Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 242/2014

Nr. 242/2014 6. mars 2014
REGLUGERÐ
um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2014.

1. gr.

Tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk.

Tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2014 nema 0,99% af álagningarstofni útsvars það ár, auk framlaga úr Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, vegna sölu og leigu eigna sem nýttar eru í þjónustu við fatlað fólk. Skulu tekjurnar renna í sérstaka deild innan Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Við skil á staðgreiðslu útsvars samkvæmt lögum nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda skulu Jöfnunarsjóði gerð skil á sínum hluta, sbr. 1. mgr. Fjársýsla ríkisins skal sjá um útreikning á tekjum þessum og skipta innheimtri staðgreiðslu hvers mánaðar milli ríkis, sveitarfélaga og Jöfnunarsjóðs. Tekjur sjóðsins skulu reiknaðar af þeim stofni sem staðgreiðsla hvers mánaðar er greidd af.

Ennfremur skal Fjársýsla ríkisins við álagningu sjá um útreikning á hlutdeild Jöfn­unar­sjóðs í útsvari af þeim tekjum sem skattlagðar eru eftir á. Fjársýsla ríkisins skal, í uppgjöri staðgreiðslu sveitarfélaga við álagningu útsvars, að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, taka tillit til hlutdeildar Jöfnunarsjóðs og gera sjóðnum skil á henni.

Til viðbótar þeim tekjum Jöfnunarsjóðs á árinu 2014, sem tilgreindar eru í 1. mgr., eru til ráð­stöfunar á árinu óráðstöfuð framlög frá fyrra ári vegna NPA (notendastýrðrar persónu­legrar aðstoðar) og vegna breytingakostnaðar.

2. gr.

Framlög.

Jöfnunarframlög vegna þjónustu við fatlað fólk skiptast á árinu 2014 í: Almenn framlög til þjón­ustu­svæða og sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk, framlög vegna not­enda­stýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA), framlög vegna breytingakostnaðar, fram­lög í Fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga svo og sérstök viðbótarframlög.

Framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk eru óháð öðrum fram­lögum sjóðsins.

Jöfnunarsjóður sendir sveitarfélögum upplýsingar um áætluð framlög ársins 2014 og greiðslu­dreifingu þeirra eftir því sem við verður komið. Framlög skulu greidd mán­aðar­lega. Framlög skulu endurskoðuð innan ársins í samræmi við breytingar á áætl­uðum tekjum sjóðsins, sbr. 1. gr. og á grundvelli nýrra upplýsinga frá þjónustu­svæðum/sveitar­félögum.

3. gr.

Almenn framlög vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2014.

I. hluti: Skipting ráðstöfunarfjármagns.

Áætluðum ráðstöfunartekjum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2014, að frádregnum framlögum sem veitt eru til miðlægra verkefna er tengjast yfirfærslunni, framlagi í Fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og sérstökum viðbótar­framlögum, skal skipta milli sveitarfélaga sem mynda þjónustusvæði, sbr. lög nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks, eða einstakra sveitarfélaga með eftirfarandi hætti, sbr. sam­komu­lag ríkis og sveitarfélaga um yfirfærslu málaflokksins frá 23. nóvember 2010:

  1. 80% skiptast hlutfallslega miðað við niðurstöðu mælinga á útgjaldaþörf, sbr. II. hluta þessarar greinar.
  2. 20% skiptast hlutfallslega miðað við áætlaðan útsvarsstofn sveitarfélaga 2014.

Áætluð framlög ársins 2014 skal endurreikna eigi síðar en í mars 2014 með endur­skoðuðum útsvarsstofni og á grundvelli viðbótarupplýsinga frá þjónustu­svæðum/sveitar­félögum, sbr. 1. lið síðustu mgr. II. hluta. Jafnframt verður áætlunin endurreiknuð í nóvember 2014, sbr. 2.-4. lið síðustu mgr. II. hluta. Við greiðslu fram­laga á árinu 2014 fer jafnframt fram leiðrétting framlaga ársins 2012 á grundvelli endan­legs álagningar­stofns útsvars 2012.

