1. gr. 3. gr. reglugerðarinnar breytist þannig: Í stað orðanna „31. desember 2012“ í síðari málsl. 1. mgr. kemur: 31. desember 2013. Við greinina bætast fjórar nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Sjúkratryggingar Íslands endurgreiða pörum/einhleypri konu 65% útlagðs kostnaðar vegna fyrstu meðferðar, sbr. 1. og 2. mgr., þegar um er að ræða yfirvofandi ófrjósemisvandamál konunnar vegna fyrirsjáanlegrar lyfjameðferðar, geislameðferðar eða beinmergsflutnings. Sjúkratryggingar Íslands endurgreiða 65% útlagðs kostnaðar vegna ástungu á eista og frystingu sáðfruma þegar um er að ræða karlmenn með yfirvofandi ófrjósemisvandamál vegna fyrirsjáanlegrar lyfjameðferðar, geislameðferðar eða beinmergsflutnings. Í þeim tilfellum sem tilgreind eru í 4. og 5. mgr. er Sjúkratryggingum Íslands heimilt að greiða 90% útlagðs kostnaðar vegna geymslugjalds á frystum fósturvísum/sáðfrumum, þó að hámarki í 10 ár. Endurgreiðslan skv. 5. og 6. mgr. miðast við gjaldskrá sem Sjúkratryggingar Íslands gefa út. 2. gr. 8. gr. reglugerðarinnar breytist þannig: Í stað orðanna „31. desember 2012“ í fyrri málsl. greinarinnar kemur: 31. desember 2013. 3. gr. Á eftir 8. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein sem verður 9. gr. svohljóðandi: Ákvæði til bráðabirgða. Heimild til kostnaðarþátttöku í fyrstu meðferð, sbr. 4. og 5. mgr. 3. gr., gildir frá og með 1. janúar 2012. 4. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 19. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, öðlast þegar gildi. Velferðarráðuneytinu, 12. nóvember 2012. Guðbjartur Hannesson. Hrönn Ottósdóttir. |