1. gr. Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi EB-gerðir gildi hér á landi: | A) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 721/2008 frá 25. júlí 2008 um leyfi fyrir efnablöndu með bakteríunni Paracoccus carotinifaciens, sem er auðug af rauðu karótenóíði, sem aukefni í fóðri. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 57/2009 frá 30. maí 2009. | | B) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 775/2008 frá 4. ágúst 2008 um að setja hámarksgildi fyrir leifar kantaxatíns, sem er aukefni í fóðri, til viðbótar þeim skilyrðum sem kveðið er á um í tilskipun 2003/7/EB. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 42/2009 frá 25. apríl 2009. | | C) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 971/2008 frá 3. október 2008 varðandi nýja notkun hníslalyfs sem aukefni í fóðri. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 57/2009 frá 30. maí 2009. |
2. gr. Um aukefni samkvæmt ofangreindum reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (EB) vísast að öðru leyti til 13. gr. reglugerðar nr. 340/2001 og 3. viðauka sömu reglugerðar. 3. gr. Ofangreindar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (EB) eru birtar sem fylgiskjöl A, B og C við reglugerð þessa. 4. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 11. desember 2009. F. h. r. Sigurgeir Þorgeirsson. Baldur P. Erlingsson. Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal) |