Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 599/2009

Nr. 599/2009 19. júní 2009
SAMÞYKKT
um stjórn Sveitarfélagsins Árborgar og fundarsköp bæjarstjórnar.

I. KAFLI

Um skipan bæjarstjórnar og verkefni hennar.

1. gr.

Stjórn Sveitarfélagsins Árborgar nefnist bæjarstjórn og er skipuð 9 bæjarfulltrúum kjörnum skv. lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.

2. gr.

Starfstímabil bæjarstjórnar hefst 15 dögum eftir kjördag í sveitarstjórnarkosningum og gildir til jafnlengdar að fjórum árum liðnum.

3. gr.

Bæjarstjórn fer með stjórn Sveitarfélagsins Árborgar samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga. Jafnframt fer bæjarstjórn með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum sveitarfélagsins að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn.

4. gr.

Bæjarstjórn skal gæta hagsmuna sveitarfélagsins og vera í fyrirsvari fyrir það og vinna að sameiginlegum velferðarmálum íbúa þess. Í störfum sínum skal bæjarstjórnin leitast við að ná því grundvallarmarkmiði að tryggja að ákvarðanir hennar og vinna skuli fyrst og fremst vera í þágu allra íbúa sveitarfélagsins. Slíkt leggur þær skyldur á herðar fulltrúum í bæjarstjórn að setja ávallt almannahagsmuni ofar sérhagsmunum hvort heldur er sínum eigin eða einstakra hópa.

5. gr.

Bæjarstjórn annast þau verkefni sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og samþykktum. Þá getur bæjarstjórn ákveðið að sveitarfélagið taki að sér verkefni sem varða íbúa þess enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum.

6. gr.

Meðal annarra verkefna bæjarstjórnar er:

1. Að kjósa forseta og varaforseta bæjarstjórnar, bæjarráð, nefndir og stjórnir skv. V. kafla samþykktar þessarar, kjósa skoðunarmenn til að yfirfara ársreikninga sveitarfélagsins og ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem vinna skal að endurskoðun hjá sveitarfélaginu.

2. Að setja og birta samþykktir og gjaldskrár eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.

3. Að stjórna fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga og VII. kafla samþykktar þessarar.

4. Að ákveða stjórnskipan sveitarfélagsins og ráða bæjarstjóra og helstu stjórnendur hjá sveitarfélaginu.

II. KAFLI

Um fundarsköp bæjarstjórnar.

7. gr.

Bæjarstjórn heldur reglulega fundi annan miðvikudag hvers mánaðar. Reglulegir bæjarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 17.00. Heimilt er að fella niður fundi í bæjarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi.

Aukafundi skal halda í bæjarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati bæjarstjóra eða forseta bæjarstjórnar og skylt er að halda aukafund ef a.m.k. þriðjungur bæjarfulltrúa krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.

8. gr.

Sá kjörinn fulltrúi sem á að baki lengstu setu í bæjarstjórn kveður hana saman til fyrsta fundar að loknum bæjarstjórnarkosningum, eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum, sbr. 2. gr. samþykktar þessarar, þ.e. eigi síðar en 30 dögum eftir kjördag.

Hafi tveir eða fleiri fulltrúar í bæjarstjórn átt jafnlengi setu í bæjarstjórn fer sá eldri eða elsti þeirra með fundarboð skv. 1. mgr.

9. gr.

Bæjarstjóri boðar bæjarstjórnarfundi og ákveður jafnframt fundarstað hafi bæjarstjórn ekki gert það.

10. gr.

Íbúum Sveitarfélagsins Árborgar skal kunngert með auglýsingu hvar og hvenær bæjarstjórnarfundir eru haldnir. Miða skal við að sem flestir íbúar sveitarfélagsins hafi greiðan aðgang að auglýsingunni.

Í upphafi kjörtímabils bæjarstjórnar tekur hún ákvörðun um hvernig fundir hennar verði auglýstir. Skal sú ákvörðun kynnt íbúum sveitarfélagsins með tryggum hætti með auglýsingu á vefsvæði sveitarfélagsins og/eða í staðbundnum fréttablöðum.

11. gr.

Bæjarstjóri semur dagskrá bæjarstjórnarfundar í samráði við forseta og skal dagskráin fylgja fundarboði.

Á dagskrá bæjarstjórnar skal taka:

1. Lögákveðnar kosningar, svo sem kosningar forseta bæjarstjórnar og varaforseta, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarstjórnar svo og ráðningu bæjarstjóra og annarra starfsmanna í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu.

2. Fundargerðir bæjarráðs, nefnda og stjórna á vegum sveitarfélagsins, sbr. 49. gr. sveitarstjórnarlaga.

3. Önnur mál sem falla undir verksvið bæjarstjórnar og bæjarstjóri ákveður að taka á dagskrá eða einhver bæjarfulltrúi óskar að tekin verði á dagskrá. Óski bæjarfulltrúi eftir slíku skal hann tilkynna það bæjarstjóra skriflega með tillögu eða fyrirspurn a.m.k. fjórum sólarhringum fyrir fund.

4. Dagskrá bæjarstjórnarfundar skulu fylgja afrit fundargerða, tillögur og önnur gögn sem bæjarstjóri telur nauðsynleg og ekki hefur áður verið dreift til bæjarfulltrúa.

12. gr.

