Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 528/2009

Nr. 528/2009 18. júní 2009
GJALDSKRÁ
vegna vinnslu og heilbrigðiseftirlits með hvalaafurðum.

1. gr.

Gjald fyrir útselda vinnu sérfræðings.

Vegna eftirlits Matvælastofnunar með verkunarstöðvum fyrir hvalkjöt, aðstöðu í hrefnuveiðiskipum og heilbrigðisskoðun á hvalaafurðum, innheimtir stofnunin gjald samkvæmt gjaldskrá þessari fyrir sérfræðing á hverja klukkustund fyrir verkefni og þjónustu sem stofnuninni eru falin skv. reglugerð nr. 489/2009 um vinnslu og heil­brigðis­eftirlit með hvalaafurðum og sem heimilt er að taka gjald fyrir. Gjaldið skal vera:

a. Eftirlit sem framkvæmt er á dagvinnutíma (frá kl. 8.00 til kl. 17.00) 7.460 kr./klst.

b. Eftirlit sem framkvæmt er á yfirvinnutíma (frá kl. 17.00 til kl. 8.00) 12.396 kr./klst.

2. gr.

Ferðakostnaður.

Matvælastofnun innheimtir ferða- og uppihaldskostnað í samræmi við reglur ferða­kostn­að­arnefndar fjármálaráðuneytisins.

3. gr.

Gjald vegna útgáfu starfsleyfis fyrir verkunarstöðvar og hrefnuveiðiskip.

Matvælastofnun innheimtir gjald fyrir útgáfu starfsleyfa fyrir hrefnuveiðiskip, sbr. 4. gr. og fyrir verkunarstöðvar sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 489/2009. Gjaldið skal vera:

a. Starfsleyfi fyrir hrefnuveiðiskip, kr. 29.840.

b. Starfsleyfi fyrir verkunarstöðvar fyrir hvalkjöt, kr. 119.360.

Reikningur skal gefinn út við móttöku umsóknar. Hafi útgáfa starfsleyfis í för með sér meiri kostnað fyrir Matvælastofnun en nemur gjaldi skv. 1. mgr. er heimilt að innheimta tímagjald fyrir slíka umframvinnu skv. 1. gr. Þegar ljóst er að útgáfa leyfis hefur í för með sér umframvinnu skal um­sækjanda gerð grein fyrir umfangi þeirrar vinnu. Reikningur vegna frekari vinnu skal gefinn út þegar ákvörðun um útgáfu leyfis liggur fyrir.

4. gr.

Útgáfa uppruna- og heilbrigðisvottorða.

Matvælastofnun innheimtir gjald til að standa undir kostnaði vegna útgáfu uppruna- og heilbrigðisvottorða kr. 4.000 pr. vottorð.

Sé útgáfa vottorðs umfangsmikil og hafi í för með sér meiri kostnað fyrir Matvælastofnun en fjallað er um í 1. mgr. er heimilt að innheimta tímagjald fyrir slíka umframvinnu skv. 1. gr. Þegar ljóst er að útgáfa vottorðs hefur í för með sér umframvinnu skal um­sækjanda gerð grein fyrir umfangi þeirrar vinnu. Reikningur vegna frekari vinnu skal gefinn út þegar ákvörðun um útgáfu vottorðs liggur fyrir.

5. gr.

Kostnaður vegna sýnatöku og rannsókna.

Kostnaður við sýnatökur og rannsóknir sýna, sbr. 19. gr. reglugerðar nr. 489/2009 skal greiddur af starfsleyfishafa.

6. gr.

Innheimta.

Eindagi gjalda skv. gjaldskrá þessari er 30 dögum eftir útgáfu reiknings. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga hafi gjöld ekki verið greidd á eindaga. Heimilt er að innheimta kostnað sem hlýst af innheimtu gjalda séu þau ekki greidd á eindaga.

7. gr.

Annað.

Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt heimild í 20. gr. reglugerðar nr. 489/2009 og öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 18. júní 2009.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Baldur P. Erlingsson.

B deild - Útgáfud.: 18. júní 2009