Útreiknuð framlög ársins 2014 skal leiðrétta þegar endanlegur álagningarstofn útsvars ársins 2014 liggur fyrir. Upplýsingar um leiðréttingu skulu liggja fyrir eigi síðar en 31. desember 2015 og skal leiðrétting framlaga til hvers þjónustusvæðis eða sveitarfélags koma til frádráttar/viðbótar almennum framlögum Jöfnunarsjóðs vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2016. Reynist áætlun ársins 2016 lægri en frádráttur vegna ársins 2014 er heimilt að innheimta mismuninn af öðrum framlögum Jöfnunarsjóðs.

II. hluti: Mæling á útgjaldaþörf.

Við mælingu á útgjaldaþörf vegna þjónustu við fatlaða, sbr. a-lið 1. mgr. I. hluta, skal byggt á þeim upplýsingum um kostnað og stuðningsþörf einstaklinga í sérhæfðri þjónustu sem lagðar voru til grundvallar útreikningi framlaga á árinu 2013.

Við mælinguna skal greina fylgni flokka stuðningsþarfar, sbr. 7. gr., og kostnaðar á einstakling til að ákvarða viðmiðunarfjárhæð fyrir hvern flokk stuðningsþarfar. Ef ekki liggur fyrir mat á stuðningsþörf er heimilt að reikna gildi sem samsvarar flokkum matsins á grundvelli eldra mats. Heimilt er að reikna álag á ákveðna flokka á grundvelli sér­stakrar stuðningsþarfar vegna hegðunar. Ennfremur er heimilt að reikna álag vegna ein­stak­linga með óvenjulega samsetningu stuðningsþarfar.

Útgjaldaþörf skal mæld með eftirfarandi aðferðum:

  1. Reikna skal útgjaldaþörf á grundvelli viðmiðunarfjárhæða vegna allra einstaklinga sem falla í 4. flokk samræmds mats á þjónustuþörf eða ofar.
  2. Þrátt fyrir ákvæði a-liðar skal reikna útgjaldaþörf vegna einstaklinga í flokki 4 og ofar á grundvelli raunkostnaðar, ef raunkostnaður og áætlaður viðbótarkostnaður vegna 2014 er lægri en 33% af einingakostnaði viðkomandi flokks. Ekki reiknast útgjaldaþörf vegna fasteignakostnaðar, sbr. d-lið vegna einstaklinga sem falla undir þetta ákvæði.
  3. Reikna skal útgjaldaþörf vegna barna sem ekki hafa mat á þjónustuþörf á grund­velli raunkostnaðar sé hann jafn hár eða hærri en einingakostnaður 4. flokks.
  4. Reikna skal útgjaldaþörf vegna fasteignakostnaðar fyrir alla einstaklinga sem falla í 5. flokk matsins eða ofar og er hann innifalinn í einingakostnaði viðkomandi flokka.
  5. Reikna skal útgjaldaþörf vegna áætlaðs viðbótarkostnaðar árið 2014 vegna ein­staklinga sem ekki hafa mat á þjónustuþörf og skal útreikningur fara fram þegar kostn­aður samsvarar einingakostnaði fjórða flokks.
  6. Reikna skal sérstakt álag á samtölu liða a-e vegna útgjalda við umsýslu fjármála, starfsmannamála og annarra skyldra rekstrarverkefna.
  7. Reikna skal sérstakt álag á samtölu liða a-e vegna útgjalda af ráðgjöf og sam­hæfingu þjónustu.
  8. Samtala liða a-g myndar grunn að hlutfallslegri skiptingu fjármuna á grundvelli mældrar útgjaldaþarfar, sbr. a-lið 1. mgr. I. hluta þessarar greinar.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skal senda þjónustusvæðum/sveitarfélögum gögn sem sýna kostnað skv. hverjum flokki matsins sem og upplýsingar um niðurstöður útreikninga ein­stakra þátta framlagsins.