Bæjarstjóri skal hafa boðsent bæjarfulltrúum fundarboð bæjarstjórnarfundar ásamt dagskrá og fylgigögnum í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir bæjarstjórnarfund.

13. gr.

Dagskrá bæjarstjórnarfundar skal vera aðgengileg bæjarbúum. Þegar hún hefur verið samin skal hún sett á vefsíðu sveitarfélagsins eða auglýst á bæjarskrifstofu á venjulegum afgreiðslutíma eða með öðrum hætti sem bæjarstjórn ákveður.

14. gr.

Aukafundir bæjarstjórnar skulu boðaðir á sama hátt og reglulegir bæjarstjórnarfundir ef því verður við komið með a.m.k. sólarhrings fyrirvara.

15. gr.

Sá bæjarfulltrúi, er boðar til fyrsta fundar skv. 8. gr., setur fyrsta fund nýkjörinnar bæjarstjórnar og stýrir honum uns forseti bæjarstjórnar hefur verið kjörinn.

Forseti bæjarstjórnar skal kjörinn til eins árs í senn. Ef forseti nýtur ekki lengur stuðnings meirihluta þeirra sem sæti eiga í bæjarstjórn, skal hann víkja sæti og forsetakjör fara fram á ný.

Sá er rétt kjörinn forseti sem fengið hefur atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í bæjarstjórninni. Verði þeim atkvæðafjölda eigi náð skal kjósa að nýju um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri bæjarfulltrúar fengið jafnmörg atkvæði ræður hlutkesti milli hverra tveggja þeirra skuli kjósa. Verður sá rétt kjörinn forseti bæjarstjórnar sem fleiri atkvæði fær þótt hann fái ekki helming atkvæða. Verði atkvæði jöfn skal hlutkesti ráða kosningu.

Forseti bæjarstjórnar stjórnar kjöri tveggja varaforseta bæjarstjórnar og skal sömu aðferð beitt við kosningu þeirra, sbr. 3. mgr. Varaforsetar skulu kjörnir til jafnlangs tíma og forseti. Tilkynna skal kjör forseta og varaforseta til samgöguráðuneytisins þegar að því loknu.

Sé enginn forseta á fundi gegnir aldursforseti forsetastörfum nema bæjarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra.

Ef forseti deyr eða verður varanlega forfallaður skal kjósa forseta í hans stað til loka kjörtímabils hans.

16. gr.

Bæjarstjórn kýs tvo skrifara og tvo varaskrifara úr hópi bæjarfulltrúa til eins árs í senn á sama fundi og forsetakosning fer fram. Skrifarar skulu telja atkvæði við kosningar og þegar atkvæðagreiðslur fara fram í bæjarstjórn.

17. gr.

Bæjarstjórnarfundi skal halda í heyranda hljóði og er almenningi heimilaður aðgangur að þeim eftir því sem húsrúm leyfir.

Bæjarstjórnarfundur skal haldinn í húsnæði sem fullnægir ákvæðum skipulags- og byggingarlaga og byggingarreglugerðar um aðgang fatlaðs fólks.

Bæjarstjórn getur ákveðið að einstök mál verði rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt, svo sem viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál. Tillaga um að mál skuli rædd fyrir luktum dyrum skal afgreidd umræðulaust í bæjarstjórn. Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í bæjarstjórn.

18. gr.

Bæjarstjórnarfundur er lögmætur ef meira en helmingur bæjarfulltrúa er á fundi. Bæjarstjórn getur enga bindandi ályktun gert nema fundur sé lögmætur.

19. gr.

Forseti bæjarstjórnar stýrir fundum hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Jafnframt sér hann um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók bæjarstjórnar og að allar ályktanir og samþykktir séu nákvæmlega bókaðar. Forseti úrskurðar um skilning á fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar.

Forseti sér um að allt fari skipulega og löglega fram á bæjarstjórnarfundum og er bæjarfulltrúum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp og góða reglu. Hann skal stjórna málefnaumfjöllun þannig að þau mál sem til umræðu eru hverju sinni skulu fullrædd og afgreidd eftir atvikum áður en næsta mál er tekið til umfjöllunar.

Raski áheyrandi fundarfriði getur forseti vísað honum úr fundarsal.

20. gr.

Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í bæjarstjórn í þeirri röð sem þau eru á dagskrá nema forseti eða bæjarstjórn ákveði annað. Heimilt er að taka mál til meðferðar á bæjarstjórnarfundi sem ekki hefur verið á dagskrá ef 2/3 viðstaddra bæjarfulltrúa samþykkja slíkt afbrigði.

21. gr.

Bæjarstjórn afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni:

1. Fjárhagsáætlun sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.

2. Ársreikninga sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.

3. Samþykktir og reglugerðir sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.

4. Áætlanir fyrir sveitarfélagið sem gilda eiga til lengri tíma, svo sem þriggja ára áætlanir og skipulags- og framkvæmdaáætlanir.

5. Tilkynningu til eftirlitsnefndar skv. 75. gr. sveitarstjórnarlaga.

22. gr.

Bæjarfulltrúa er skylt að sækja alla bæjarstjórnarfundi stundvíslega nema lögmæt forföll hamli svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi. Sé bæjarfulltrúi forfallaður boðar hann varamann sinn og tilkynnir það bæjarstjóra. Varamenn taka sæti í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast. Ef framboðslisti er borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum, geta aðalmenn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfallast, sbr. 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Yfirlýsing um slíkt samkomulag skal lögð fram á fyrsta eða öðrum fundi bæjarstjórnar eftir kosningar.

