Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 483/2015

Nr. 483/2015 27. maí 2015

AUGLÝSING
um (2.) breytingu á gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands, nr. 13/2015, fyrir hjúkrunarþjónustu öldrunarstofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2015 og eru án samnings um verð við Sjúkratryggingar Íslands.

1. gr.

Í stað síðasta málsliðar 6. gr. komi:

Gjaldskráin gildir frá 1. janúar 2015 og er gildistími sá sami og gildistími reglugerðar nr. 1184/2014, með síðari breytingum.

2. gr.

Auglýsing þessi um breytingu á gjaldskránni, sem sett er með stoð í 38. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, reglugerð nr. 1184/2014 um greiðslu kostnaðar vegna heilbrigðisþjónustu í hjúkrunarrýmum öldrunarstofnana sem eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands, með síðari breytingum, og reglugerð nr. 1185/2014 um daggjöld fyrir dvalarrými, dagdvalarrými og hjúkrunarrými sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2015, öðlast gildi 1. júní 2015.

Sjúkratryggingum Íslands, 27. maí 2015.

Steingrímur Ari Arason.

Katrín E. Hjörleifsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 28. maí 2015