Við mælingu á útgjaldaþörf skv. framangreindu vegna úthlutunar framlaga árið 2014 skal jafnframt taka tillit til eftirfarandi þátta á grundvelli viðbótarupplýsinga frá sveitar­félögum:

  1. Uppfæra skal upplýsingar um lögheimili einstaklinga í þjónustu með tilliti til flutn­ings þeirra milli þjónustusvæða/sveitarfélaga. Við útreikning framlaga 2014 skal miðað við hvert lögheimili einstaklings er 1. janúar 2014.
  2. Framkvæma skal samræmt mat á þjónustuþörf einstaklinga sem ekki höfðu náð 18 ára aldri við útreikning framlaganna árið 2013 en hafa náð 18 ára aldri 1. janúar 2014 sé raunkostnaður jafn hár eða hærri en einingakostnaður 4. flokks.
  3. Ennfremur skal safna upplýsingum um einstaklinga í þjónustu með viðbótar­kostnaði á árinu 2014 sem samsvarar einingakostaði 4. flokks.
  4. Framkvæma skal nýtt mat á þeim einstaklingum sem metnir voru samræmdu mati á stuðningsþörf á árinu 2010.

Þegar um tímabundna búferlaflutninga einstaklinga í þjónustu er að ræða, er þjón­ustu­svæðum heimilt að semja sín á milli um að framlög Jöfnunarsjóðs vegna þeirra ein­stak­linga, skv. III. hluta, flytjist milli þjónustusvæða enda þótt lögheimili viðkomandi haldist óbreytt. Slíkir samningar hafa ekki áhrif á jöfnunarframlög samkvæmt þessari reglu­gerð. Samband íslenskra sveitarfélaga getur gefið út leiðbeinandi viðmið um samn­inga sem þjónustusvæði gera sín á milli.

 

III. hluti: Útreikningur framlaga.

Framlög til einstakra þjónustusvæða eða sveitarfélaga skulu reiknuð út sem hér segir:

  1. Þegar niðurstaða liggur fyrir skv. a- og b-lið í 1. mgr. I. hluta, skal á grunni áætlaðs útsvarsstofns ársins 2014 reikna útsvarstekjur sem samsvara 0,25% af útsvarsstofni og renna skulu beint til þjónustu við fatlaða innan viðkomandi þjón­ustusvæðis, sbr. bráðabirgðaákvæði XII við lög nr. 4/1995 um tekjustofna sveitar­félaga, með síðari breytingum.
  2. Finna skal mismun mældrar heildarútgjaldaþarfar hvers þjónustusvæðis eða sveitarfélags skv. II. hluta og áætlaðra útsvarstekna skv. tölulið 1.
  3. Sé mæld útgjaldaþörf sveitarfélaga, sem mynda þjónustusvæði, hærri en sem nemur 0,25% hlutdeild þeirra í útsvarsstofni er mismunurinn greiddur sem almenn framlög vegna þjónustu við fatlað fólk.

Almenn framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2014 skulu nema sömu fjárhæð og áætlaðar heildartekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga að frádregnum framlögum sem veitt eru til miðlægra verkefna er tengjast yfirfærslunni, framlögum í Fasteignasjóð og sérstökum viðbótarframlögum.

4. gr.

Sérstök viðbótarframlög.

Heimilt er að greiða sérstök viðbótarframlög til þjónustusvæða/sveitarfélaga, að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, til að koma til móts við þau svæði þar sem hlutfallsleg lækkun framlaga, milli áranna 2013 og 2014, sbr. 3 gr., er veruleg og um íþyngjandi kostnað þjónustusvæða/sveitarfélaga að ræða við rekstur málaflokksins á árinu umfram tekjur.