Nú næst ekki samkomulag milli stjórnmálaflokka eða samtaka sem standa að sameiginlegum lista, og skulu þá þeir varamenn listans, sem eru úr sama stjórnmálaflokki eða samtökum og aðalmaður sá sem um er að ræða, taka sæti hans í sveitarstjórn í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð varamanna. Sé enginn úr hópi varamanna slíks lista í sama stjórnmálaflokki eða samtökum og aðalfulltrúinn, sem í hlut á var þegar kosning fór fram, taka varamenn listans sæti samkvæmt venjulegum reglum.

Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt en ekki hefur hann atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn bæjarfulltrúi.

Bæjarstjórn getur heimilað að maður utan bæjarstjórnar taki til máls á bæjarstjórnarfundi.

23. gr.

Bæjarfulltrúa ber að víkja sæti við umræður og afgreiðslu máls þegar það varðar hann, náin skyldmenni eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt megi ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti af því. Sama á við sé hann fyrirsvarsmaður aðila sem málið varðar með sambærilegum hætti.

Bæjarfulltrúi er ekki vanhæfur þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum bæjarstjórnarinnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf.

Bæjarfulltrúar sem jafnframt eru starfsmenn sveitarfélagsins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir bæjarstjórnina eru alltaf vanhæfir þegar bæjarstjórnin fjallar um málið. Þetta á þó hvorki við um bæjarstjóra né þegar bæjarstjórnin fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélagsins.

Bæjarfulltrúa, sem veit, að hæfi hans orkar tvímælis, ber að vekja athygli bæjarstjórnar á því.

Bæjarfulltrúa er heimilt við meðferð máls, sem hann er vanhæfur til að afgreiða, að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Bæjarstjórn sker umræðulaust úr um hvort mál er svo vaxið að einhver bæjarfulltrúi sé vanhæfur. Bæjarfulltrúi sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi hans.

Bæjarfulltrúi sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal bæjarstjórnar við meðferð og afgreiðslu þess.

24. gr.

Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á bæjarstjórnarfundum. Bæjarfulltrúi sem vill taka til máls skal óska heimildar forseta. Að jafnaði skulu bæjarfulltrúar taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða bæjarstjóra, framsögumann í máli eða bæjarfulltrúa sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri. Hafi tveir eða fleiri bæjarfulltrúar kvatt sér hljóðs samtímis, ákveður forseti í hvaða röð þeir skuli tala.

Bæjarfulltrúi skal flytja mál sitt úr ræðustól nema forseti leyfi annað.

25. gr.

Bæjarfulltrúi skal ávarpa forseta í upphafi máls síns og beina máli sínu til hans og/eða fundarins. Þegar til umræðu er fundargerð bæjarráðs, nefndar, ráðs eða stjórnar, skal bæjarfulltrúi taka fram hvaða lið eða liði fundargerða hann óskar að ræða.

Bæjarfulltrúi má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó bæjarfulltrúa að taka oftar til máls til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn forseta. Bæjarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður má þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls.

Ekki má bæjarfulltrúi lesa upp prentað mál við umræður í bæjarstjórn nema með leyfi forseta.

26. gr.

Beri bæjarfulltrúi aðra menn brigslum skal forseti víta hann. Forseti getur lagt til við bæjarstjórn að bæjarfulltrúi, sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi, verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust. Hlýði bæjarfulltrúi ekki úrskurði forseta eða bæjarstjórnar eða ef óregla kemur upp á fundi skal forseti gera fundarhlé, fresta fundi eða slíta ef nauðsyn krefur.

27. gr.

Telji forseti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers bæjarfulltrúa verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver bæjarfulltrúi getur og borið fram slíkar tillögur. Bæjarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún standi skemur en tvær klukkustundir. Umræður um fjárhagsáætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar.

28. gr.

Bæjarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar ef forseti óskar þess. Forseti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu og skal þá styðjast við viðurkennd fundarsköp.

Bæjarfulltrúi á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til máls sem til meðferðar er í bæjarstjórn. Heimilt er að hafa bókanir lengri þegar fjallað er um frumvarp að fjárhagsáætlun og ársreikning bæjarsjóðs og stofnana hans.

29. gr.

Mál er afgreitt í bæjarstjórn með því að samþykkja það eða fella, vísa því frá bæjarstjórn eða til afgreiðslu bæjarráðs, nefndar, stjórnar eða bæjarstjóra. Máli sem bæjarstjórn ber að lögum að afgreiða verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra.

Bæjarstjórn er heimilt að fresta afgreiðslu máls nema um sé að ræða mál sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma.

30. gr.

Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Forseti biður þá bæjarfulltrúa sem samþykkja mál, að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar forseti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.

Ef mál er svo vaxið að forseti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.

Forseti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber forseta að láta fara fram nafnakall ef einhver bæjarfulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá bæjarfulltrúa í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða bæjarfulltrúi greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar bæjarfulltrúi þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei, eftir því hvort hann er með máli eða móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæðagreiðslu.

