1. gr. Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og viðaukum IVA og IVB, með síðari breytingum, sbr. viðauka V, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993. 2. gr. Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll: | Vara | Tímabil | Vörumagn | Verðtollar | Magntollar | Tollskrárnr.: | | | kg/stk. | % | kr./kg/stk. | 0208.9003 | Rjúpur, frystar | 01.01.-31.12.15 | ótilgr. | 0 | 0 | 0208.9007 | Beinlaust hreindýrakjöt, fryst | 01.01.-31.12.15 | ótilgr. | 0 | 878 | | Hreindýrakjöt með beini, fryst: | | | | | 0208.9008 | Skrokkar og hálfir skrokkar | 01.01.-31.12.15 | ótilgr. | 0 | 0 | 0208.9009 | Annað | 01.01.-31.12.15 | ótilgr. | 0 | 878 | 0603.1202 | Innflutningur á öðrum tíma (nellikur) | 01.05.-30.11.15 | ótilgr. | 0 | 48 | 0603.1905 | Innflutningur á öðrum tíma (lokaskegg, flamingóblóm, fuglamjólk og paradísar- fuglablóm) | 01.05.-30.11.15 | ótilgr. | 0 | 48 | 0701.9001 | Bökunarkartöflur, 65 mm eða stærri | 01.01.-31.12.15 | ótilgr. | 0 | 0 | 0703.9001 | Blaðlaukur | 01.01.-31.12.15 | ótilgr. | 0 | 0 | 0704.1000 | Blómkál og hnappað spergilkál | 01.01.-30.06.15 | ótilgr. | 0 | 0 | 0704.9002 | Rauðkál | 01.01.-30.06.15 | ótilgr. | 0 | 0 | 0704.9003 | Kínakál | 01.01.-30.06.15 | ótilgr. | 0 | 0 | 0704.9004 | Spergilkál (Brassica oleracea var. Ita.) | 01.01.-30.06.15 | ótilgr. | 0 | 0 | 0706.1000 | Gulrætur og næpur | 01.01.-30.06.15 | ótilgr. | 0 | 0 | 0706.9002 | Rauðrófur | 01.01.-31.12.15 | ótilgr. | 0 | 0 | 0709.4000 | Selja, önnur en seljurót | 01.01.-30.06.15 | ótilgr. | 0 | 0 | 0709.5100 | Sveppir af ættinni Agaricus | 01.01.-31.12.15 | ótilgr. | 0 | 80 |
3. gr. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins og reglugerðar nr. 189/1990 um innflutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum. 4. gr. Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. 5. gr. Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2015. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 19. desember 2014. | F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, | Ólafur Friðriksson. |
Rebekka Hilmarsdóttir. |