Við áætlanagerð almennra framlaga fyrir árið 2014, sbr. 3. gr., skal jafnframt liggja fyrir tillaga ráðgjafarnefndar sjóðsins um áætlað ráðstöfunarfjármagn til greiðslu viðbótar­framlaga á árinu.

Viðkomandi þjónustusvæðum/sveitarfélögum ber að sækja um sérstakt viðbótarframlag eigi síðar en 1. nóvember 2014. Forsenda fyrir úthlutun framlags er að með umsókn fylgi ítarleg greinargerð þar sem færð eru rök fyrir þörf þjónustusvæðis/sveitarfélags á sér­stöku viðbótarframlagi á árinu.

Jöfnunarsjóður setur verklagsreglur um mat á umsóknum.

5. gr.

Framlög vegna breytingakostnaðar.

Á árinu 2014 greiðir Jöfnunarsjóður sveitarfélaga framlag vegna breytingakostnaðar til Sambands íslenskra sveitarfélaga sem nemur 0,14% af tekjum sjóðsins í formi 0,99% hlutdeildar í útsvarsstofni, sbr. 1. gr., vegna kostnaðar Sambandsins við verkefni er tengjast þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk á árinu.

Með framlögum vegna breytingakostnaðar er að öðru leyti heimilt að greiða eftirfarandi kostnað vegna:

  1. Starfa samráðsnefndar um málefni fatlaðra.
  2. Mats á faglegum og fjárhagslegum árangri tilfærslunnar.
  3. Vinnu að bættu eftirliti með þjónustu við fatlað fólk.
  4. Upplýsingasöfnunar, greiningar og ráðgjafar.
  5. Samræmds mats á stuðningsþörf á landsvísu.
  6. Útfærslu jöfnunaraðgerða og fasteignamála.

Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga gerir tillögu til ráðherra um úthlutun framlaga á grundvelli a- til f-liða.

6. gr.

Framlög vegna notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA).

Við tillögugerð ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutun framlaga til NPA skal taka mið af áætlun verkefnisstjórnar NPA að fenginni umsögn samráðsnefndar um málefni fatlaðs fólks.

Á árinu 2014 er eingöngu til ráðstöfunar til NPA óráðstafað fjármagn vegna verkefnisins á árinu 2013.

7. gr.

Mat á stuðningsþörf.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur forgöngu um samræmt mat á stuðningsþörf á lands­vísu, semur við matsaðila um framkvæmd matsins og ber kostnað af því. Heimilt er að ákveða að greiðsla kostnaðar takmarkist við mat á tilteknum fjölda einstaklinga.

Þjónustusvæði og sveitarfélög fela matsaðila, skv. 1. mgr. framkvæmd matsins á grund­velli ákvæða laga um málefni fatlaðs fólks og er Jöfnunarsjóði sveitarfélaga heimilt að krefja matsaðila, þjónustusvæði og sveitarfélög um niðurstöður slíks mats.

Jöfnunarsjóður setur verklagsreglur um mat á stuðningsþörf, sem m.a. kveða á um hlut­verk og verkefni einstakra aðila sem koma að matsferlinu. Heimilt er að skipa sér­staka ráðgefandi vinnuhópa til að fjalla um álitaefni varðandi niðurstöður matsins. Álit slíkra hópa fela ekki í sér stjórnvaldsákvarðanir.

8. gr.

Staðfesting.

Tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutanir framlaga á grundvelli þessarar reglugerðar skulu hljóta staðfestingu ráðherra. Við setningu verklagsreglna skal hafa samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga.

9. gr.

Gildistaka og endurskoðun.

Reglugerð þessi er sett á grundvelli 13. gr. a. í lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum og gilda ákvæði hennar frá 1. janúar 2014. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2013 nr. 623/2013.

Endurskoða skal reglugerð þessa eigi síðar en 15. október 2014.

Innanríkisráðuneytinu, 6. mars 2014.

Hanna Birna Kristjánsdóttir.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 10. mars 2014