Heimilt er bæjarfulltrúa að gera stutta grein fyrir atkvæði sínu. Bæjarfulltrúi sem óskar eftir að gera grein fyrir atkvæði sínu skal bera fram ósk þess efnis við forseta við atkvæðagreiðslu.

Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess.

31. gr.

Á bæjarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu.

Ef jafnmörg atkvæði eru með máli og á móti því fellur það en við kosningar ræður hlutkesti. Kosningar sem fram fara í bæjarstjórn skulu vera hlutfallskosningar skv. d´Hondts reglu, sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998.

Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal hún fara fram eins og við forsetakjör.

32. gr.

Bæjarritari annast ritun fundargerða bæjarstjórnar, í fjarveru bæjarritara ákveður bæjarstjóri hver ritar fundargerð. Fundarritari skal ávallt vera aðili sem ekki á sæti í bæjarstjórn. Í inngangi fundargerðar skal þess getið hvar fundir eru haldnir og hvenær. Þá skal þess getið hverjir sitja fundinn:

a. kjörnir fulltrúar,

b. aðrir fulltrúar.

Geta skal um boðuð forföll fulltrúa og í lok inngangs hver ritar fundargerð.

Í fundargerð skal skrá þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila mála og meginefni. Þá skal skrá afgreiðslu þeirra. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst.

Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð bæjarstjórnar um hvaða nefndir er að ræða og dagsetningu fundargerða.

Í fundargerð skal skráð hverjir taka til máls í umræðum, um hvaða málsliði dagskrár fjallað er og stutta athugasemd um afstöðu ræðumanns til viðkomandi máls, óski hann þess. Fulltrúar skulu að jafnaði afhenda ritara slíkar bókanir skriflega.

Í fundargerð skal skrá ef einstakir fulltrúar víkja af fundi við afgreiðslu máls vegna vanhæfis. Þá skal einnig skrá í fundargerð, komi fulltrúi til fundar eftir að hann er hafinn og undir hvaða lið, sama gildir ef fulltrúi þarf að víkja af fundi áður en honum lýkur.

Mál sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi skal skrá sem trúnaðarmál.

Í lok fundar skal fundargerð lesin og borin upp til samþykktar, skrá skal hvenær fundi er slitið og skulu allir viðstaddir fundarmenn undirrita hana nema bæjarstjórn ákveði annað.

Bæjarstjórn getur ákveðið að fundargerð verði skráð í tölvu. Sé það gert skal bóka í gerðabók bæjarstjórnar númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók upphafstíma fundar, fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerðar. Viðstaddir bæjarfulltrúar, bæjarstjóri og bæjarritari skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Í lok fundarins skal tölvuskráð fundargerð prentuð og hún undirrituð af fundarmönnum. Einnig skal forseti og fundarritari setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerðar sem tölusettar skulu í áframhaldandi töluröð. Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varðveislu.

Bæjarfulltrúi sem vill gera athugasemd við eitthvert atriði í fundargerð getur undirritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði.

Bæjarstjórn getur ákveðið að umræður á bæjarstjórnarfundum skuli hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti. Sé það ákveðið skal bæjarstjórn setja um það nánari reglur.

33. gr.

Bæjarstjórn getur samþykkt að leggja í dóm kjósenda með skoðanakönnun eða atkvæðagreiðslu þau mál sem hún álítur vera mjög þýðingarmikil fyrir sveitarfélagið.

III. KAFLI

Um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa.

34. gr.

Bæjarfulltrúa er skylt að sækja fundi bæjarstjórnar nema lögmæt forföll hamli, sbr. 22. gr. Aðal- og varamönnum í bæjarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum sveitarfélagsins. Hver bæjarfulltrúi er skyldur til að taka að sér þau störf sem bæjarstjórn felur honum og varða verkefni bæjarstjórnar, svo sem forsetastörf. Þó getur sá sem hefur verið forseti eða setið í bæjarráði eða annarri nefnd eitt kjörtímabil eða lengur skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi.

35. gr.

Bæjarfulltrúa ber að gegna bæjarfulltrúastörfum sínum af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna sveitarfélagsins og íbúa þess en í störfum sínum er bæjarfulltrúi einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni.

36. gr.

Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í samþykkt þessari.

Bæjarfulltrúa er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök mál. Þegar um er að ræða mál sem bæjarstjórn er að lögum skylt að afgreiða, svo sem fjárhagsáætlun, ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir, getur forseti ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu ef minna en helmingur bæjarfulltrúa hefur tekið þátt í henni.

Bæjarfulltrúi á rétt á að fá mál tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar skv. 3. tölul. 1. mgr. 11. gr.

37. gr.

Aðalmenn í bæjarstjórn eiga óhindraðan aðgang að bókum og skjölum sveitarfélagsins og einnig að stofnunum og fyrirtækjum þess á venjulegum afgreiðslutíma til að afla upplýsinga vegna starfa sinna.

38. gr.

Bæjarfulltrúi á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til þeirra mála sem til umræðu eru í bæjarstjórn. Hyggist bæjarfulltrúi gera grein fyrir afstöðu sinni í bókun, skal hann jafnan afhenda ritara hana skriflega í upphafi máls síns. Ef fundargerðir eru tölvuritaðar skal bæjarfulltrúi afhenda bæjarritara á fundarstað skriflegar bókanir sínar á tölvutæku formi ef kostur er.

39. gr.

