1. gr. 12. gr. breytist og verður í heild svohljóðandi: Til að hefja nám í matvælafræði við matvæla- og næringarfræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi af bóknámsbraut eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Æskilegur undirbúningur er stúdentspróf af náttúrufræðibraut. Próf frá frumgreinasviði Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) eða lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú), með sömu áherslum og gerðar eru til stúdentsprófs af náttúrufræðibraut veitir heimild til inntöku í námið. Til að hefja nám í matvælatæknifræði við matvæla- og næringarfræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sambærilegu prófi. Til að hefja nám í næringarfræði við matvæla- og næringarfræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sambærilegu prófi. Stúdentar eru teknir inn á 2. misseri náms í næringarfræði á grundvelli samkeppnisprófs sem haldið er í lok 1. misseris í samræmi við reglur háskólans um samkeppnispróf. 2. gr. Gildistaka. Reglur þessar eru settar af háskólaráði skv. heimild í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 85/2008, um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi. Háskóla Íslands, 6. apríl 2009. Kristín Ingólfsdóttir. Þórður Kristinsson. |