1. gr. Blönduósbær innheimtir gjald fyrir fráveitu og hreinsun rotþróa í sveitarfélaginu skv. gjaldskrá þessari, sbr. III. kafla samþykktar um fráveitur og rotþrær í Blönduósbæ. 2. gr. Stofngjald fyrir tengingu og lagningu frárennslislagna við holræsakerfi sveitarfélagsins skal vera kr. 25.000. 3. gr. Álagningarstofn fráveitugjalds skal vera fasteignamat húsa, mannvirkja, lóða og landa, samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 94/1976, með síðari breytingum. Fráveitugjald skal nema 0,275% af álagningarstofni. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki fráveitugjald. Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts. 4. gr. Árlegt rotþróargjald skal vera eftirfarandi: | Rotþró 0-2.000 lítra | kr. | 7.850 pr. þró | | Rotþró 2.001-4.000 lítra | kr. | 9.850 pr. þró | | Rotþró 4.001-6.000 lítra | kr. | 10.750 pr. þró | | Rotþró 6.001 lítra og stærri | kr. | 13.500 pr. Þró |
Gjald miðast við að barkalengd hreinsibíls sé 50 metrar eða styttri. Fyrir barkalengd umfram 50 metra skal eigandi greiða sérstaklega skv. reikningi. 5. gr. Fyrir aukalosun skal innheimta gjald kr. 7.850 fyrir hverja losun. 6. gr. Gjaldskrá þessi er sett með vísan til 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir með síðari breytingum og á grunni samþykktar um fráveitur og rotþrær í Blönduósbæ og öðlast þegar gildi. Gjaldskráin var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Blönduósbæjar þann 21. desember 2011 og samþykkt í heilbrigðisnefnd Norðurlands vestra 13. mars 2012. Blönduósi, 14. mars 2012. Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóri. |