Bæjarfulltrúi skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst áfram eftir að bæjarfulltrúi lætur af þeim störfum.

40. gr.

Nú telur bæjarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum sínum í bæjarstjórn vegna óhæfilegs álags og getur bæjarstjórn þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá sæti hans skv. 24. gr. sveitarstjórnarlaga. Missi fulltrúi í bæjarstjórn kjörgengi skal hann víkja úr bæjarstjórn, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

Nú er bæjarfulltrúi af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði, svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta og skal bæjarstjórn þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.

41. gr.

Bæjarfulltrúa ber að fá greiðslu úr bæjarsjóði fyrir störf sín í þágu sveitarfélagsins samkvæmt reglum sem bæjarstjórn setur. Takist bæjarfulltrúi á hendur ferð á vegum sveitarfélagsins samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.

Bæjarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.

42. gr.

Haga skal fundum bæjarstjórnar þannig að bæjarfulltrúar eigi möguleika á að taka sér orlof árlega.

43. gr.

Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa gilda einnig um varamenn sem taka sæti í bæjarstjórn.

IV. KAFLI

Bæjarráð.

44. gr.

Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum bæjarstjórnarkosningum kjósa þrjá bæjarfulltrúa í bæjarráð til eins árs og þrjá til vara. Kosningar í bæjarráð skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð. Aðal- og varamenn í bæjarstjórn eru kjörgengir sem varamenn í bæjarráð.

45. gr.

Bæjarstjóri situr fundi í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráð.

46. gr.

Bæjarráð skal að jafnaði halda fund einu sinni í viku. Aukafundi skal halda ef bæjarstjóri, formaður bæjarráðs eða a.m.k. tveir bæjarráðsmenn óska þess.

47. gr.

Bæjarstjóri undirbýr bæjarráðsfundi og tekur við erindum sem þar eiga að vera til umfjöllunar. Hann sér um að bæjarráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. tveimur sólarhringum fyrir fund. Heimilt er bæjarráði að ákveða að boða skuli fundi með rafrænum hætti. Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund boðar hann varamann sinn og tilkynnir það bæjarstjóra.

48. gr.

Á fyrsta fundi nýkjörins bæjarráðs skal kjósa formann og varaformann bæjarráðs. Bæjarritari annast fundarritun, í fjarveru bæjarritara ákveður bæjarstjóri hver ritar fundargerð. Fundarritari skal ávallt vera aðili sem ekki á sæti í bæjarstjórn. Formaður bæjarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarráðs. Heimilt er að taka mál til meðferðar í bæjarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver bæjarráðsmaður óskar þess.

Um ritun fundargerða bæjarráðs gilda sömu reglur og um ritun fundagerða bæjarstjórnar, sbr. 32. gr.

49. gr.

Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með framkvæmda- og fjármálastjórn sveitarfélagsins að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin. Bæjarráð hefur umsjón með stjórnsýslu sveitarfélagsins, undirbúningi árlegrar fjárhagsáætlunar og framlagningu draga að fjárhagsáætlun sveitarfélagsins í samráði við bæjarstjóra. Þá sér bæjarráð í samráði við bæjarstjóra um að ársreikningar bæjarsjóðs séu samdir og þeir ásamt ársreikningum stofnana og fyrirtækja sveitarfélagsins séu lagðir fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu svo sem sveitarstjórnarlög mæla fyrir um.

Bæjarráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar. Bæjarráði er þó heimil fullnaðarafgreiðsla mála sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs eða stofnana hans enda sé ekki ágreiningur milli bæjarráðsmanna eða við bæjarstjóra um slíka afgreiðslu. Þá getur bæjarstjórn falið bæjarráði fullnaðarafgreiðslu mála nema lög mæli á annan veg.

Ef mál sem bæjarráð hefur heimild til að afgreiða eru samhljóða samþykkt í bæjarráði hefur bæjarstjóri heimild til að láta framkvæma þau. Ef mótatkvæði kemur fram í bæjarráði við afgreiðslu máls, bíður frekari vinnsla þess afgreiðslu bæjarstjórnar.

50. gr.

Skylt er starfsmönnum sveitarfélagsins að sitja fundi bæjarráðs ef þess er óskað.

V. KAFLI

Nefndir og stjórnir.

51. gr.

Bæjarstjórn kýs nefndir og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar. Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá.

Bæjarstjóri boðar nefnd saman til fyrsta fundar eða ákveður hver skuli gera það nema formaður hafi áður verið valinn af bæjarstjórn. Bæjarstjórn kýs að jafnaði formenn nefnda en á fyrsta fundi nefndar skal kjósa varaformann og ritara nema lög eða bæjarstjórn ákveði annað. Formaður nefndar boðar eða lætur boða fundi í nefnd með a.m.k. tveggja sólarhringa fyrirvara með skriflegri dagskrá. Heimilt er nefnd að ákveða að fundi skuli boða með rafrænum hætti.

52. gr.

Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Geti nefndarmaður ekki sótt fund boðar hann varamann sinn og tilkynnir það viðkomandi starfsmanni sem vinnur með nefndinni.

Þegar aðalmaður í nefnd forfallast um stundarsakir, skal varamaður taka sæti í nefndinni. Þegar aðalmaður í nefnd flyst burt úr sveitarfélaginu, fellur frá eða forfallast á annan hátt varanlega tekur varamaður hans sæti nema bæjarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju.

