Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 523/2014

Nr. 523/2014 2. júní 2014
REGLUGERÐ
um innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 412/2014 frá 16. apríl 2014 um breytingu á tilskipun 2003/87/EB um að koma á fót kerfi fyrir viðskipti með heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda innan Bandalagsins með tilliti til framkvæmdar á alþjóðasamningi um beitingu sameiginlegrar markaðstengdrar heildarráðstöfunar um alþjóðlega losun frá flugi frá árinu 2020.

1. gr.

Eftirfarandi EES-gerð skal öðlast gildi hér á landi:

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 412/2014 frá 16. apríl 2014 um breytingu á tilskipun 2003/87/EB um að koma á fót kerfi fyrir viðskipti með heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda innan Bandalagsins með tilliti til framkvæmdar á alþjóðasamningi um beitingu sameiginlegrar markaðstengdrar heildarráðstöfunar um alþjóðlega losun frá flugi frá árinu 2020, sem vísað er til í tölulið 21al, III. kafla, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2014, frá 30. apríl 2014, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, XX. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í fylgiskjali.

2. gr.

Innleiðing.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 412/2014 frá 16. apríl 2014 um breytingu á tilskipun 2003/87/EB um að koma á fót kerfi fyrir viðskipti með heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda innan Bandalagsins með tilliti til framkvæmdar á alþjóðasamningi um beitingu sameiginlegrar markaðstengdrar heildarráðstöfunar um alþjóðlega losun frá flugi frá árinu 2020, sem vísað er til í tölulið 21al, III. kafla, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2014, frá 30. apríl 2014.

3. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 70/2012 um loftslagsmál, sbr. 1. gr. laga um breytingu á þeim lögum nr. 52/2014.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 2. júní 2014.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Hugi Ólafsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 4. júní 2014