Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 636/2015

Nr. 636/2015 23. júní 2015

REGLUGERЭ
um breytingu á reglugerð um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf, nr. 522/2004, með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr.:

  1. Heiti greinarinnar verður: Skilmálar nýrra ÍLS-veðbréfa.
  2.  5. mgr. orðast svo: Lánstími ÍLS-veðbréfs getur verið allt frá 5 árum til 35 ára. Við ákvörðun lánstíma skal leitast við að jafna inn- og útstreymi fjármögnunar og útlána sjóðsins auk þess sem líta skal til greiðslugetu skuldara og veðstöðu láns. Stjórn Íbúðalánasjóðs setur nánari reglur um lánstíma og veðstöðu láns.
  3. Við greinina bætist ný málsgrein svohljóðandi: Heimilt er að stytta eða lengja lánstíma veðbréfa þannig að lánstími geti verið allt að 35 árum. Stytting lánstíma er þó ekki heimil ef lántaki hefur undirritað yfirlýsingu skv. 3. mgr. 15. gr. reglugerðar þessarar. Lenging og stytting láns er skilmálabreyting sem er háð samþykki síðari veðhafa og skal henni þinglýst. Stjórn Íbúðalánasjóðs setur nánari reglur um lánstíma veðbréfa og breytingu á honum.

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 21. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum, tekur þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 23. júní 2015.

Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.

 

Bolli Þór Bollason.


B deild - Útgáfud.: 13. júlí 2015