1. gr. Markmið. Markmið þessarar reglugerðar er að innleiða reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar um breytingu á reglugerð (EB) nr. 622/2003 með síðari breytingum um ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnreglum um flugvernd, með þeim breytingum sem lúta að ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 87/2008. 2. gr. Innleiðing. Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans: - Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 1477/2007 frá 13. desember 2007 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 622/2003 um ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnreglum um flugvernd, merkt fylgiskjal XIX, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka EES-samningsins nr. 87/2008 frá 4. júlí 2008.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 23/2008 frá 11. janúar 2008 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 622/2003 um ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnreglum um flugvernd, merkt fylgiskjal XX, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka EES-samningsins nr. 87/2008 frá 4. júlí 2008.
Reglugerðirnar eru birtar sem fylgiskjöl með reglugerð þessari. 3. gr. Gildistaka. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. mgr. 70. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Samgönguráðuneytinu, 27. febrúar 2009. Kristján L. Möller. Ragnhildur Hjaltadóttir. Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal) |