Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 102/2010

Nr. 102/2010 2. júlí 2010

LÖG
um breytingu á lögum nr. 50/2009, um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði.

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.
    Við 1. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Framkvæmd laga þessara heyrir undir félags- og tryggingamálaráðherra.

2. gr.
    Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
    a.    Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi: 
               Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. getur greiðsluaðlögun tekið til fasteignar af þeim toga sem þar um ræðir þótt skuldarinn haldi þar hvorki heimili né hafi þar skráð lögheimili ef hann er íslenskur ríkisborgari sem tímabundið er búsettur erlendis vegna náms, starfa eða veikinda.
    b.    2. tölul. 3. mgr. orðast svo: Krafna sem tryggðar eru með samningsveði og hvíla á skuldaranum sjálfum eða einhverjum eigenda séu þeir fleiri en einn, sbr. þó 6. mgr.
    c.    Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi: 
               Nú hvílir á fasteigninni tryggingarbréf sem veitir veðréttindi fyrir kröfum veðhafans á hendur skuldaranum eða einhverjum eigenda séu þeir fleiri en einn. Meðan á greiðsluaðlögunartíma stendur skulu þá eingöngu falla undir veðtrygginguna kröfur sem gjaldfallnar voru þegar heimild var veitt til greiðsluaðlögunar og námu þá samanlagt að hámarki þeirri fjárhæð sem tryggingarbréfið hljóðar á um.

3. gr.
    Í stað orðanna „hann á lögheimili“ í 1. málsl. 1. mgr. 3. gr. laganna kemur: sú fasteign sem greiðsluaðlögun varðar er.

4. gr.
    Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:
    a.    Orðin „til greiðsluaðlögunar“ í 2. málsl. 1. mgr. og 1. málsl. 3. mgr. falla brott.
    b.    2. málsl. 3. mgr. fellur brott.
    c.    Í stað orðsins „Dómsmálaráðherra“ í 1. og 2. málsl. 4. mgr. kemur: Ráðherra.

5. gr.
    Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:
    a.    Við 3. málsl. 1. mgr. bætist: nema sérstakar og tímabundnar ástæður séu fyrir hendi.
    b.    Á eftir 3. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Við slíkar aðstæður er umsjónarmanni heimilt að ákveða tímabundið lægri mánaðargreiðslu til greiðslu veðkrafna en þó ekki lægri en 60% af hæfilegri húsaleigu.

6. gr.
    Orðin „að viðbættum 10 hundraðshlutum“ í 2. málsl. 1. mgr. 12. gr. falla brott.

7. gr.
    Lög þessi öðlast gildi 1. ágúst 2010.

Gjört á Bessastöðum, 2. júlí 2010.

Ólafur Ragnar Grímsson.
(L. S.)

Árni Páll Árnason.


A-deild - Útgáfud.: 5. júlí 2010

  Til baka