1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 114. gr.: Í upptalningu greina til meistaraprófs í 114. gr. bætist ný málsgrein aftan við meistaranám í öldrunarfræðum svohljóðandi: MA-nám í norrænni trú er sérstaklega skipulagt 60 eininga nám á ensku að loknu BA-prófi eða sambærilegu háskólaprófi. Í upptalningu greina í diplómanámi á meistarastigi í 114. gr. bætist ný málsgrein aftan við diplómanám í félagsráðgjöf svohljóðandi: Diplómanám í barnavernd er sjálfstætt 15 eininga nám að loknu BA-prófi eða sambærilegu háskólaprófi. Nám þetta er hægt að fá metið inn í MA-nám að uppfylltum inntökuskilyrðum. 2. gr. Gildistaka og lagastoð. Ákvæði reglna þessara, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli laga um Háskóla Íslands nr. 41/1999, öðlast þegar gildi. Háskóla Íslands, 29. nóvember 2007. Kristín Ingólfsdóttir. Þórður Kristinsson. |