Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1043/2013

Nr. 1043/2013 1. nóvember 2013
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1051 15. desember 2006, um starfsstig innan lögreglunnar.

1. gr.

Í stað orðsins „dómsmálaráðherra“ í 1. málslið 3. gr. og 1. mgr. og 3. mgr. 15. gr. kemur: innanríkisráðherra.

2. gr.

Við 4. mgr. 15. gr. bætist nýr málsliður: Ríkislögreglustjóri staðfestir skipurit lögreglu­embætta, þar með talið Lögregluskóla ríkisins.

3. gr.

Í stað 5. mgr. 15. gr. kemur ný málsgrein: Ríkislögreglustjóri sendir staðfest skipurit ásamt greinargerð sinni til innanríkisráðherra til upplýsinga.

4. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 4. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90 13. júní 1996, með síðari breytingum, öðlast gildi þegar í stað.

Innanríkisráðuneytinu, 1. nóvember 2013.

Hanna Birna Kristjánsdóttir.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 27. nóvember 2013