr. 55/2009, um styrki til kaupa á næringarefnum og sérfæði.

1. gr.

Í stað orðanna „reglugerð um greiðslur almannatrygginga í lyfjakostnaði“ í 2. málsl. 2. mgr. 1. gr. kemur: reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði.

2. gr.

3. gr. reglugerðarinnar breytist þannig:

  1. Í stað orðanna „vistheimili, heimili fyrir börn“ í 2. málsl. 3. mgr. 3. gr. kemur: búsetuúrræði á vegum sveitarfélaga fyrir fatlað fólk og kostuð eru af sveitar­félögum.
  2. Í stað orðsins „vistmönnum“ í 3. málsl. 3. mgr. 3. gr. kemur: hlutaðeigandi.
  3. Við 3. mgr. 3. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi:

Sjúkratryggingar Íslands greiða þó fyrir næringarefni og sérfæði fyrir einstaklinga með gildandi innkaupaheimild frá Sjúkratryggingum Íslands á meðan þeir dveljast á áðurnefndum stofnunum til skamms tíma (skammtímadvöl), þó að hámarki sex vikur, enda sé þörf fyrir vöruna ekki beinlínis vegna innlagnarinnar.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á fylgiskjalinu „Næringarefni og sérfæði frá Sjúkra­trygg­ingum Íslands“ með reglugerðinni:

Flokkur 98 03 06 Næring um slöngu. Fyrir hvern mánaðarskammt greiða Sjúkra­trygg­ingar Íslands það sem umfram er:

Í stað „5.900 kr.“ kemur: 6.800 kr.

Í stað „11.800 kr.“ kemur: 13.600 kr.

Í stað „17.700 kr.“ kemur: 20.400 kr.

Í stað „23.600 kr.“ kemur: 27.200 kr.

Í stað „29.500 kr.“ kemur: 34.000 kr.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 27. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkra­tryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2014.

Velferðarráðuneytinu, 6. desember 2013.

Krístján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.

Hrönn Ottósdóttir.

B deild - Útgáfud.: 23. desember 2013