Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
799/2010
|
Með vísan til 5. mgr. 13. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 hafa umhverfisráðherra og utanríkisráðherra staðfest niðurfellingu á svæðisskipulagi fyrir Reykjanesbæ, Sandgerðisbæ, Gerðahrepp og Keflavíkurflugvöll 1995-2015 frá 7. október 1996. Núgildandi hávaðamarkalína vegna flugumferðar frá Keflavíkurflugvelli fellur brott og stendur þá einungis eftir skýringarmynd með hávaðalínum. Með niðurfellingu hávaðamarkalínunnar verða engin skipulagsákvæði eftir í svæðisskipulaginu og því ekki lengur lagalegur grundvöllur fyrir tilvist svæðisskipulagsins, sbr. 1. mgr 12. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur málsmeðferð verið í samræmi við skipulags- og byggingarlög. Skipulagsstofnun hefur yfirfarið erindið og sent ráðherra til staðfestingar. Niðurfelling svæðisskipulags fyrir Reykjanesbæ, Sandgerðisbæ, Gerðahrepp og Keflavíkurflugvöll 1995-2015 öðlast þegar gildi. Umhverfisráðuneytinu, 6. október 2010. F. h. r. Magnús Jóhannesson. Íris Bjargmundsdóttir. Utanríkisráðuneytinu, 20. september 2010. Össur Skarphéðinsson.
|
B-deild - Útgáfud.:
20. október 2010
|