Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 414/2010

Nr. 414/2010 27. apríl 2010
AUGLÝSING
um gjaldskrá vegna stöðvunarbrota í Reykjavíkurborg.

1. gr.

Aukastöðugjald vegna brota á reglum um notkun stöðureita, sbr. 2. mgr. 83. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. f-lið 1. mgr. 108. gr. sömu laga, skal vera 2.500 kr. Veittur er 1.100 kr. afsláttur ef greitt er án fyrirvara og andmæla í bankastofnun eða heimabanka innan þriggja virkra daga frá álagningu gjaldsins.

2. gr.

Stöðvunarbrotagjald vegna annarra stöðvunarbrota sbr. a-e lið 1. mgr. 108. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, að undanskildum j-lið 1. mgr. 28. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 108. gr., skal vera 5.000 kr. Veittur er 1.100 kr. afsláttur ef greitt er án fyrirvara og andmæla í bankastofnun eða heimabanka innan þriggja virkra daga frá álagningu gjaldsins.

3. gr.

Stöðvunarbrotagjald vegna j-liðar 1. mgr. 28. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 108. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, (bílastæði fatlaðra) skal vera 10.000 kr. Veittur er 1.100 kr. afsláttur ef greitt er án fyrirvara og andmæla í bankastofnun eða heimabanka innan þriggja virkra daga frá álagningu gjaldsins.

4. gr.

Frestur til að andmæla stöðvunarbrotagjöldum er 28 dagar frá dagsetningu álagningar.

5. gr.

Séu gjöldin greidd innan 14 daga frá álagningu gilda ofangreindar fjárhæðir, en hækka eftir það um 50%, sbr. 5. mgr. 108. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Sé gjald enn ógreitt þegar 28 dagar eru liðnir frá álagningu, hækkar það um 100% frá upphaflegu gjaldi, án tillits til staðgreiðsluafsláttar og undangenginnar 50% hækkunar eftir 14 daga.

6. gr.

Gjaldskrá þessi sem sem borgarstjórn Reykjavíkur hefur samþykkt staðfestist hér með samkvæmt 5. mgr. 108. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með síðari breytingum, og reglum nr. 104/1988 með síðari breytingum og öðlast gildi við birtingu.

Jafnframt fellur úr gildi auglýsing um fjárhæð gjalda vegna stöðvunarbrota í Reykjavík nr. 381/2000 og auglýsing nr. 84/2004.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 27. apríl 2010.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 14. maí 2010