Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 702/2010

Nr. 702/2010 25. ágúst 2010
SAMÞYKKT
um breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp Flóahrepps nr. 542/2007.

1. gr.

51. gr. samþykktar breytist og verður svohljóðandi:

Sveitarstjórn kýs fulltrúa í eftirtaldar nefndir, ráð, stjórnir og embætti:

A. Til eins árs. Á fundi í júní ár hvert:

  1. Oddvitakjör. Oddviti og varaoddviti skv. 14. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
  2. Aðalfundur Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS). Þrír fulltrúar og þrír til vara samkvæmt samþykktum samtakanna.
  3. Aðalfundur Atvinnuþróunarfélags Suðurlands. Þrír fulltrúar og þrír til vara sam­kvæmt samþykktum félagsins.
  4. Aðalfundur Skólaskrifstofu Suðurlands. Þrír fulltrúar og þrír til vara sam­kvæmt samþykktum SKS.
  5. Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Þrír fulltrúar og þrír til vara sam­kvæmt samþykktum HES.
  6. Aðalfundur Sorpstöðvar Suðurlands. Einn fulltrúi og einn til vara samkvæmt sam­þykktum SOS.

B. Til fjögurra ára. Á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum:

  1. Fræðslunefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer m.a. með verkefni grunnskóla samkvæmt lögum um grunnskóla nr. 91/2008 og verkefni leikskóla samkvæmt lögum um leikskóla nr. 90/2008.
  2. Skipulagsnefnd og byggingarnefnd uppsveita Árnessýslu og Flóa. Einn aðalmaður og einn til vara. Fulltrúi er jafnframt í stjórn skipulags- og byggingarfulltrúa­embættis uppsveita Árnessýslu og Flóa bs.
  3. Félagsmálanefnd uppsveita Árnessýslu og Flóa. Einn aðalmaður og einn til vara skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Nefndin fer jafnframt með málefni aldraðra og starfar skv. 7. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999.
  4. Jafnréttisnefnd. Sveitarstjórn fer með málefni jafnréttisnefndar samkvæmt ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008.
  5. Atvinnu- og umhverfisnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin skal vera sveitarstjórn til ráðuneytis í atvinnu-, ferða- og umhverfismálum og hafa frumkvæði að tillögugerð á því sviði til sveitarstjórnar. Nefndin skal einnig fara með samgöngumál og vera sveitarstjórn til ráðgjafar um úrbætur og ný­framkvæmdir í umferðar- og samgöngumálum.
  6. Húsnæðisnefnd. Sveitarstjórn fer með verkefni húsnæðisnefndar samkvæmt ákvæðum laga um húsnæðismál nr. 44/1998. Sveitarstjórn er heimilt að fela fastanefndum hlutverk nefndarinnar.
  7. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Einn fulltrúi og einn til vara, sbr. lög sambandsins.
  8. Rekstrarnefnd félagsheimila Flóahrepps. Tveir fulltrúar og tveir til vara.
  9. Afréttamálafélag Flóa og Skeiða. Fjórir fulltrúar og fjórir til vara, samkvæmt samþykkt afréttamálafélags.
  10. Héraðsnefnd Árnesinga. Einn fulltrúi og einn til vara samkvæmt samningi um héraðsnefnd.
  11. Almannavarnanefnd Árnessýslu. Einn fulltrúi og einn til vara skv. lögum um almanna­varnir nr. 82/2008.
  12. Fulltrúaráð Brunavarna Árnessýslu. Einn fulltrúi og einn til vara samkvæmt sam­þykktum Brunavarna Árnessýslu.
  13. Skoðunarmenn. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 69. gr. sveitar­stjórnar­laga nr. 45/1998.
  14. Kjörstjórn. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 10. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 og 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998.

2. gr.

58. gr. breytist og verður svohljóðandi:

Um ráðningu, kaup og kjör lausráðinna starfsmanna verði farið eftir kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga.

Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Flóahrepps hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 25. ágúst 2010.

F. h. r.

Hermann Sæmundsson.

Stefanía Traustadóttir.

B deild - Útgáfud.: 10. september 2010