Hafi tveir eða fleiri flokkar eða framboðsaðilar haft samstarf um nefndarkosningar skal sá sem tilnefndi viðkomandi nefndarmann einnig tilnefna varamann hans, sé eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu skv. 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

53. gr.

Nefndarfundir skulu haldnir fyrir luktum dyrum. Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn sveitarfélagsins eða boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál að höfðu samráði við yfirmann viðkomandi málaflokks.

54. gr.

Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði II. og III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum og stjórnum eftir því sem við á.

55. gr.

Um hlutverk og valdsvið nefnda og stjórna fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum, erindisbréfum eða samþykktum bæjarstjórnar. Bæjarstjórn staðfestir erindisbréf fyrir nefndir og stjórnir þar sem kveðið er á um hlutverk, valdsvið og starfshætti þeirra í samræmi við lög, reglugerðir og almennar samþykktir bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn getur falið nefnd fullnaðarafgreiðslu einstakra mála eða málaflokka nema slíkt vald sé að lögum sérstaklega falið bæjarstjórn til ákvörðunar.

56. gr.

Nefndir og stjórnir skulu halda gerðabækur. Ritari nefndar skal færa fundargerð í gerðabók. Um ritun fundargerða nefnda og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 32. gr. samþykktar þessarar og ákvæði í erindisbréfum nefnda sem samþykkt eru af bæjarstjórn.

57. gr.

Fundargerðir nefnda og stjórna sveitarfélagsins skulu að jafnaði fyrst teknar á dagskrá bæjarráðs og síðan bæjarstjórnar og skal það gert svo fljótt sem unnt er að afloknum nefndarfundi. Ef fundargerðir innihalda ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar afgreiðslu bæjarráðs eða bæjarstjórnar eru fundargerðir lagðar fram til kynningar.

58. gr.

Bæjarstjórn kýs í eftirtaldar nefndir og stjórnir:

A. Til eins árs. Á fundi í júní ár hvert.

1. Bæjarráð. Þrír aðalmenn úr hópi aðalmanna í bæjarstjórn og þrír varamenn úr hópi aðal- eða varamanna í bæjarstjórn.

2. Kjörstjórnir. Skv. gildandi lögum:

Yfirkjörstjórn. Þrír fulltrúar og þrír til vara.

Undirkjörstjórn 1 (Selfoss og Sandvík). Þrír fulltrúar og þrír til vara.

Undirkjörstjórn 2 (Selfoss). Þrír fulltrúar og þrír til vara.

Undirkjörstjórn 3 (Selfoss). Þrír fulltrúar og þrír til vara.

Undirkjörstjórn 4 (Stokkseyri). Þrír fulltrúar og þrír til vara.

Undirkjörstjórn 5 (Eyrarbakki). Þrír fulltrúar og þrír til vara.

B. Til fjögurra ára. Á fyrsta eða öðrum fundi að loknum bæjarstjórnarkosningum skulu eftirtaldar fastanefndir kosnar:

1. Atvinnuþróunarnefnd. Fimm fulltrúar og fimm til vara skv. gildandi erindisbréfi fyrir nefndina.

2. Félagsmálanefnd. Fimm fulltrúar og fimm til vara skv. gildandi lögum og erindisbréfi fyrir nefndina.

3. Íþrótta- og tómstundanefnd. Þrír fulltrúar og þrír til vara skv. gildandi erindisbréfi fyrir nefndina.

4. Fræðslunefnd. Fimm fulltrúar og fimm til vara skv. gildandi lögum og erindisbréfi fyrir nefndina.

5. Lista- og menningarnefnd. Þrír fulltrúar og þrír til vara skv. gildandi erindisbréfi fyrir nefndina.

6. Umhverfis- og skipulagsnefnd. Fimm fulltrúar og fimm til vara skv. gildandi lögum og erindisbréfi fyrir nefndina.

7. Framkvæmda- og veitustjórn. Fimm fulltrúar og fimm til vara skv. erindisbréfi fyrir nefndina.

8. Kjaranefnd. Þrír fulltrúar og þrír til vara skv. gildandi lögum og erindisbréfi fyrir nefndina.

Bæjarstjórn getur ákveðið að heimila setu áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétt i framangreindum nefndum.

C. Til fjögurra ára. Á fyrsta eða öðrum fundi að loknum bæjarstjórnarkosningum skulu fulltrúar kosnir í eftirtaldar nefndir, stjórnir eða til að sækja aðalfundi:

1. Aðalfundur Atvinnuþróunarfélags Suðurlands. Tíu fulltrúar og tíu til vara skv. gildandi samningi um félagið.

2. Aðalfundur SASS. Tíu fulltrúar og tíu til vara skv. gildandi samningi um samtökin.

3. Aðalfundur Sorpstöðvar Suðurlands. Einn fulltrúi og einn til vara skv. gildandi samningi um stofnunina.

4. Aðalfundur Skólaskrifstofu Suðurlands. Tíu fulltrúar og tíu til vara skv. samþykktum fyrir stofnunina.

5. Fulltrúaráð Brunavarna Árnessýslu. Tveir fulltrúar og tveir til vara skv. gildandi samningi um stofnunina.

6. Almannavarnanefnd Árnessýslu. Einn fulltrúi og einn til vara skv. gildandi samningi um nefndina.

7. Fulltrúaráðsfundur Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands. Einn fulltrúi og einn til vara skv. gildandi lögum um félagið.

