Útreikningur frádráttarbærs hluta leigugreiðslna rekstrarárið 2014 vegna fjármögnunarleigu á fólksbifreiðum fyrir færri en 9 menn, þó að undanskildum leigubifreiðum, skal vera sem hér segir, skv. 4. tölul. 50. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt: Fyrningargrunnur telst vera kaupverð bifreiðar eins og það er ákveðið við kaup leigusala (fjármögnunarleigufyrirtækis) á viðkomandi bifreið að frádregnum áður fengnum fyrningum. Til frádráttar hjá leigutaka á rekstrarárinu 2014 telst 20% fyrning af fyrningargrunni skv. 1. tölul. hér að framan, að viðbættum 6,7% vöxtum reiknuðum hlutfallslega miðað við upphaf eða lok leigutíma á árinu 2014. Vextir reiknast af fyrningargrunni. Fyrning skv. 2. tölul. hér að framan er heimil að fullu rekstrarárið 2014, hvort sem leigutímabilið hefst eða því lýkur á því ári.
Reykjavík, 18. desember 2014. | F.h. ríkisskattstjóra, | Ingvar J. Rögnvaldsson vararíkisskattstjóri. |
|