Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 3/2014

Nr. 3/2014 6. janúar 2014
AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um skil á upplýsingum á árinu 2014, vegna framtalsgerða o.fl., samkvæmt 92. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að eftirtöldum upplýsingum og gögnum vegna ársins 2013 skuli skilað eigi síðar en 10. febrúar 2014. Upplýsingum þessum skal skilað á tölvutæku formi og samkvæmt lýsingum á vef ríkisskattstjóra á slóðinni www.rsk.is.

Á árinu 2014 mun þó verða tekið við pappírsgögnum, ef ekki er unnt að skila á tölvutæku formi. Þeim gögnum skal þá skila eigi síðar en 30. janúar 2014, á tilgreindum eyðu­blöðum sem einnig má finna á vef ríkisskattstjóra, www.rsk.is.

  1. Launamiðar og verktakamiðar (RSK 2.01). Skilaskyldir eru allir þeir sem innt hafa af hendi launagreiðslur, hlunnindi, lífeyri, bætur, styrki, happdrættis- og talna­vinninga (skattskylda sem óskattskylda), greiðslur til verktaka fyrir þjónustu (efni og vinnu) eða aðrar greiðslur sem framtalsskyldar eru og/eða skattskyldar skv. 7. gr. laga nr. 90/2003.
  2. Bifreiðahlunnindamiðar (RSK 2.035). Skilaskyldir eru allir þeir sem í rekstri sínum eða annarri starfsemi hafa haft kostnað af kaupum, leigu eða rekstri fólksbifreiðar og ekki fylla út RSK 4.03 vegna hennar.
  3. Hlutafjármiðar (RSK 2.045). Skilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög, samlags­hlutafélög, samvinnuhlutafélög og sparisjóðir. Sé upplýsingunum ekki skilað á rafrænu formi skal jafnframt skila samtalningsblaði (RSK 2.04).
  4. Launaframtali er skilað rafrænt sem hluta af almennum framtalsskilum á forminu RSK 1.04, RSK 1.06 eða RSK 4.05, og gilda þá almennir framtalsfrestir um þau skil.
    Einstaklingar og óskattskyld félög sem ekki skila rafrænu launaframtali skulu nota eyðublaðið RSK 1.05 og skila því með launamiðum eigi síðar en 30. janúar 2014.
  5. Viðskipti með hlutabréf. Skilaskyldir eru bankar, verðbréfafyrirtæki og aðrir þeir aðilar sem annast kaup og sölu, umboðsviðskipti og aðra umsýslu með hlutabréf. Sundurliða skal upplýsingar um hver viðskipti á kennitölu eða erlent skatt­auðkennis­númer (TIN) viðskiptaaðila.
  6. Bankainnstæður. Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir og aðrir aðilar sem taka við fjármunum til ávöxtunar. Tilgreina skal, sundurliðað á kennitölu eða erlent skattauðkennisnúmer (TIN) viðskiptaaðila, upplýsingar um alla bankareikninga og vaxtatekjur, þ.m.t. verðbætur, afföll og gengishagnað, hvort heldur greitt hefur verið til erlendra eða innlendra aðila og afdregna staðgreiðslu af þeim, og stöðu reikninganna í árslok. Þá skal upplýsa um alla vexti af kröfum greiddum erlendum aðilum, sbr. 8. tölul. 3. gr. laga nr. 90/2003 og þann afdrátt staðgreiðslu, sem skilaskyldur er og stöðu þessara krafna í árslok.
  7. Viðskipti með verðbréf, önnur en hlutabréf, sbr. 5. tölul. að framan. Skila skal, sundurliðað á kennitölu eða erlent skattauðkennisnúmer (TIN) viðskiptaaðila, upplýsingum um öll verðbréf, s.s. kröfur, hlutdeildarskírteini og afleiðusamninga. Tilgreina skal vaxtatekjur, þ.m.t. verðbætur, afföll og gengishagnað, hvort heldur greitt hefur verið erlendum eða innlendum aðilum og afdregna staðgreiðslu af þeim, og stöðu í árslok.
    Flokka skal fjármálagerninga í almenna, sérstaka (kúlubréf, s.s. spariskírteini) og afleiður. Vaxtatekjur af sérstökum verðbréfum, sem seld voru eða innleyst á árinu 2013, þarf að sundurliða eftir því sem þær hafa áunnist. Sjá nánar í skilalýsingu á vef ríkisskattstjóra.
  8. Lánaupplýsingar (bankalán, fasteignaveðlán, bílalán og önnur lán). Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir (bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir, tryggingafélög, fjár­mögn­unarleigur o.s.frv.) sem hafa lánað fé til einstaklinga og lögaðila. Jafnframt skal veita upplýsingar um kröfur sem hafa verið afskrifaðar að hluta eða öllu leyti.
  9. Stofnsjóðsmiðar (RSK 2.065). Skilaskyld eru öll samlagsfélög, sameignarfélög og samvinnufélög, þ.m.t. kaupfélög. Skila skal m.a. upplýsingum um eign eigenda í félaginu í árslok og úttektir af höfuðstól á árinu. Sé upplýsingunum ekki skilað á rafrænu formi skal jafnframt skila samtalningsblaði (RSK 2.06).
  10. Takmörkuð skattskylda - greiðsluyfirlit (RSK 2.025). Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur til erlendra aðila og annarra, sem bera takmarkaða skattskyldu hér á landi, og skattskyldar eru skv. 3. tölul. (þjónusta eða starfsemi innt af hendi hér á landi) og 6. tölul. (leiga og greiðslur fyrir afnot eða hagnýtingu einkaleyfa og hvers konar annarra leyfa, réttinda, sérþekkingar, o.fl.) 3. gr. laga nr. 90/2003.
  11. Greiðslumiðar - leiga eða afnot (RSK 2.02). Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum, sbr. 1. og 2. tölulið C-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, svo og fyrir greiðslur fyrir sérhver önnur afnot af réttindum, s.s. aflaheimildum, einkaleyfum eða sérþekkingu, enda sé ekki gerð grein fyrir þessum greiðslum á öðrum skilagreinum sem taldar eru upp hér að framan.
  12. Hlutabréfakaup skv. kaupréttarsamningi (RSK 2.085). Skilaskyld eru öll hlutafélög sem gert hafa kaup­réttar­samn­inga við starfsmenn sína samkvæmt staðfestri kaupréttaráætlun, sbr. 10. gr. laga nr. 90/2003. Sama á við um söluréttar­samninga.
  13. Fjármagnstekjumiði. Þeir sem innheimt hafa vexti (þ.m.t. verðbætur og dráttarvexti), skulu skila fjármagnstekjumiða með sundurliðun á móttakendum og staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts sem haldið hefur verið eftir. Hér er einkum um að ræða smærri innheimtuaðila, t.d. lögfræðistofur. Þessum miða er eingöngu hægt að skila rafrænt (sjá www.rsk.is).

Ef skilað er röngum eða gölluðum upplýsingum, eða ef þær eru á annan hátt ekki sam­kvæmt skilalýsingu, þarf skilaskyldur aðili, eftir atvikum, að greiða þann kostnað sem af því kann að hljótast.

Allar fyrirspurnir vegna gagnaskila má senda á netfangið [email protected].

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt 92. og 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.

Reykjavík, 6. janúar 2014.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 7. janúar 2014