8. Héraðsnefnd Árnesinga. Átta fulltrúar og átta til vara skv. gildandi samningi um nefndina.

9. Landsþing Sambands ísl. sveitarfélaga. Fjórir fulltrúar og fjórir til vara skv. gildandi reglum um þingið.

10. Samstarfsnefnd með starfsmannafélögum. Tveir fulltrúar og tveir til vara.

11. Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurlands. Einn fulltrúi og einn til vara skv. gildandi samningi um félagið.

12. Aðalfundur Leigubústaða Árborgar ehf. Einn fulltrúi og einn til vara skv. samþykktum félagsins.

13. Aðalfundur RARIK: Einn fulltrúi og einn til vara.

14. Þjónustuhópur aldraðra: Fimm fulltrúar. Bæjarstjórn skipar án tilnefningar tvo fulltrúa sem hafa þekkingu á félagslegri þjónustu við aldraða. Skal annar þeirra vera félagsráðgjafi eða hafa hliðstæða menntun. Yfirlæknir heilsugæslu tilnefnir lækni með sérmenntun á sviði öldrunar- eða heimilislækninga og hjúkrunarforstjóri heilsugæslu tilnefnir hjúkrunarfræðing með þekkingu á öldrunarþjónustu. Samtök eldri borgara á svæðinu tilnefna einn fulltrúa úr sínum röðum.

59. gr.

Bæjarstjórn getur kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur niður við lok kjörtímabils og fyrr sé verkefni þeirra lokið. Bæjarstjórn getur einnig afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er.

60. gr.

Bæjarstjórn er heimilt að fela umhverfis- og skipulagsnefnd Árborgar að úthluta lóðum fyrir hönd bæjarstjórnar, skv. reglum um úthlutun lóða í Sveitarfélaginu Árborg, dags. 20. október 2005, með síðari breytingum.

Bæjarstjórn er heimilt að fela eftirtöldum embættismönnum fullnaðarafgreiðslu mála:

1. Byggingarfulltrúa að afgreiða mál samkvæmt samþykkt um afgreiðslu byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Árborgar skv. skipulags- og byggingarlögum, dags. 30. maí 2000.

2. Bæjarritara, framkvæmdastjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs og framkvæmdastjóra Fjölskyldumiðstöðvar í sameiningu að afgreiða umsóknir um lækkun eða niðurfellingu álagðs útsvars skv. 25. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.

3. Bæjarritara og framkvæmdastjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að afgreiða umsóknir um styrki til greiðslu fasteignaskatts af húsnæði sem ekki er nýtt í ágóðaskyni, svo sem menningar-, íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfsemi eða vinna að mannúðarstörfum, skv. reglum sveitarfélagsins þar um.

Bæjarstjórn skal setja skýrar reglur um afgreiðslu mála skv. þessari grein en bæjarráð skal hafa eftirlit með þeim og kalla eftir skýringum og upplýsingum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli þeirra.

Embættismanni er alltaf heimilt að vísa ákvörðun skv. 2. mgr. til bæjarráðs til fullnaðarafgreiðslu.

61. gr.

Mál sem embættismanni er heimilt að afgreiða getur komið til ákvörðunar bæjarstjórnar ef bæjarfulltrúi óskar þess með formlegri og rökstuddri tillögu að ákvörðun embættismanns skv. 60. gr. verði tekin á dagskrá bæjarstjórnar. Þetta gildir þó ekki ef ákvörðun hefur verið tilkynnt málsaðila og hagsmunir hans mæla gegn því að málið verði tekið upp að nýju.

62. gr.

Aðili máls á rétt á að mál hans sé tekið til meðferðar á ný eftir fullnaðarafgreiðslu þess hjá bæjarstjórn, bæjarráði eða embættismanni ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða ef íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Beiðni um endurupptöku máls skal beina til þess sem ákvörðunina tók og verður að jafnaði að koma fram áður en þrír mánuðir eru liðnir frá því að málsaðila er tilkynnt um afgreiðslu.

63. gr.

Ákvarðanir um rétt og skyldu einstakra nemenda sem teknar eru í grunnskólum á grundvelli 3. og 4. mgr. 15. gr., 5. mgr. 17. gr., 1. mgr. 19. gr., 4. mgr. 26. gr., 4. mgr. 31. gr., 2. mgr. 32. gr. og 3. mgr. 40. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008 eru kæranlegar til ráðherra skv. 47. gr. grunnskólalaga. Áður en slíkar ákvarðanir eru kærðar til ráðherra skal, fyrst beina kæru til fræðslunefndar. Sama gildir um ákvarðanir um rétt og skyldu leikskólabarna sem teknar eru á grundvelli 22. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008. Um málsmeðferð á kærustigi innan sveitarfélagsins fer að ákvæðum stjórnsýslulaga.

VI. KAFLI

Um framkvæmdastjórn og starfslið sveitarfélagsins.

64. gr.

Bæjarstjórn ræður bæjarstjóra. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við hann þar sem m.a. skal kveðið á um ráðningartíma, kaup og kjör. Ráðningarsamningur skal staðfestur af bæjarráði.

65. gr.

