Með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga nr. 104/2001 um húsafriðun hefur mennta- og menningarmálaráðherra ákveðið að fenginni tillögu húsafriðunarnefndar að friða Ingólfsstræti 2A, Reykjavík. Friðunin nær til ytra byrðis hússins auk anddyris, forsalar aðalsalar, hliðarsvala og aðalsalar (áhorfendasalar). Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 19. maí 2011. Katrín Jakobsdóttir. Ásta Magnúsdóttir. |