Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 167/2014

Nr. 167/2014 14. febrúar 2014
REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 284/2011 um sérstök skilyrði og nákvæmar verklagsreglur vegna innflutnings á eldhússáhöldum úr polýamíð- og melamínplasti sem eru upprunnin í Alþýðuveldinu Kína og Hong Kong, sérstjórnarsvæði Alþýðuveldisins Kína, eða send þaðan.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 134/2007 frá 26. október 2007 öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 284/2011 um sérstök skilyrði og nákvæmar verklagsreglur vegna innflutnings á eldhússáhöldum úr polýamíð- og melamínplasti sem eru upprunnin í Alþýðuveldinu Kína og Hong Kong, sérstjórnar­svæði Alþýðuveldisins Kína, eða send þaðan.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 284/2011 er birt sem fylgiskjal við reglu­gerð þessa.

3. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt vegna matvæla í samræmi við 6., 14. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli. Um eftirlitsgjald fer sam­kvæmt 25. gr. sömu laga.

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

6. gr.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. febrúar 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Halldór Runólfsson.

Eggert Ólafsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 17. febrúar 2014