Bæjarstjóri undirbýr fundi bæjarráðs og bæjarstjórnar, semur dagskrá og boðar til funda. Hann á sæti á fundum bæjarstjórnar og bæjarráðs og hefur þar málfrelsi og tillögurétt en eigi atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í bæjarráði og bæjarstjórn. Hann hefur og rétt á sæti á fundum nefnda og stjórna fyrirtækja sveitarfélagsins með sömu réttindum.

Bæjarstjóri hefur á hendi framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar, bæjarráðs og málefna sveitarfélagsins að svo miklu leyti sem bæjarstjórn ákveður ekki annað.

Bæjarstjóri er prókúruhafi bæjarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna, lántökur og aðrar skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki bæjarstjórnar þarf til.

Bæjarstjóra er heimilt að veita öðrum starfsmönnum sveitarfélagsins prókúru að fengnu samþykki bæjarstjórnar.

66. gr.

Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður starfsliðs sveitarfélagsins, fyrirtækja þess og stofnana. Bæjarritari er staðgengill bæjarstjóra.

67. gr.

Bæjarstjórn ræður bæjarritara og framkvæmdastjóra sviða. Bæjarstjóri ræður skipulags- og byggingarfulltrúa og sérfræðing umhverfismála. Framkvæmdastjóri Fjölskyldumiðstöðvar ræður skólastjóra leik- og grunnskóla. Framkvæmdastjórar sviða ráða verkefnis- og deildarstjóra sem ráða forstöðumenn stofnana. Forstöðumenn stofnana ráða annað starfsfólk sveitarfélagsins. Sömu tengsl eru milli aðila hvað varðar veitingu áminninga og uppsagnir.

68. gr.

Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna sveitarfélagsins, fyrirtækja þess og stofnana fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og/eða ákvæðum ráðningarsamninga, starfsmannastefnu og jafnréttisáætlun sveitarfélagsins.

VII. KAFLI

Um fjármálastjórn sveitarfélagsins.

69. gr.

Fjárhagsár Sveitarfélagsins Árborgar, stofnana og fyrirtækja þess er almanaksárið. Fyrir lok desembermánaðar ár hvert skal bæjarstjórn afgreiða fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins fyrir næsta ár að undangengnum tveimur umræðum í bæjarstjórn.

Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreiknings. Í fjárhagsáætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga.

Fyrir endanlega afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur bæjarstjórn ákvarðanir um nýtingu tekjustofna bæjarsjóðs. Við afgreiðslu áætlunarinnar er tekjuöflun ákveðin endanlega ásamt öflun lánsfjár ef um það er að ræða og um ráðstöfun fjármuna á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhagsáætlunar hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu bæjarsjóðs í byrjun fjárhagsársins.

70. gr.

Fjárhagsáætlun skv. 69. gr. skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn sveitarfélagsins á fjárhagsárinu og ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr bæjarsjóði nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöld séu lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af bæjarráði ef um minniháttar útgjöld er að ræða eða af bæjarstjórn ef þau breyta útgjaldaramma fjárhagsáætlunar.

Samþykki bæjarstjórn fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar, skal hún jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda, svo sem með lækkun annarra útgjalda, auknum tekjum eða lánsfé. Samþykki slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhagsáætluninni.

71. gr.

Hafi forsendur fyrir gerð fjárhagsáætlunar breyst er bæjarstjórn heimilt að endurskoða fjárhagsáætlunina. Slíkar breytingar afgreiðir bæjarstjórn við eina umræðu á bæjarstjórnarfundi enda hafi breytingartillögurnar verið sendar öllum bæjarfulltrúum með dagskrá viðkomandi bæjarstjórnarfundar.

72. gr.

Til viðbótar árlegri fjárhagsáætlun skal bæjarstjórn semja áætlun næstu þriggja ára um rekstur, framkvæmdir og fjármál sveitarfélagsins. Þriggja ára áætlun skal vera rammi um árlegar fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins. Skal hún afgreidd af bæjarstjórn innan tveggja mánaða frá afgreiðslu árlegrar fjárhagsáætlunar.

73. gr.

Þegar að lokinni afgreiðslu bæjarstjórnar skal senda samgönguráðuneytinu fjárhagsáætlun skv. 69. gr. og þriggja ára áætlun skv. 72. gr. Sama á við um endurskoðaða áætlun skv. 71. gr.

74. gr.

Ársreikningur sveitarfélagsins skal fullgerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í bæjarstjórn fyrir lok aprílmánaðar. Bæjarstjórn skal taka til umfjöllunar og afgreiðslu álit, greinargerðir og tillögur endurskoðanda og skoðunarmanna.

Bæjarstjórn skal hafa lokið fullnaðarafgreiðslu ársreikninga bæjarsjóðs, stofnana sveitarfélagsins og fyrirtækja þess eigi síðar en 1. júní ár hvert. Bæjarfulltrúar og bæjarstjóri skulu árita ársreikning sveitarfélagsins.

Eintak af ársreikningi skal sent samgönguráðuneytinu og Hagstofu Íslands fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðanda og skoðunarmanna.

Samþykkt þessi sem bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar hefur sett samkvæmt 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn Sveitarfélagsins Árborgar frá 17. maí 2000, nr. 396/2000 með síðari breytingum.

Samgönguráðuneytinu, 19. júní 2009.

F. h. r.
Hermann Sæmundsson.

Stefanía Traustadóttir.

B deild - Útgáfud.: 9. júlí 2009