1. gr. Eftirfarandi breyting verður á 8. gr. Ný málsgrein bætist aftan við 1. mgr. og verður 2. mgr. svohljóðandi: Forstöðumaður vinnur að rannsóknum á sviði siðfræði: - með eigin rannsóknum,
- með umsóknum og þátttöku í íslenskum, norrænum og evrópskum rannsóknaráætlunum,
- með því að hvetja til rannsókna á sviði siðfræði.
Önnur og þriðja málsgrein verða þriðja og fjórða málsgrein. 2. gr. Gildistaka. Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli heimildar í 2. mgr. 19. gr. laga nr. 41/1999, sbr. 26. gr. reglna nr. 458/2000 fyrir Háskóla Íslands, öðlast þegar gildi. Háskóla Íslands, 30. ágúst 2007. Kristín Ingólfsdóttir. Þórður Kristinsson. |