Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 721/2013

Nr. 721/2013 10. júlí 2013
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 243/2006, um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 809/2004 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2003/71/EB að því er varðar upplýsingar í lýsingum, svo og framsetningu þeirra, upplýsingar felldar inn með tilvísun, og birtingu lýsinganna, svo og dreifingu auglýsinga.

1. gr.

Reglugerð þessi er sett í samræmi við ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 83/2013, frá 3. maí 2013, um að bæta við IX. viðauka EES-samningsins og taka upp í innlendan rétt reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 311/2012, um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 809/2004 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2003/71/EB að því er varðar þætti tengda lýsingum og auglýsingum.

2. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 311/2012 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 809/2004 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2003/71/EB að því er varðar þætti sem tengjast lýsingum og auglýsingum. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, frá 16. maí 2013, bls. 301.

3. gr.

Ef ósamræmi er á milli íslensks og ensks texta reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 311/2012 skal skýra íslenska textann með hliðsjón af enska textanum.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 54. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 10. júlí 2013.

F. h. r.

Þórhallur Arason.

Guðbjörg Eva H. Baldursdóttir.

B deild - Útgáfud.: 29. júlí 2013