1. gr. 5., 6. og 7. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar verða svohljóðandi: Verði birgðaskortur á lyfi sem er með viðmiðunarverð skal það tilkynnt Sjúkratryggingum Íslands þegar í stað og skráð á biðlista stofnunarinnar. Verði birgðaskortur á lyfi í meira en 90 daga, fellur umrætt lyf úr lyfjaverðskrá. Ef birgðaskortur verður á lyfi sem er með lægsta viðmiðunarverð taka Sjúkratryggingar Íslands þátt í kostnaði við næstódýrasta lyfið. Þegar ódýrasta pakkningin fæst aftur, þá helst greiðsluþátttakan á dýrara lyfinu í 2 vikur eftir að viðkomandi lyf kemur á biðlista. Þessi aðgerð er framkvæmd af Sjúkratryggingum Íslands í viðkomandi tilfelli. 2. gr. 2. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi: Lyfjagreiðslunefnd getur ef þörf krefur óskað eftir viðbótarupplýsingum frá umsækjanda, umboðsmanni, markaðsleyfishafa lyfsins eða öðrum. 3. gr. 1. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi: Sækja skal um leyfisskyldu lyfja á þar til gerðu eyðublaði. Með umsókn skulu fylgja upplýsingar sem fram koma í 8. gr. 4. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 43. gr. lyfjalaga nr. 93/1994, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Velferðarráðuneytinu, 20. október 2014. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra. Sveinn Magnússon. |