Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
902/2009
|
1. gr. Almenn ákvæði. Með reglugerð þessari eru sett ákvæði um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993. Þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins varðandi Belarús byggja á sameiginlegri afstöðu ráðs Evrópusambandsins 2006/276/CFSP frá 10. apríl 2006 ásamt síðari breytingum, uppfærslum og viðbótum: sameiginleg afstaða 2006/362/CFSP, ákvörðun ráðsins 2006/718/CFSP og sameiginleg afstaða 2009/314/CFSP. Gerðir Evrópusambandsins, þ.m.t. uppfærðir listar yfir aðila og hluti sem þvingunaraðgerðir beinast að eða varða, eftir því sem við á, eru birtar á vefsetri þess (http://ec.europa.eu/external_relations/cfsp/sanctions/index_en.htm). Ákvæði reglugerðar nr. 119/2009 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skulu gilda um framkvæmd reglugerðar þessarar. 2. gr. Landgöngubann. Einstaklingum, sem tilgreindir eru í I. viðauka, er óheimilt að koma til landsins eða hafa hér viðkomu, sbr. 1. gr. 2006/276/CFSP og síðari breytingar, uppfærslur og viðbætur. 3. gr. Frysting fjármuna. Frysta skal fjármuni og efnahagslegan auð í eigu aðila sem tilgreindir eru í II. viðauka, sbr. 1. gr. 2006/362/CFSP og síðari breytingar, uppfærslur og viðbætur. 4. gr. Undanþágur frá þvingunaraðgerð. Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til á grundvelli gerða Evrópusambandsins, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum. 5. gr. Viðurlög. Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. 6. gr. Heimild. Reglugerð þessi er sett með heimild í 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008. 7. gr. Gildistaka. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi. Utanríkisráðuneytinu, 26. október 2009. Össur Skarphéðinsson. Einar Gunnarsson. VIÐAUKAR (sjá PDF-skjal)
|
B-deild - Útgáfud.:
10. nóvember 2009
|