Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 14/2009

Nr. 14/2009 8. janúar 2009
REGLUGERÐ
um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Evrópubandalaginu.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um úthlutun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á tollkvótum samkvæmt samningi milli Íslands og Evrópubandalagsins um viðskipti með landbúnaðar­vörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og með vísun til 4. mgr. 12. gr. tollalaga, nr. 88/2005, með síðari breytingum, og í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.

Tollkvótar samkvæmt reglugerð þessari taka til vara sem upprunnar eru í ríkjum Evrópu­bandalagsins sbr. bókun 4 við EES-samninginn.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vöruliður:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

kg

%

kr./kg

0202

Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst

01.01.09 - 31.12.09

100.000

0

0

0203.2100,

0203.22xx

Svínakjöt, fryst

01.01.09 - 31.12.09

100.000

0

0

0203.29xx

Svínakjöt, fryst

01.01.09 - 31.12.09

100.000

0

0

0207.1200,

0207.3300

Kjöt af alifuglum, fryst

01.01.09 - 31.12.09

100.000

0

0

0207

Kjöt af alifuglum, fryst

01.01.09 - 31.12.09

100.000

0

0

0208.9003

Rjúpur, frystar

01.01.09 - 31.12.09

ótilgreint

0

0

ex 0210

Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum (**)

01.01.09 - 31.12.09

50.000

0

0

ex 0406

Ostur og ystingur (**)

01.01.09 - 31.12.09

20.000

0

0

0406

Ostur og ystingur

01.01.09 - 31.12.09

80.000

0

0

1601

Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum

01.01.09 - 31.12.09

50.000

0

0

1602

Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum

01.01.09 - 31.12.09

50.000

0

0

(**) Skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 510/2006 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.

Við innflutning á vörum sem falla undir þau tollskrárnúmer þar sem vörumagn er ótil­greint skal gilda sá verð- og/eða magntollur sem tilgreindur er í 1. mgr. yfir tilgreint tímabil.

3. gr.

Tollkvótum er úthlutað samkvæmt auglýsingu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins þar sem vísað er til skilmála reglugerðar þessarar.

4. gr.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Tilboð skulu ráða úthlutun. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, sparisjóðs eða vá­trygginga­félags þar sem fram kemur að viðkomandi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt.

Tilboðsgjafi sá er hæst býður skal leysa til sín úthlutaðan tollkvóta með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá dagsetningu tilkynningar um niðurstöðu útboðs.

Úthlutun er ekki framseljanleg.

5. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 509/2004 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

6. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

7. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 4. mgr. 12. gr. tollalaga og 65. gr. B laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2009.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 8. janúar 2009.

Einar K. Guðfinnsson.

Arnór Snæbjörnsson.

B deild - Útgáfud.: 13. janúar 2009